Morgunblaðið - 15.07.2022, Side 24

Morgunblaðið - 15.07.2022, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2022 Þín upplifun skiptir okkur máli Kringlan ... alltaf næg bílastæði Borðabókanir á www.finnssonbistro.is eða info@finnssonbistro.is Djúsí andasalat Frábær kostur í hádeginu Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Dagurinn hentar vel til að íhuga gamlar hugmyndir um atvinnumöguleika. Ræddu við einhvern þér eldri og vitrari. 20. apríl - 20. maí + Naut Minningar verða til á einu augnabliki í einu og yfirleitt þegar maður á síst von á. Reyndu því að einbeita þér að starfi þínu. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Það er mikil gæfa að eiga trún- aðarvin sem tekur á viðkvæmustu málum þannig að enginn bíður hnekki af. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú þarft að gefa tilfinningunum smáfrí og velta hlutunum fyrir þér af kaldri skynsemi. Vertu sjálfum þér samkvæmur og þá muntu uppskera laun erfiðis þíns. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Á vissum augnablikum getur verið rétt að aðhafast ekkert því ef reynt er að hreyfa málum þá rekur allt í strand. Stattu ákveðinn á þínu. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú gætir laðað að þér einhvern í dag sem er staðráðinn í að gera þig að betri manni. Gott! Það er merki um að þú sért að lifa lífinu og ýtir þér áfram í þroska. 23. sept. - 22. okt. k Vog Vertu viss að vera í nú-inu með ósk- irnar þínar og nærðu þær vel. Stilltu þig um að rasa um ráð fram, fyrir vikið nærðu frá- bærum árangri í verkefni sem þú hefur baksað við upp á síðkastið. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Spurðu sjálfan þig að því af hverju þú þarft alltaf að vera að afreka eitt- hvað. Skoðaðu málið vandlega svo þú hafir það á hreinu. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Ekkert samband er fullkomið og sum þeirra sem þú ert í eru langt frá því að vera það. Með réttum viðbrögðum getið þið komist hjá erfiðleikum í tæka tíð. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Fólki finnst gaman að færa þér gjafir, kannski af því að þú ert svo vinaleg- ur. Hann trúir á það sem hann er að gera og vill að aðrir skilji hvað hann á við. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Leyfðu öðrum að njóta gleði þinnar og gamansemi. Lexía dagsins er sú að vera samúðarfullur og skilja sjónarmið hins aðilans. Farðu þér hægt. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Mark Twain sagði eitt sinn að fregn- ir að andláti hans væru stórlega ýktar. Leggðu þitt af mörgum möglunarlaust og þá fylgja aðrir á eftir. aðra rjúpu og stóð við það. Í mörg ár vann ég einnig við að fylgjast með arnarhreiðrum við talningar og merkingar. Alltaf nálgaðist ég hreiðr- in með nærgætni svo að hvorki for- eldrarnir né ungarnir sýndu vott um hræðslu.“ Ragnar naut heimakennslu bæði í foreldrahúsum í Aratungu og svo að Látrum. Síðar stundaði hann nám í Reykjanesskóla í Ísafjarðardjúpi á eftir mér eins og ég væri for- ystusauður. Ég þekkti þær allar, voru þær hændar að mér og gat ég rakið ættir þeirra.“ Ragnar hefur sagt margar sögur af tilfinningatengslum sínum við dýr og segist hafa átt mjög erfitt með að nota skotvopn til veiða. „Eitt sinn skaut ég rjúpu. Þegar ég kom að henni sá ég svo eftir því að hafa skotið hana að ég hét því að skjóta aldrei R agnar Bergsveinsson fæddist 15. júlí 1922 í Aratungu við Stein- grímsfjörð, næst- yngstur 15 systkina. Hann ólst upp í foreldrahúsum fram undir 12 ára aldur, en eins og gefur að skilja var þetta þungt heimili og flest- um börnunum var komið fyrir hjá vinum, vandamönnum og vandalaus- um. Hjálmfríður Lilja, systir Ragnars sem var 12 árum eldri en hann, fór ung að heiman og var um skeið lausa- kona í Vatnsfirði og er skráð þar árið 1930. Um 1934 höfðu foreldrar þeirra Hjálmfríðar Lilju og Ragnars brugð- ið búi og hermt er að hún hafi haft forgöngu um að Ragnar, þá 12 ára gamall, kæmi til Látra til bústarfa. Faðir Ragnars fylgdi honum yfir Steingrímsfjarðarheiði og fékk hann heimili og gott atlæti að Látrum, hjá systur sinni og Þórarni mági sínum. Þórarinn átti þrjú börn með Krist- ínu, fyrri konu sinni, og voru þau á aldur við Ragnar. Þórarinn og Hjálm- fríður Lilja eignuðust þrjú börn, Guð- rúnu, Braga og Sigríði og urðu öll sex börn Þórarins þannig uppeldissystk- ini Ragnars og myndaðist sterk vin- átta með þeim sem hélst alla tíð. Um Þórarin mág sinn segir Ragn- ar: „Hann var góður maður, hafði sér- stakar taugar til mín og mat mig mik- ils. Hann var sterk greindur og mikill sómamaður. Eitt sinn, þegar við höfð- um verið að sinna búskap við erfiðar aðstæður, sem tókst að vinna bug á, kallaði hann mig til sín og þakkaði mér vel fyrir hjálpina. Opnaði hann koníaksflösku til að við gætum skálað en Þórarinn snerti annars sjaldan áfengi. Mikið þótti mér vænt um þetta vinarhót sem hann sýndi mér. Undir handleiðslu Þórarins urðu bú- störf mitt fag þótt ekki ætti fyrir mér að liggja að verða bóndi.“ Einkum er smölun kinda að haust- lagi Ragnari minnisstæð. Þá var oft höfð næturdvöl í Heydal en þaðan var Kristín, fyrri kona Þórarins á Látrum ættuð. „Þegar féð var komið heim í tún að hausti eða því sleppt út að vori var það segin saga að þegar ég gekk um túnin gengu kindurnar í halarófu 1935-36 og í íþróttaskólanum í Haukadal 1937-38 og seinna í Lög- regluskólanum, 1947, þegar hann tók til starfa í lögreglunni í Reykjavík eft- ir að hafa séð auglýsta stöðu lög- regluþjóna. „Ég pantaði fund með Agnari Kofoed-Hansen lögreglu- stjóra og varla leið meira en mínúta af þeim fundi að Agnar bað mig að hitta ritarann sinn til að ganga frá ráðningarsamningi. Þetta stutta við- tal leiddi því til æviráðningar.“ Ragnar lýsir starfi sínu í lögregl- unni sem viðburðaríku og að lang- mestu leyti ánægjulegu. „Á þessum tíma bar mest á okkur lögreglumönn- um við umferðarstjórnun í mið- bænum fyrir daga umferðarljósanna en við þurftum að sinna fleiru en um- ferðarstjórnun t.d. var umferðareft- irlit einnig töluvert. Við sinntum líka ýmsum þjónustustörfum, t.d. við starfsfólk Landspítalans og fluttum við það m.a. til og frá vinnu þegar nauðsyn krafði. Við lögreglumenn- irnir bárum númer á einkennisbún- ingnum og fékk ég það góða númer 100. Það varð til þess að þvottakon- urnar á Landspítalanum fóru að kalla mig „hundraðshöfðingjann“. Síðar fékk ég númerið 88 og hélt upp á það alla tíð og náði mér t.d. í bílnúmerið R 8888 og símanúmerið 10888.“ Árið 1964 varð Ragnar flokkstjóri, aðstoðarvarðstjóri 1966, varðstjóri frá og með 1.jan. 1969 og aðalvarð- stjóri frá 1. mars 1979. Hann fór svo á eftirlaun 1. nóv. 1982. Seinni árin var hann aðalvarðstjóri í fjarskiptastöð lögreglunnar, á þeim tíma þegar tölvutæknin var tekin í notkun. Hann var einnig yfirmaður fjarskiptastöðv- arinnar og réð starfsmannamálum. Ragnar er félagslyndur maður og sat í stjórn Lögreglufélags Reykjavík- ur 1954 og var í stjórn Byggingarsam- vinnufélags lögreglumanna frá byrjun 1950 og formaður þess um tíma. Stærsta verkefni félagsins á þessum árum var bygging fjölbýlishússins Miklubraut 80 til 84 og fjölbýlishússins Miklubraut 86 til 90 í samvinnu við prentarafélag Reykjavíkur. Ragnar vann til ýmissa verðlauna í skotfimi og bridge og var sæmdur gullmerki Lögreglufélags Reykjavík- ur. Við heimsókn Svíakonungs til Ís- Ragnar Bergsveinsson, fv. aðalvarðstjóri – 100 ára Lögreglumaður Ragnar bar númerið 100 á einkennisbún- ingnum sínum í lögreglunni og var upp frá því kallaður hundr- aðshöfðinginn af þvottakonunum á Landspít- alanum. Hann fékk síðar núm- erið 88 og hélt mikið upp á það. Hundraðshöfðinginn Brúðkaup Þessi mynd er tekin í brúðkaupi Margrétar, dóttur Ragnars, í Viðey 31. júlí 1999. Við hlið brúðarinnar standa foreldrarnir Ragnar og Gyða heitin og aðrir nánustu ættingjar brúðhjónanna. Til hamingju með daginn 90 ÁRA Sigríður Árný, kölluð Árný, hefur allt sitt líf búið í Miðfirði í Húna- þingi vestra. Hún ólst upp að Finnmörk í Fitjárdal og náði sér í mann úr sömu sveit, Skúla Axelsson frá Valdarási. Þau keyptu jörðina Bergsstaði í Miðfirði vorið 1954, sama ár og þau kvæntust, og bjuggu þar myndarbúi í 53 ár. Þá fluttu þau að Laugarbakka þar sem Árný býr enn í dag og unir hag sínum vel. Árný gekk í Húsmæðraskólann á Varmalandi 1951-52. Hún er næst yngst af systkinum sínum og skemmtilegt að segja frá því að fjögur þeirra eru enn á lífi og tvö þeirra komin yfir nírætt. Jóhanna Kristófersdóttir er 93 ára og býr á Hrafnistu og Jóhannes Kristófersson er 91 árs og býr á Laugarbakka. Gunnar Kristófersson er 80 ára og býr einnig á Laugarbakka. FJÖLSKYLDA Eiginmaður Árnýjar var Skúli Axelsson frá Valdarási, f. 10.4. 1926, d. 1.1. 2009, bóndi. Börn þeirra hjóna eru: Jónína, f. 1.6. 1955, bóndi og saumakona, Axel, f. 10.4. 1960, húsasmíðameistari, Guðmundur Rúnar, f. 27.1. 1963, rafiðnafræðingur og Elín Anna, f. 29.1. 1974, búfræð- ingur og bóndi á Bergsstöðum. Afkomendur Árnýjar eru alls 22 talsins. Sigríður Árný Kristófersdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.