Morgunblaðið - 15.07.2022, Page 26

Morgunblaðið - 15.07.2022, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2022 Lengjudeild karla HK – KV.................................................... 4:0 Fylkir – Kórdrengir ................................. 4:1 Grótta – Selfoss ........................................ 3:0 Þróttur V. – Grindavík............................. 2:0 Staðan: Fylkir 12 7 3 2 34:13 24 Grótta 12 7 1 4 27:15 22 HK 11 7 1 3 24:15 22 Selfoss 12 6 3 3 23:17 21 Grindavík 12 4 5 3 18:15 17 Fjölnir 11 5 2 4 22:20 17 Kórdrengir 12 4 4 4 16:18 16 Vestri 11 4 4 3 18:25 16 Afturelding 11 3 4 4 15:16 13 Þór 11 3 2 6 16:23 11 KV 12 2 1 9 14:31 7 Þróttur V. 11 1 2 8 4:23 5 Sambandsdeild karla 1. umferð, síðari leikir, helstu úrslit: Breiðablik – UE Santa Coloma............... 4:1 _ Breiðablik áfram, 5:1 samanlagt. KR – Pogon Szczecin ............................... 1:0 _ Pogon áfram, 4:2 samanlagt. Aka.Pandev – Lechia Gdansk ................. 1:2 _ Lechia áfram, 6:2 samanlagt. Europa FC – Víkingur Götu.................... 1:2 _ Víkingur áfram, 3:1 samanlagt. Kauno Zalgiris – Ruzomberok................ 0:0 _ Ruzomberok áfram, 2:0 samanlagt. Paide – Dinamo Tbilisi............................. 1:2 _ Paide áfram á vítum, 4:4 samanlagt. SJK Seinäjoki – Flora Tallinn........ (frl.) 4:2 _ Seinäjoki áfram, 4:3 samanlagt. Tuzla City – Tre Penne............................ 6:0 _ Tuzla áfram, 8:0 samanlagt. Atletic Escaldes – Gzira.................. (frl.) 0:1 _ Gzira áfram, 2:1 samanlagt. B36 Þórshöfn – Borac Banja Luka......... 3:1 _ B36 áfram á vítum, 3:3 samanlagt. Dila Gori – KuPS Kuopio......................... 0:0 _ KuPS áfram, 2:0 samanlagt. Riga FC – Derry City .............................. 2:0 _ Riga áfram, 4:0 samanlagt. Newtown – HB Þórshöfn................ (frl.) 2:1 _ Newtown áfram á vítum, 2:2 samanlagt. Differdange – Ol.Ljubljana ............ (frl.) 1:2 _ Olimpija áfram, 3:2 samanlagt. Llapi – Buducnost Podgorica.................. 2:2 _ Buducnost áfram, 4:2 samanlagt. Partizani Tirana – Saburtalo Tbilisi ....... 0:1 _ Saburtalo áfram á vítum, 1:1 samanlagt. Sligo Rovers – Bala Town........................ 0:1 _ Sligo áfram á vítum, 2:2 samanlagt. Decic – Dinamo Minsk ............................. 1:2 _ Dinamo áfram, 3:2 samanlagt. Larne – St. Josephs.................................. 0:1 _ St. Josephs áfram, 1:0 samanlagt. Tre Fiori – Fola Esch .............................. 3:1 _ Tre Fiori áfram, 4:1 samanlagt. Cliftonville – Dunajská Streda................ 0:3 _ Dunajská áfram, 5:1 samanlagt. Crusaders – Magpies ............................... 3:1 _ Crusaders áfram, 4:3 samanlagt. >;(//24)3;( EM U20 kvenna B-deild í N-Makedóníu: Keppni um sæti 9-18: Kósóvó – Ísland .................................... 44:65 Slóvakía – Króatía ................................ 55:67 _ Ísland 4, Rúmenía 4, Kósóvó 2, Króatía 2, Slóvakía 0. Ísland mætir Króatíu í dag. >73G,&:=/D KNATTSPYRNA 1. deild karla, Lengjudeildin: Akureyri: Þór – Fjölnir............................. 18 2. deild karla: Ólafsvík: Víkingur Ó. – Ægir............... 19.15 3. deild karla: Árbær: Elliði – KH............................... 19.15 Garðabær: KFG – Augnablik .............. 19.15 Dalvík: Dalvík/Reynir – Vængir J ...... 19.15 2. deild kvenna: Úlfarsárdalur: Fram – ÍR.................... 19.15 Akranes: ÍA – Álftanes ........................ 19.15 Ásvellir: KÁ – Grótta ........................... 19.15 GOLF Hvaleyrarbikarinn hefst í dag á Hvaleyr- arvellinum í Hafnarfirði en mótið er hluti af stigamótaröð GSÍ og leiknar eru 54 holur. Í KVÖLD! D-RIÐILL: Ísland – Ítalía............................................ 1:1 Frakkland – Belgía .................................. 2:1 Staðan: Frakkland 2 2 0 0 7:2 6 Ísland 2 0 2 0 2:2 2 Belgía 2 0 1 1 2:3 1 Ítalía 2 0 1 1 2:6 1 _ Lokaumferðin er á mánudag, 18. júlí, kl. 19 þegar Ísland leikur við Frakkland og Ítalía við Belgíu. Leikir í dag: A: Austurríki – Noregur ........................... 19 A: Norður-Írland – England .................... 19 Markahæstar: Beth Mead, Englandi.................................. 4 Grace Geyoro, Frakklandi.......................... 3 Alexandra Popp, Þýskalandi...................... 2 Ellen White, Englandi ................................ 2 EM KVENNA 2022 Þrótti úr Vogum sem fer fram á sunnudagskvöldið. Atli Arnarson skoraði fyrir HK í fyrri hálfleiknum og í þeim síðari bættu Ásgeir Mar- teinsson og Stefán Ingi Sigurðar- son við mörkum auk þess sem Vest- urbæingar skoruðu sjálfsmark. _ Sögulegustu úrslit kvöldsins urðu hinsvegar í Vogum þar sem Þróttur vann sinn fyrsta leik í sög- unni í 1. deild, 2:0 í nágrannaslag gegn Grindavík. Hans Mpongo, sem lék með ÍBV fyrri hluta móts, skor- aði bæði mörkin í fyrsta leik sínum með liðinu. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Fylkir, Grótta og HK eru í þremur efstu sætunum í fyrstu deild karla í fótbolta eftir sannfærandi sigra á heimavöllum sínum í gærkvöld. _ Lykilleikur toppbaráttunnar var á Seltjarnarnesi þar sem Gróttumenn skelltu Selfyssingum, sem voru efstir í deildinni til skamms tíma, á sannfærandi hátt, 3:0. Kjartan Kári Halldórsson var áfram á skotskónum og skoraði tvö markanna en hann hefur nú skorað 12 mörk fyrir Gróttu í deildinni í ár. Óliver Dagur Thorlacius skoraði eitt mark. _ Fylkir hélt efsta sætinu með því að sigra Kórdrengi örugglega í Árbænum, 4:1. Ásgeir Eyþórsson, Arnar Breki Ásþórsson og Nikulás Val Gunnarsson komu Fylki í 3:0. Kristófer Reyes minnkaði muninn fyrir Kórdrengi en Mathias Laur- sen innsiglaði sigur Árbæinga. _ HK er áfram með fæst stig töp- uð í deildinni eftir 4:0 sigur á KV í Kórnum. Kópavogsliðið situr þó í þriðja sæti en á leik til góða gegn Fylkir, Grótta og HK efst Morgunblaðið/Eggert Fylkir Mathias Laursen og Ásgeir Eyþórsson skoruðu báðir í gær. EVRÓPUKEPPNI Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Það má með sanni segja að íslensku karlaliðin séu að fá uppreisn æru í Evrópumótunum eftir dauft gengi undanfarin ár. Eftir bráðfjörugt jafntefli Víkinga gegn Svíþjóðarmeisturum Malmö á þriðjudagskvöldið gerðu KR og Breiðablik sér lítið fyrir og unnu bæði andstæðinga sína í seinni leikj- um fyrstu umferðar Sambandsdeild- arinnar í gærkvöld. Breiðablik vann UE Santa Co- loma frá Andorra sannfærandi, 4:1, á Kópavogsvelli og fer áfram í Sam- bandsdeildinni, 5:1 samanlagt. KR lagði Pogon Szczecin frá Póllandi, 1:0, á Meistaravöllum en er fallið úr keppni, 2:4 samanlagt. Samtals hafa nú íslensku liðin unnið fimm af átta Evrópuleikjum sínum í sumar og gert eitt jafntefli. Þegar við þetta bætast þrír sigrar Blika í fyrra, auk tveggja jafntefla Breiðabliks og Stjörnunnar, ætti Ís- land að klífa styrkleikatöfluna hratt og verða komið með fjórða liðið í Evrópukeppni á ný innan tveggja ára. Svartfjallaland og Wales Bæði Breiðablik og Víkingur halda áfram í Sambandsdeildinni í næstu viku þar sem Blikar mæta Buducnost Podgorica frá Svart- fjallalandi og Víkingar eiga í höggi við The New Saints, meistaralið Wa- les. Þarna eru fyrir hendi tækifæri til að bæta við fleiri sigurleikjum og bæði lið ættu að eiga raunhæfa möguleika á að komast í þriðju um- ferð þó ljóst sé að mótherjar beggja séu sterkir. Fimm sigrar Blika á tveimur árum Blikar eru búnir að vinna fimm Evrópuleiki á tveimur árum, og þeir eru nú eina íslenska félagið í karla- flokki sem hefur unnið jafnmarga Evrópuleiki og það hefur tapað. _ Sigur Blika í gærkvöld var sá níundi í 23 leikjum en þeir hafa gert fimm jafntefli og tapað níu sinnum. _ Þá er Breiðablik eftir leikinn í gærkvöld eina íslenska karlaliðið með markatölu í plús í Evrópu- leikjum en Kópavogsfélagið hefur skorað 31 mark í Evrópukeppni og fengið á sig 29. _ Blikar sáu líka til þess að ís- lensk lið hafa farið áfram gegn liðum frá Andorra í öll fjögur skiptin sem þau hafa mæst í Evrópukeppni. Blikar sjálfir tvisvar, Víkingar einu sinni og Valsmenn einu sinni. _ Kristinn Steindórsson skoraði sitt þriðja Evrópumark fyrir Breiða- blik þegar hann kom liðinu í 4:1. Að- eins Ellert Hreinsson hefur skorað fleiri, fjögur, en Árni Vilhjálmsson og Gísli Eyjólfsson eru með þrjú mörk hvor. _ Ísak Snær Þorvaldsson og Höskuldur Gunnlaugsson skoruðu báðir sitt annað Evrópumark en Ísak skoraði sigurmarkið í fyrri leiknum í Andorra, 1:0. Reynslubolt- inn Andri Rafn Yeoman skoraði hinsvegar sitt fyrsta Evrópumark þegar hann kom Blikum í 3:1. _ Blikar leika nú tvo næstu fimmtudaga við Buducnost Podgo- rica frá Svartfjallalandi og er fyrri leikurinn á Kópavogsvellinum næsta fimmtudag, 21. júlí. KR-ingar kveðja stoltir KR-ingar geta kvatt Sambands- deildina stoltir því sigur gegn sterku liði Pogon frá Póllandi, 1:0 á Meist- aravöllum í gærkvöld, er plús í kladdann fyrir Rúnar Kristinsson og hans menn. Þó þeir séu fallnir úr keppni þá kræktu þeir í dýrmæt stig á styrkleikalistann fyrir Ísland og fyrir KR-inga sjálfa. Möguleikar KR-inga á að komast áfram voru afar litlir fyrir leik eftir 4:1 tapið í Szczecin en þeir hefðu þurft að ná fjögurra marka sigri, eða þá þriggja marka sigri og víta- spyrnukeppni til að fella Pólverjana. Eftir eitt mark í fyrri hálfleik hefðu þeir þurft annað fljótlega í þeim síð- ari til að setja virkilega pressu á Pól- verjana. _ Sigurður Bjartur Hallsson skoraði sitt fyrsta Evrópumark þeg- ar hann kom KR yfir undir lok fyrri hálfleiksins. Þetta var um leið fyrsta mark KR á heimavelli í síðustu fjór- um Evrópuleikjum en Vestur- bæingar höfðu ekki skorað í þremur síðustu Evrópuleikjum á Meistara- völlum. _ KR-ingar unnu sinn 19. Evr- ópuleik í gærkvöld og FH er eina ís- lenska félagið með fleiri Evrópu- sigra á sínum reikningi, 23 talsins. Af þessum 19 sigurleikjum eru 13 á heimavelli. _ KR hefur leikið flesta Evrópu- leiki íslenskra liða, 84 talsins, og er með flest skoruð mörk en mark Sig- urðar í gærkvöld var 95. Evrópu- mark KR-inga. _ KR er þriðja íslenska liðið sem vinnur heimaleik gegn pólsku liði. Fylkir vann Pogon 2:1 árið 2001 og fór áfram, 3:2 samanlagt, og Stjarn- an vann Lech Poznan 1:0 árið 2014 og komst áfram á því marki. Eini sigur Pólverja á Íslandi á þessari öld er sigur Legia Varsjá á FH í Kapla- krika, 1:0, árið 2006. Á síðustu öld, frá 1972 til 1986, unnu Pólverjar hinsvegar alla tíu Evrópuleiki sína gegn íslenskum liðum. _ Pogon fer í aðra umferð keppn- innar og mætir þar Bröndby frá Danmörku. Íslandið er að rísa í Evr- ópumótunum í fótbolta - Breiðablik áfram í Sambandsdeildinni og KR-ingar sigruðu sterkt lið Pogon Ljósmynd/Kristinn Steinn Skoruðu Ísak Snær Þorvaldsson og Andri Rafn Yeoman kljást við Andorramenn en þeir skoruðu báðir í leiknum. Morgunblaðið/Hákon Skoraði Sigurður Bjartur Hallsson á spretti gegn Pogon á Meistaravöllum en hann skoraði sigurmark KR-inga í leiknum í gærkvöld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.