Morgunblaðið - 15.07.2022, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2022
_ Íris Dögg Gunnarsdóttir, markvörð-
ur úr Þrótti í Reykjavík, var í gær köll-
uð inn í landsliðshóp Íslands í knatt-
spyrnu á EM á Englandi. Hún hefur
æfingar með liðinu í dag og verður í
hópnum gegn Frökkum á mánudag. Ír-
is, sem er 32 ára, kemur í stað Telmu
Ívarsdóttur sem meiddist á æfingu á
miðvikudaginn og var ekki í hópnum
gegn Ítalíu í gær.
_ Bandaríkjamaðurinn Cameron Yo-
ung er óvænt með forystu eftir fyrsta
daginn á The Open Championship,
risamótinu í golfi sem hófst á St And-
rews-vellinum í Skotlandi í gær. Young
lék magnaðan hring, á 64 höggum,
átta undir pari vallarins, og er tveimur
höggum á undan Rory McIlroy frá
Norður-Írlandi sem lék á 66 höggum.
_ Arnór Sigurðsson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, var í gær formlega
kynntur til leiks hjá sænska
úrvalsdeildarfélaginu Norrköping.
Sænska félagið seldi Arnór til CSKA í
Moskvu árið 2018 fyrir 40 milljónir
sænskra króna. Hann lék með CSKA í
þrjú ár en var í láni hjá Venezia í
ítölsku A-deildinni á síðasta tímabili.
_ Þórsarar úr Þorlákshöfn drógust í
gær gegn Petrolina AEK frá Kýpur í
undankeppni Evrópubikars FIBA í
karlaflokki í körfuknattleik. Liðin eru í
sex liða riðli en tapliðið fellur út eftir
fyrsta leik og sigurliðið mætir Antwerp
Giants frá Belgíu í næsta leik. Eitt lið-
anna sex kemst svo í riðlakeppni Evr-
ópubikarsins en hin þrjú liðin eru
Sporting frá Portúgal, Göttingen frá
Þýskalandi og Trepca frá Kósóvó. Leik-
ið verður á heimavelli einhvers af
þessum sex liðum.
_ Hilmar Þór Jónsson, eini keppandi
Íslands á heimsmeistaramótinu í
frjálsum, verður í eldlínunni strax á
fyrsta degi mótsins sem hefst í dag í
Eugene í Oregon-ríki í Bandaríkjunum.
Hilmar keppir í sleggjukasti og undan-
keppnin hjá honum hefst kl. 16.05 að
íslenskum tíma. Hilmar þarf að kasta
77,50 metra til að komast í úrslitin,
eða þá að enda meðal tólf efstu í und-
ankeppninni, en Íslandsmet hans í
greininni er 77,10 metrar.
_ Diljá Lárusdóttir skoraði 21 stig
fyrir íslenska U20 ára landsliðið í
körfuknattleik sem sigraði Kósóvó,
65:44, í B-deild Evrópukeppninnar í
Norður-Makedóníu í gær. Hulda Ólafs-
dóttir skoraði 15 stig og Helena
Rafnsdóttir var með 11 stig og 13 frá-
köst.
_ Knattspyrnumaðurinn Willum Þór
Willumsson skrifar að óbreyttu undir
samning við hollenska úrvalsdeildar-
félagið Go Ahead Eagles í dag, til
þriggja ára. Ólafur Garðarsson um-
boðsmaður staðfesti það við Morg-
unblaðið í gær. Willum hefur
leikið í þrjú og hálft ár með
BATE Borisov í Hvíta-
Rússlandi. Go
Ahead, sem er
frá borginni
Deventer,
varð í
13.
sæti
af 18
liðum í Hollandi í
fyrra en Willum verð-
ur fyrsti Íslending-
urinn til að
spila með
liðinu.
Eitt
ogannað
ins eftir frábært samspil íslenska
liðsins.
Það jákvæðasta við leik íslenska
liðsins var klárlega varnarleikurinn
með þær Glódísi Perlu Viggósdóttur
og Guðrúnu Arnardóttur fremstar í
flokki. Þá var Sandra Sigurðar-
dóttur stórkostleg í markinu en hún
varði hvert skotið á fætur öðru frá
leikmönnum ítalska liðsins og gerði
einstaklega vel í að halda boltanum
alltaf.
Eins svekkjandi og úrslitin voru
þá var jafntefli að öllum líkindum
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Svekktar Landsliðskonurnar Svava Rós Guðmundsdóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir og Selma Sól Magnúsdóttir ganga niðurlútar af velli í leikslok.
sanngjörn niðurstaða enda stjórn-
uðu Ítalir ferðinni langstærstan
hluta leiksins.
Allt getur gerst í fótbolta
Ísland er með 2 stig í öðru sæti
riðilsins en Frakkar eru komnir
áfram í 8-liða úrslitin með 6 stig í
efsta sætinu. Belgía og Ítalía koma
þar á eftir með eitt stig hvort en þau
mætast einmitt í lokaumferðinni í
Manchester á meðan Ísland mætir
Frakklandi í Rotherham.
Reikningsdæmið er ekkert sér-
staklega flókið fyrir íslenska liðið en
ef það leggur Frakkland að velli í
lokaumferðinni er Ísland komið
áfram í 8-liða úrslitin.
Íslenska liðinu gæti dugað jafn-
tefli í lokaleiknum, gegn því að Ítalía
og Belgía geri jafntefli í sínum leik.
Tapi Ísland gæti liðið hins vegar
komist áfram líka, aftur gegn því að
Ítalía og Belgía geri jafntefli, en þá
þarf íslenska liðið að skora allavega
eitt mark gegn því franska og helst
tvö til þess að auka möguleika sína
ennþá frekar.
Innbyrðis viðureign ræður úrslit-
um í riðlakeppninni ef liðin eru jöfn
að stigum en eftir það er það marka-
talan og því fleiri mörk sem Ísland
skorar gegn Frökkum, því betra.
Frakkar eru nú þegar búnir að
tryggja sér efsta sæti riðilsins og
þar með sæti í 8-liða úrslitunum og
þeir gætu því freistast til þess að
hvíla leikmenn gegn Íslandi á mánu-
daginn.
Það gæti komið sér vel fyrir ís-
lenska liðið en á sama tíma er liðið
eitt það sterkasta í heiminum, í
þriðja sæti heimslista FIFA, og því
engir aukvisar sem myndu koma inn
í liðið.
Það getur hins vegar allt gerst í
fótbolta og á meðan möguleikinn er
til staðar þá mun íslenska liðið
leggja allt í sölurnar til þess að
tryggja sér sigur og sæti í 8-liða úr-
slitunum.
Þurfa sigur gegn Frökkum
- Ísland er í erfiðri stöðu eftir jafntefli gegn Ítalíu á Evrópumótinu, 1:1
- Íslenska liðið fékk betri færi en tókst ekki að koma boltanum aftur í netið
ÍSLAND – ÍTALÍA 1:1
1:0 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 3.
1:1 Valentina Bergamaschi 62.
MM
Sandra Sigurðardóttir
M
Glódís Perla Viggósdóttir
Guðrún Arnardóttir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Dómari: Lina Lehtovaara – Finnlandi.
Áhorfendur: Um 4.000.
Ísland: (4-3-3) Mark: Sandra Sigurðar-
dóttir. Vörn: Elísa Viðarsdóttir, Glódís
Perla Viggósdóttir, Guðrún Arnardótt-
ir, Hallbera Guðný Gísladóttir (Áslaug
Munda Gunnlaugsdóttir 87). Miðja:
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Alexandra
Jóhannsdóttir 57), Dagný Brynjarsdótt-
ir, Sara Björk Gunnarsdóttir (Svava
Rós Guðmundsdóttir 78). Sókn: Svein-
dís Jane Jónsdóttir, Berglind Björg
Þorvaldsdóttir (Agla María Albertsdótt-
ir 57), Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
(Selma Sól Magnúsdóttir 87).
_ Hallbera Guðný Gísladóttir lék sinn
130. landsleik og er sú þriðja til að ná
þeim leikjafjölda. Sara Björk Gunnars-
dóttir lék sinn 141. leik og Katrín Jóns-
dóttir lék 133.
_ Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði
sitt áttunda mark í 21 landsleik þegar
hún kom Íslandi yfir á 3. mínútu.
_ Þetta er fjórða jafntefli Íslands og
Ítalíu í átta leikjum þjóðanna. Ítalía hef-
ur unnið hina fjóra leikina, alla með eins
marks mun.
_ Íslenska landsliðið er nú ósigrað í síð-
ustu sex leikjum sínum og hefur tapað
einu sinni í síðustu 13 landsleikjum.
Í MANCHESTER
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Það er ærið verkefni framundan hjá
íslenska kvennalandsliðinu í knatt-
spyrnu eftir jafntefli gegn Ítalíu í
öðrum leik sínum í D-riðli Evrópu-
mótsins á akademíuvelli Manchester
City í Manchester á Englandi í gær.
Leiknum gegn Ítalíu lauk með
1:1-jafntefli þar sem Karólína Lea
Vilhjálmsdóttir kom íslenska liðinu
yfir strax á 3. mínútu áður en Val-
entina Bergamschi jafnaði metin
fyrir Ítali á 62. mínútu og þar við sat.
Íslenska liðið hefur oft spilað bet-
ur en það gerði í gær en liðinu gekk
ævintýralega illa að halda í boltann
nánast allan leikinn.
Leikmenn liðsins voru mikið að
reyna að lúðra boltanum fram og
það vantaði alla ró í spilið á allt of
löngum köflum í leiknum.
Miðjumennirnir þrír voru ekki
nægilega duglegir að bjóða sig og
sækja boltann og þær voru því oft út
úr stöðu þegar Ítalir unnu boltann
ofarlega á vellinum sem hefði getað
endað mjög illa.
Á sama tíma fékk íslenska liðið
bestu færi leiksins, á 61. mínútu þeg-
ar Alexandra Jóhannsdóttir skaut
framhjá fyrir nánast opnu marki og
svo á 87. mínútu þegar Karólína Lea
fékk frítt skot í vítateig ítalska liðs-
vítaspyrnu hennar, rétt eins og frá
Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur í
fyrstu umferðinni. Renard fékk
dauðafæri úr frákastinu en hitti
ekki markið á óskiljanlegan hátt.
Sigur Frakka varð því með
minna móti, 2:1, og það kann að
koma Íslandi illa. Ef Belgar og Ítal-
ir gera jafntefli gætu Belgía, Ísland
og Ítalía öll endað með tvö stig og
þá ræður markatalan í leikjunum
gegn Frökkum úrslitum. Nema Ís-
land taki sig til og nái stigi eða stig-
um af Frökkum!
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Frakkar tryggðu sér sæti í átta liða
úrslitum Evrópumóts kvenna í fót-
bolta í gærkvöld með því að sigra
Belga 2:1 í Rotherham.
Jafnframt tryggði franska liðið
sér sigur í D-riðlinum og nú er ljóst
að það spilar áfram í Rotherham
þar sem það mætir Íslandi á mánu-
dag og leikur síðan þar gegn liðinu
í öðru sæti C-riðils 23. júlí, vænt-
anlega gegn Svíum eða Hollend-
ingum, þó vissulega komi bæði
Sviss og Portúgal enn til greina.
Þetta var ekki sama flugeldasýn-
ing hjá Frökkum og í fyrri hálfleik
gegn Ítölum, þó Kadidiatou Diani
hefði skorað strax á 6. mínútu. Ja-
nice Cayman jafnaði óvænt fyrir
Belga á 36. mínútu en fimm mín-
útum síðar skoraði Griedge Mbock
Bathy markið sem reyndist sigur-
mark, 2:1.
Wendie Renard fékk upplagt
færi til að bæta þriðja markinu við
undir lokin. Nicky Evrard varði þá
Ekki sama flugeldasýningin
AFP/Oli Scarff
Sigur Corinne Diacre, þjálfari
Frakka, fagnar sínum konum.