Morgunblaðið - 15.07.2022, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2022
2013
2018
Reki ehf • Skemmuvegur 46 • 200 Kópavogur • Sími 562 2950
www.reki.is
Við sérhæfum okkur í síum
í allar gerðir véla
Eigum til flest allar gerðir af síum á lager
Áratuga reynsla í þjónustu við íslenskan iðnað
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Myndlistarkonan Edda Jónsdóttir
opnaði fyrir nokkrum dögum einka-
sýninguna Teikningar í Hverfisgall-
eríi á Hverfisgötu. Þar er að finna á
þriðja tug blýants- og vatnslitaverka
sem öll eru unnin á árunum 2021-
2022.
Edda stofnaði galleríið i8 í Ingólfs-
stræti árið 1995 og naut þess lengi
vel að vinna með öðrum listamönn-
um. Meðan hún rak galleríið lagði
hún eigin myndlist að mestu til hlið-
ar. Eftir að sonur hennar tók við
rekstri i8 flutti hún til Arizona þar
sem hún dvaldi tíu vetur. Smám sam-
an fór hún að snúa sér að eigin mynd-
list á ný og í fyrra opnaði hún sína
fyrstu einkasýningu síðan árið 1995.
Nautn við vinnuna
Myndlistarkonan segir það hafa
verið frábært að fá sýningarstjórann
Hildigunni Birgisdóttur til liðs við sig
við gerð Teikninga þegar þær taka á
móti blaðamanni í Hverfisgalleríi.
„Ég er náttúrulega aðdáandi
hennar í myndlistinni. Hún er algjör
hetja og hefur stjórnað þessu alfarið.
Það er langbest að listamenn skipti
sér ekkert af. Svo ef þessi sýning er
góð þá er það af því að hún gerði
hana. Ég gerði bara myndirn-
ar,Þegar við komum hingað inn þá
lagðist Hildigunnur undir feld og
kom svo með þessa hugmynd að mála
salinn í litum rammanna. Það verður
svolítil safnatilfinning þegar þú ert
kominn með lit á veggina því gallerí
eru yfirleitt hvít.“ Við þetta verður
myndflöturinn sjálfur í aðalhlutverki.
Við sammælumst um að það sé ró-
andi að koma inn í salinn og Edda
stingur upp á því að haldinn yrði
jógatími þar. „Ég held að þetta sé
einmitt hugarástandið sem Edda er í
þegar hún er að vinna á vinnustof-
unni. Það er einhver innri ró eða
nautn við vinnuna,“ segir Hildigunn-
ur.
„Já, það er einmitt rétta orðið. Það
er nautn að gera þetta. Ég fæ alveg
ótrúlega mikið út úr þessu,“ sam-
þykkir Edda.
Myndirnar sem Hildigunnur valdi
inn á sýninguna eru allar í sömu
stærð og var það einnig með ráðum
gert. „Þá horfirðu á það sem er að
gerast á myndfletinum frekar en
samsetningu sýningarinnar. Mynd-
flöturinn fær að njóta sín.“
Á árunum þegar Edda rak gallerí
og eins þegar hún bjó í Arizona þá
vann hún mikið í skissubækur. „Þeg-
ar maður hefur unnið mikið í litlar
bækur þá er einhver ástæða fyrir því.
Maður er eitthvað hrifinn af litlu
„formati“. Þetta eru ekki stórkarla-
málverk. Ég fékk líka vinnustofu
sem var eiginlega bara eins skrif-
stofa. Eitt stórt borð og annað sem
ég gat hækkað og lækkað.“ Stærðin á
myndunum hafi því verið þægileg
vinnustærð.
„Ég held að þessi stærð hafi fylgt
manninum ansi lengi. Þetta er líka
akkúrat rétta stærðin fyrir verkfær-
in þín og þinn líkama, þú hefur fulla
stjórn,“ segir Hildigunnur.
Hildigunnur, Edda og nokkrir
kollegar völdu sínar uppáhalds-
myndir. Þannig varð smám saman til
úrval mynda sem rötuðu inn á sýn-
inguna.
„Rýminu var síðan skipt upp eftir
rammabreiddinni og svo var val um
tvennt, annaðhvort er mynd eða ekki
mynd í hverju bili, þannig myndast
litlir klasar um rýmið. Það gerði upp-
setninguna mjög skemmtilega að
vinna með þetta kerfi og það var eig-
inlega nauðsynlegt að hafa eitthvað
til þess að halla sér að,“ segir sýning-
arstjórinn en Edda bætir við: „Það er
svolítil músík í þessu kerfi.“
Þegar eitthvað kemur á óvart
Spurð út í vinnuferlið segir Edda:
„Ég sest bara niður með autt blað og
byrja. Ég sé ekki formið fyrir mér
áður. Ég bara byrja.“
Verkin eru öll unnin með blýanti
og vatnslit. „Það eru tól sem einfalt
er að vinna með í lítilli vinnustofu.
Þau eru svo einlæg og svo nátt-
úruleg,“ segir Edda.
Hildigunnur bendir á að það að
taka sér blýant í hönd sé oft fyrsta
skrefið til þess að miðla hugmyndum.
„Og vatnsliturinn er oft fyrsti lit-
urinn.“
Edda segist vera ánægð með hvað
hún geti verið snögg að vinna blý-
ants- og vatnslitaverk. „Þú stendur
aldrei upp frá ókláruðu verki. Það
hentar mér ekkert mjög vel að
standa upp frá ókláruðu verki og
þurfa svo að byrja aftur.“
Þótt Edda hafi mikla stjórn yfir
þessum litlu verkum fer vatnslit-
urinn stundum sínar eigin leiðir. „Ég
hef tekið eftir því að Eddu finnst
mjög gaman þegar hlutir koma henni
aðeins á óvart. Það má ekki vera of
mikil stjórn og þá held ég að vatnslit-
urinn komi sterkur inn,“ segir Hildi-
gunnur. „Það verður að vera
skemmtilegt,“ svarar Edda.
„Ég er alltaf að sjá það meira og
meira að þetta eru einhver borgar-
áhrif. Þegar ég bjó í Garðabæ þá
fannst mér ég ekki búa í borg þótt ég
færi í bæinn. Það er núna fyrst sem
mér finnst ég búa í borg og ég skil
bara ekki hvernig ég gat búið ekki í
borg. Og það er kannski einhver vís-
un í það hér. En ég vil ekki vera of
hlutbundin, þetta eru abstrakt verk.“
Hildigunnur bætir við að það sé vel
hægt að sjá samhljóm milli teikning-
anna og þeirra borgarljósmynda sem
Edda tekur. Þar sé horft niður úr
blokkinni.
„Ég hefði bara dáið“
„Þú hefur sagt við mig að þú sért
alltaf ótrúlega spennt að byrja á
morgnana. Svo liggja bara staflarnir
af myndum eftir hana,“ segir Hildi-
gunnur.
Edda svarar: „Þetta var mér svo
nauðsynlegt. Ég gat ekkert annað,
ég hefði bara dáið í Covid-faraldr-
inum ef ég hefði ekki fundið þessa
leið og fundið stað til þess að vinna.“
Hún fór á hverjum degi á vinnu-
stofu sína á Snorrabraut. „Ég hitti
oft aðra listamenn eða unga ættingja
til þess að fá smá innblástur og fór
svo að vinna og ég gat varla hætt.
Þetta var alveg rosalega ánægju-
legt.“
Samneyti við aðra listamenn hefur
verið Eddu mikilvægt í gegnum tíð-
ina og hefur hún mikinn áhuga á því
sem aðrir eru að fást við.
„Ástæðan fyrir því að Edda stofn-
aði gallerí á sínum tíma er kannski að
hún hefur brennandi áhuga á mynd-
list. Hún sér allar sýningar,“ segir
Hildigunnur og Edda tekur undir:
„Það var kannski forsendan fyrir því
að mér fannst ekki nóg að vinna bara
sjálf heldur vildi ég vinna með fleir-
um. Ég held það sé ekki hægt að
segja annað en að ég hafi mikinn
áhuga þótt ég hafi ekki mikið vit.“
Hildigunnur maldar í móinn en
bætir við að vitið hafi breyst á vissan
hátt. Þegar hún kynntist Eddu fyrir
um 15 árum þá hafi Edda verið fljót
að mynda sér skoðun og þær hafi
verið mjög afgerandi en að nú sé sú
orka að færast inn á við. Hún tali um
að hún finni eitthvað í líkamanum.
„Það er eins og hún sé stöðugt að
þroska skynjunina.“
Edda segir skýringuna ef til vill
hafa verið að framan af hafi hún verið
praktísk vegna þess að hún hafi verið
að hugsa um galleríið. Þegar hún hafi
lagt rekstur þess til hliðar þá hafi
hún farið að taka inn list á sínum eig-
in forsendum, fyrir sjálfa sig.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einlæg Verkin á sýningunni Teikningar í Hverfisgalleríi eru öll unnin með blýanti og vatnslit. „Það eru tól sem ein-
falt er að vinna með í lítilli vinnustofu. Þau eru svo einlæg og svo náttúruleg,“ segir listakonan Edda Jónsdóttir.
Ljósmyndir/Vigfús Bjarnason
Abstrakt Eddu þykir verkin að vissu leyti vísa í borgarlandslag.
„Þetta var mér svo nauðsynlegt“
- Einkasýning Eddu Jónsdóttur, Teikningar, opnuð í Hverfisgalleríi - Sýningarstjórinn lagði
áherslu á að myndflöturinn fengi að njóta sín - Edda segir vinnuna hafa verið afar ánægjulega
Íranski kvikmyndaleikstjórinn Jaf-
ar Panahi hefur verið handtekinn í
heimalandi sínu og er sá þriðji sem
handtekinn hefur verið á innan við
viku, að því er fram kemur á vef The
Guardian. Hinir tveir eru Mohamm-
ad Rasoulof og Mostafa Aleahmad
og hefur sá fyrrnefndi þegar verið
dæmdur til fangelsisvistar.
Panahi hefur hlotið fjölda verð-
launa líkt og hinir leikstjórarnir og
eiga kvikmyndir þeirra sammerkt
að vera gagnrýnar á írönsk stjórn-
völd.
Pahani hefur áður verið handtek-
inn með Rasoulof, árið 2010 þegar
þeir tóku þátt í almennum mótmæl-
um og var hann þá dæmdur til sex
ára fangelsisvistar. Að þessu sinni
var Pahani handtekinn þegar hann
ætlaði að mótmæla handtöku Ra-
soulof á skrifstofu saksóknara.
Fréttastofa íranska ríkisins, IRNA,
greindi frá því fyrir helgi að Rasou-
lof og Aleahmad hefðu verið hand-
teknir fyrir að hafa tekið þátt í mót-
mælum vegna byggingar sem
hrundi og varð 43 að bana. Kröfðust
mótmælendur þess að opinberum
eftirlitsmönnum yrði refsað fyrir af-
glöp í starfi og spillingu.
Skipuleggjendur kvikmyndahá-
tíðarinnar í Cannes hafa mótmælt
þessum handtökum opinberlega og
sent frá sér yfirlýsingu þar sem þær
eru fordæmdar sem og skerðing ír-
anskra stjórnvalda á tjáningarfrelsi.
Það hafa skipuleggjendur kvik-
myndahátíðarinnar í Berlín einnig
gert.
AFP/Atta Kenare
Handtekinn Jafar Pahani er íransk-
ur kvikmyndaleikstjóri og marg-
verðlaunaður. Hefur hann meðal
annars hlotið aðalverðlaun hátíð-
arinnar í Berlín, Gullbjörninn.
Þrír leikstjórar handteknir í Íran
- Skipuleggjendur kvikmyndahátíða
í Cannes og Berlín mótmæla harðlega