Morgunblaðið - 15.07.2022, Side 32

Morgunblaðið - 15.07.2022, Side 32
STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU WWW.SVEFNOGHEILSA.IS Svefn heilsa& GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ PANDORA STILLANLEGUR HÆGINDASTÓLL VANDAÐAR SÆNGUROG KODDAR Í ÚRVALI EITT MESTA ÚRVAL AF HEILSUDÝNUM Á LANDINU ÚRVALAF VÖNDUÐUM HEILSURÚMUM Tónlistarmaðurinn Björn Jörundur Friðbjörnsson heldur tónleika á hátíðinni Hjarta Hafnarfjarðar í Bæjarbíói í kvöld. Bera þeir yfirskriftina Björn Jörundur 15-51 og vísa til þess að hann samdi sinn fyrsta smell aðeins 15 ára, lagið „Fram á nótt“. Nú er hann orðinn 51 árs og slagararnir orðnir margir á löngum ferli. Mun hann flytja úrval laga frá ferlinum með Ragn- heiði Gröndal, Guðmundi Péturssyni og Kristni Snæ Agnarssyni. Björn flytur úrval laga sinna í Bæjarbíói á Hjarta Hafnarfjarðar FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 196. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Breiðablik og KR gerðu það bæði gott í Sambandsdeild karla í fótbolta í gærkvöld þegar þau unnu heimaleiki sína í fyrstu umferð keppninnar. Blikarnir tryggðu sér sæti í 2. umferð með því að vinna UE Santa Coloma frá Andorra, 4:1, á Kópavogsvellinum og KR-ingar unnu sterkt lið Pogon frá Póllandi, 1:0, á Meistaravöllum. KR er þó fallið úr keppni. »26 Evrópusigrar Breiðabliks og KR ÍÞRÓTTIR MENNING Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Ljósmyndasýning í tilefni af 50 ára afmæli Einvígis aldarinnar, heims- meistaraeinvígis í skák á milli Boris Spasskys og Bobbys Fischers í Laugardalshöll, fer nú fram í Kötlu- setri í Vík í Mýrdal. Um er að ræða ljósmyndir Alberts Cañagueral, spænsks blaðamanns sem við- staddur var einvígið, myndaði og sagði frá því í spænskum miðlum á sínum tíma. „Í rauninni var Einvígi aldarinnar fyrsta blaðamannaverkefnið mitt,“ segir Albert í samtali við Morgun- blaðið. Á þessum árum kom Albert hingað til lands í sumarfríum til þess að vinna í fiski í Hnífsdal og átti hann því marga vini hér á landi, bæði á Vestfjörðum og í Reykjavík. Heima í Barselóna lærði hann blaða- mennsku. Albert segir sýninguna unna upp úr hans eigin einkasafni; myndum sem hann hefur legið á í hálfa öld. „En aðalmaðurinn á bak við tjöldin er minn gamli vinur Sigurður Jak- obsson,“ segir Albert en Sigurður var næturvörður í Laugardalshöll þegar einvígið fór fram. „Án hans væri þessi sýning ekki möguleg.“ Sigurður tók meðal annars mynd- ina sem er nokkurs konar krúnu- djásn hátíðarinnar; mynd tekin á vél Alberts af honum við taflborðið fræga en sú mynd átti eftir að gegna stærra hlutverki síðar meir. Skilar því sem tilheyrir Íslandi Albert segir tilgang sýningarinnar mikilvægan fyrir sig – að hann „skili“ því sem „tilheyrir Íslandi“. „Fyrir mér er það mjög mikilvægt.“ Með Alberti standa þær Anna Marti og Harpa Elín Haraldsdóttir að sýningunni en Anna vinnur í Kötlusetri og er Harpa þar for- stöðumaður. Guðmundur G. Þórarinsson, sem var forseti Skáksambands Íslands þegar einvígið fór fram, var einnig viðstaddur hátíðarhöldin með Al- berti, bæði á áðurnefndri sýningu í Kötlusetri og síðan Fishersetrinu á Selfossi. Í samtali við Morgunblaðið rekur hann söguna og ástæðuna fyr- ir því að myndin af Alberti við tafl- borðið er mikilvæg. „Það er mikil saga,“ segir Guð- mundur. „Eftir að ég hætti sem for- seti Skáksambands Íslands, tveimur til þremur árum seinna, var skák- sambandið – eins og oft áður – aura- lítið. Þeir létu því smíða tvö skák- borð í fjáröflunarskyni,“ segir hann og á þar við bæði plötuna sem teflt var við og svo borðið sjálft sem setið er við. „Upphaflega hafði Gunnar Magnússon húsgagnaarkitekt teikn- að fyrir okkur borðið sem teflt var á og er núna á Þjóðminjasafninu.“ Hann hafi gefið vinnu sína með því skilyrði að aðeins yrði til eitt slíkt taflborð. „Hann gaf það síðan eftir í fjárhagsörðugleikum skák- sambandsins að það yrðu framleidd tvö borð í fjáröflunarskyni.“ Annað borðið hafi átt að vera selt til keisara Írans sem þó var steypt af stóli áður en hann tók ákvörðun. Bæði borðin hafi á endanum endað hjá Páli G. Jónssyni, viðskiptamanni í Polaris. Páll seldi síðan borðið Bandaríkja- manni sem í góðri trú hélt að um væri að ræða borðið sem teflt var á. Nú, með tilkomu ljósmyndar Al- berts, sé þó orðið nokkuð skýrt að borðið sem Páll seldi er ekki það. Af þeim sökum stefni í dómsmál. „Það virðist augljóst að platan sem teflt var á er ekki sú sem var seld.“ Albert hefur legið á myndunum í hálfa öld - 50 ára afmæli Einvígis aldarinnar fagnað með sýningu Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Skáksýning Albert (t.h.) með Guðmundi G. Þórarinssyni, fv. forseta Skák- sambands Íslands, sem færði honum blóm við opnun skáksýningar í Vík. Ljósmynd/Sigurður Jakobsson Einvígi Albert við skákborðið fræga í Laugardalshöll árið 1972.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.