Norðurslóð - 21.04.2022, Page 8
Tímamót
Skírnir
Afmæli
Þann 1. apríl varð
85 ára, Loreley
G e s t s d ó t t i r ,
Dalvík.
Þann 6. apríl varð
80 ára, Hjálmar
R a n d v e r s s o n ,
Dalvík.
Þann 9. apríl var Margrét
Adele Gunnarssdóttir skírð í
Urðakirkju . Foreldrar hennar eru
Gunnar Kristinn Guðmundson og
Auður Arnarsdóttir. Sr. Erla Björk
Jónsdóttir skírði.
Þann 6. apríl varð
75 ára, Haukur
Antonsson, Dalvík.
Þann 15. apríl varð
70 ára, Viðar
Kristmundsson ,
Dalvík.
Þann 20. apríl
varð 70 ára, Sölvi
H . H j a l t a s o n ,
Svarfaðardal.
Leiðrétting frá síðasta tölublaði:
Þann 2. mars sl. varð 85 ára, Rúnar Þorleifsson. Norðurslóð
biðst velvirðingar á þessum mistökum og óskar Rúnari heilla
með sl. afmælisdag.
Þann 31.mars sl. lést á dvalarheimilinu Dalbæ, Alda Eygló Kristjánsdóttir. Alda fæddist á
Þórshöfn á Langanesi 4. júní 1937. Foreldrar hennar voru Kristján Ottó Þorsteinsson, f. 19.1.
1906 á Brekkum, d. 5.6. 1989, og Margrét Halldórsdóttir, f. 30.1. 1911 á Þórshöfn, d. 20.12.
1988. Alda átti þrjár systur: Jóhönnu, f. 5.9. 1940, d. 14.10. 2007, Halldóru Kristrúnu Briem,
f. 16.1. 1948, d. 2.10. 1987, Hrönn, f. 20.4. 1950.
Alda kynntist eftirlifandi eiginmanni sínum, Sigurði Jónssyni slökkvistjóra, f. 15.9. 1941, frá
Dalvík, í herstöð Atlantshafsbandalagsins á Heiðarfjalli á Langanesi árið 1956. Þau giftu sig í Dalvíkurkirkju
30. des. 1961.
Börn þeirra eru: 1) Jón, f. 25.3. 1960, d. 21.9. 1976. 2) Hólmfríður Margrét, f. 6.6. 1962 3) Jóna Sigurðardóttir,
f. 14.11. 1978.
Þau Alda og Sigurður eiga 5 barnabörn og 4 langbarnabörn
Alda ólst upp í foreldrahúsum á Þórshöfn með systrum sínum. Að loknu gagnfræðaskólanámi fór Alda
til Ísafjarðar, þaðan sem hún útskrifaðist frá Húsmæðraskólanum Ósk vorið 1956. Hún hóf störf í eldhúsi
herstöðvarinnar á Heiðarfjalli þá um sumarið, en flutti svo til Dalvíkur árið 1958. Þar byggðu þau hjónin
sér fallegt hús á Ásvegi 8, sem var þeirra heimili til hennar síðasta dags. Á Dalvík starfaði Alda fyrst um
sinn í Frystihúsi KEA, en réð sig svo til starfa á Saumastofunni Ýli. Einnig vann hún í Shellskálanum og í
prjónaverksmiðjunni á Dalvík um hríð. Árið 1986 opnuðu þau Myndabandaleiguna Ásvídeó, sem varð afar
vinsæl hjá sveitungum þeirra, og ráku þau hana allt til ársins 2009. Samhliða þeim rekstri settu þau hjónin á
laggirnar fyrstu tjaldvagna/hjólhýsaleigu landsins, einnig undir merkjum Ásvídeós, og er hún enn starfrækt í
dag.
Útför Öldu var gerð frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 9.apríl sl.. Sr. Magnús Gunnarsson jarðsöng.
Andlát
Gleðilegt sumar!
með sól í hjarta og sól í sinni
Þann 16. apríl sl. lést á heimili sínu að Akureyri Sigríður Sóley
Sigtryggsdóttir frá Göngustaðakoti í Svarfaðardal. Hennar verður
minnst í næsta blaði.
Gleðilegt
sumar!
Andlát