Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.7. 2022
LÍFSSTÍLL
Fæst í apótekum, heilsuhúsum og heilsuhillum stórverslanna.
húsastól, Konsumstuhi nr. 14 sem
nýtur enn þann dag í dag mikilla
vinsælda um allan heim. Stóllinn er
einnig merkilegur fyrir þær sakir
að hann er fyrsta húsgagnið sem
var fjöldaframleitt.
Glæsilega J39-stólinn er að finna
á mörgum fallegum heimilum, en
þar að auki prýddu þeir Hallgríms-
kirkju í þó nokkur ár. Stóllinn var
hannaður árið 1947 af Børge Mo-
gensen og er úr olíuborinni eik
með handofinni setu úr nátt-
úrulegum pappa.
Árið 1950 komu tveir glæsistólar
á markaðinn. Annars vegar var það
hinn heimsfrægi CH24 Y-stóll, eða
óskabeinastóll sem danski hús-
gagnahönnuðurinn Hans J. Wagner
hannaði fyrir Carl Hansen & Søn.
Stóllinn er að margra mati einn
fegursti stóll heims. Seta stólsins
er handofin úr 120 metrum af
sterkum pappírsþræði.
Sama ár hannaði Pierre
Jeanneret hægindastólinn vin-
sæla Chandigarh. Stóllinn er
blanda af viði og reyr, en
hann fæst í nokkrum litum
og gefur sterkan svip á
hvaða rými sem er.
Síðan þá hafa fjölmargir
hönnuðir nýtt sér þá fallegu
áferð sem ofinn reyr og papp-
ír gefa húsgögnum, en þar á
meðal má nefna
Cuba-stólinn eftir
Morten Gøttler
frá árinu 1997
og Nomad-
stóllinn frá
NORR11 eftir
Kristian Sofus
Hansen og
Tommy Hyl-
dahl frá árinu
2018.
O
finn reyr varð fyrst vinsæll
efniviður í stóla og sófa
árið 1715. Reyr er planta
sem er þekkt fyrir að vera sveigj-
anleg, sterk og endingargóð og
hentar því sérlega vel í stóla.
Árið 1859 smíðaði Michael Tho-
net hinn goðsagnakennda kaffi-
Gefðu heimilinu
notalegan blæ
Stólar með ofnum reyr og pappa eru gríðarlega vinsælir í dag, enda gefa
þeir heimilinu hlýlegan og notalegan blæ. Margir af fremstu húsgagnahönn-
uðum heims notast við þessa aldagömlu aðferð þar sem reyr eða pappi er
ofið á setur eða bök stólanna. Það er óhætt að segja að ofnir stólar séu bæði
klassískir og tímalausir, en margir þeirra eiga sér langa sögu.
Irja Gröndal irja@mbl.is
CH24 Y-stóllinn er heimsfrægur.
Ljósmynd/Epal.is
Hægindastóllinn Chandigarh eftir Pierre Jeanneret.
Ljósmynd/Nomadstore.is
J39 stólinn er að finna á mörgum heimilum.
Ljósmynd/Epal.is
Cuba-stóllinn eftir Morten Gøttler kom út árið 1997.
Ljósmynd/Epal.is
Nomad-stóllinn
frá Norr11.
Ljósmynd/Norr11
Flestir kannast við kaffihúsastólinn
fræga, en í dag eru til ýmsar út-
færslur af stólnum.
Ljósmynd/Epal.is