Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Side 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.7. 2022 LÍFSSTÍLL DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda. Í Vestmannaeyjum er stórt þróun- arverkefni í gangi sem tengist námi og kennslu grunnskóla- barna. Verkefnið kallast Kveikjum neistann og er samstarfsverkefni skólasamfélagsins í Vestmanna- eyjum, Vestmanneyjabæjar, Há- skóla Íslands, mennta- og barna- málaráðuneytisins, Bókasafns Vestmannaeyja og Samtaka at- vinnulífsins. Rannsóknarsetur um menntun og hugarfar hefur yfirum- sjón með verkefninu fyrir hönd allra þessara aðila og er ætlunin að nálg- ast nám grunnskólabarna með nýj- um leiðum. Verkefnið er mjög yfir- gripsmikið og áætlanir gera ráð fyrir að það verði í gangi í 10 ár. Undirritaðir hafa ásamt fjölmörgum aðilum undirbúið verkefnið og segja má að það fari vel af stað og nem- endur og foreldrar í Vestmanna- eyjum hafa sýnt verkefninu mikinn og jákvæðan áhuga. Verkefnið byggist á hugmyndum undirritaðs (Hermundar Sigmunds- sonar) en hann byggir nálgun sína á vísindalegum kenningum m.a. á sviði lífeðlisfræðilegrar sálfræði en Her- mundur er prófessor við Háskóla Ís- lands sem og við Háskólann í Þránd- heimi á því sviði. Þegar um svo stórt verkefni er að ræða er mikilvægt að kynna sem flestum grunnkenningar sem byggt er á í Kveikjum neistann! Áður hafa pistlar birst hér í Morg- unblaðinu um kenningar Mihaly Csikszentmihalyi og K.A. Ericsson en sá fyrrnefndi kom fram með kenningu um „flæði“ og sá síð- arnefndi um mikilvægi markvissrar þjálfunar (e. deliberate practice) í færniþróun. Formaukning byggð á líkindum Gilbert Gottlieb (1929-2006) er einn þeirra vísindamanna sem leitað er til í Kveikjum neistann-verkefninu. Gottlieb var bandarískur sálfræði- prófessor sem kom fram með sína kenningu, „Formaukning byggð á líkindum“ (e. probabilistic epigenes- is). Kenninguna kom hann fram með árið 1972 og eftir margra áratuga rannsóknir skrifaði Gottlieb mikil- væga grein árið 1998 í tímaritið Psychological Review, en tímaritið er eitt það virtasta í heimi sálfræð- innar. Kenning hans sýnir að í þróun hvers einstaklings eru alltaf mjög sterk tengsl á milli erfða, taugakerf- is, atferlis og umhverfis. Esther Thelen, ein af virtustu vísindamönn- um á sviði þróunarsálfræði, notaði bæði kenningu Gottliebs og Geralds Edelmans um „Neural Darwinism“ til að sýna fram á að þróun ein- staklinga er kröftugt samspil á milli þroska, vaxtar, náms og reynslu. Thelen gaf út bók um kenningu sína árið 1996 sem ber heitið: „A Dyna- mic systems approach to the deve- lopment of cognition at action.“ Mið- að við kenningu Gottliebs er ómögulegt að segja að einstaklingar búi yfir mikilli færni eða þekkingu eingöngu vegna erfða því fleiri þætt- ir verða að koma til þegar byggja á upp færni eða þekkingu. Góðar erfðir hjá Carlsen Mörg dæmi eru til af einstaklingum sem hafa skarað fram úr á tilteknum sviðum og eitt slíkt dæmi er Magnus Carlsen, margfaldur heimsmeistari í skák. Ljóst er að Carlsen býr yfir góðum erfðum sem tengjast þáttum eins og einbeitingu, vinnsluminni, hraða taugaboða og tenginga þeirra en meira hefur þurft til, til að byggja upp færni sem hann býr yfir sem skákmaður. Hann hefur lagt á sig mikla markvissa þjálfun (e. delibe- rate practice) í fjölda ára og í samtali undirritaðs (Hermundar Sigmunds- sonar) við föður hans, Henrik Carl- son, í tengslum við skrif bókar Her- mundar, Ekspertise, kom fram að við 13 ára aldur hafi Magnus Carl- sen stundað markvissa þjálfun í 6.000 klukkustundir og þegar 16. árinu var náð hafði hann þjálfað sig markvisst í 10.000 klukkustundir en þá var hann kominn í hóp fremstu skákmanna heims og gat farið að horfa til heimsmeistaratitils. Ljóst er að Magnus Carlsen hefur mikla þrautseigju (e. grit) en rann- sóknir hafa sýnt að þrautseigja tengist erfðum um 30%-40%. Áreiti frá umhverfi, í gegnum nám og reynslu, hefur svo einnig áhrif á þrautseigjuna (60%-70%). Þá hefur Magnus Carlsen mikla ástríðu (e. passion) fyrir skák og þessi mikla ástríða tengist jákvæðri styrkingu til fjölda ára. Magnus Carlsen er einstaklingur sem hefur þróað með sér gróskuhugarfar en það þýðir að hann sér stöðugt fyrir sér möguleika á að bæta sig og vaxa í skákinni. Einn af lykilþáttum í uppbyggingu þessa skáksnillings er að hann hefur ávallt haft mjög góða leiðbeinendur og kennara á sínum ferli en þar má nefna Simen Agdestein, einn af fremstu skákmönnum Norðmanna áður en Magnus kom fram á sjónar- sviðið, og Garry Kasparov, fyrrver- andi heimsmeistara og einn besta skákmann sögunnar. Réttar áskoranir Góður leiðbeinandi/kennari er eitt það mikilvægasta fyrir einstaklinga sem verða framúrskarandi á ein- hverju sviði. Góður leiðbeinandi/ kennari gefur einstaklingum réttar áskoranir á hverjum tímapunkti í vexti einstaklingins en réttar áskor- anir eru einmitt mjög mikilvægar fyrir velgengni einstaklinga á hvaða sviði sem er. Þessar hugmyndir kristallast einmitt í kenningu Mihaly Csikszentmihalyi um flæði. Góður leiðbeinandi/kennari gefur einnig já- kvæða styrkingu sem eykur horm- ónastarfsemi sem er mikilvæg fyrir alla einstaklinga. Rannsóknir sýna að þegar byggja á upp færni eða þekkingu á aðaláherslan að vera á jákvæða styrkingu, það þýðir að ein- blína á þætti sem ganga vel og geta eflt einstaklinginn á vegferð sinni. Ef einblínt er á neikvæða hluti eykst stresshormónið cortisol og of mikið af stressi er ekki af hinu góða fyrir einstaklinga. Til að ná árangri er einnig mjög mikilvægt að hafa trú á að ná tiltekinni færni/leikni (e. self- efficacy) og mikilvægt er að trúa því að maður geti náð alla leið á toppinn. Rannsóknir hafa sýnt að til að ná að blómstra á einhverju sviði þurfa þessir þættir sem nefndir hafa verið hér að vera til staðar, þ.e. ástríða, þrautseigja, gróskuhugarfar, já- kvæð styrking, flæði og að hafa trú á að komast alla leið. Ef við horfum aftur á Magnus Carlsen þá er ljóst að samspil erfða og umhverfis er lykilþáttur í hans stórkostlega árangri í skák og það eru ekki einungis erfðir sem gera það að verkum að hann hefur náð svo langt sem raun ber vitni heldur eru það allir þessir þættir sem hafa spilað saman sem skipta mestu máli. Ágætt er að vitna í K.A. Ericsson í þessu samhengi en hann sagði: „Ex- perts are always made, not born.“ Gríðarlega mikil áhrif Kenning Gottliebs hefur haft gríðar- lega mikil áhrif á kenningar bæði innan þróunarvísinda (e. develop- mental science) sem og þróunarsál- fræðinnar (e. developmental psycho- logy) og ef kennarar og leiðbeinendur tileinka sér þessar hugmyndir í starfi sínu með börn og unglinga er líklegt að árangur nem- enda verði góður. Í verkefninu Kveikjum neistann er m.a notast við áðurnefndar kenn- ingar og hugmyndir til að efla nem- endur í námi sínu. Auðvitað er ekki verið að gera ráð fyrir að allir nem- endur verði snillingar á einhverjum sviðum en með því að taka þessa hugsun inn í skólastarfið þá er það trú okkar að við náum að efla grunn- færni allra nemenda og að auka vel- líðan nemenda þegar þeir fá tæki- færi til að finna sína ástríðu og efla sig í henni með gróskuhugarfar í far- teskinu. Hermundur Sigmundsson, prófessor við Norska tækni- og vísindaháskólann og Rann- sóknarsetur um menntun og hugarfar, Há- skóla Íslands. Einar Gunnarsson, aðstoðarskólastjóri við Grunnskólann í Vestmannaeyjum. Gottlieb – mikilvæg kenning um þróun AFP Hermundur Sigmundsson hermundur@hi.is Einar Gunnarsson Vísindi og samfélag Ljóst er að Magnus Carlsen býr yfir góðum erfðum sem tengjast þáttum eins og ein- beitingu, vinnsluminni, hraða taugaboða og tenginga þeirra en meira hefur þurft til, til að byggja upp færni sem hann býr yfir sem skákmaður.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.