Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Side 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Side 29
The Rain People árið 1969 en Cop- pola skrifaði bæði handritið að myndinni og leikstýrði. Efasemdir um Al Pacino Coppola var ánægður með sinn gamla skólabróður og þegar Cop- pola fór að undirbúa stórvirkið Guð- föðurinn sá hann James Caan fyrir sér sem Sonny Corleone. Fljótlega fékk Coppola nokkra leikara til að koma saman til að lesa handritið. Hann vildi fá Marlon Brando í hlut- verk föðurins, Caan sem Sonny og Al Pacino sem yngsta soninn Mich- ael. Sú varð niðurstaðan eins og kvikmyndaunnendur vita. Caan sagði hins vegar frá því í viðtali að framleiðendur mynd- arinnar hafi viljað vera með puttana í leikaravalinu. Um tíma hafi þeim ekki litist nógu vel á Al Pacino af einhverjum ástæðum og í undirbún- ingsferlinu hafi Caan verið farinn að lesa fyrir hlutverk Michaels Cor- leone. Hvernig hefði kvikmyndasag- an þróast ef það hefði orðið ofan á? Auk þess voru framleiðendur ekki hrifnir af Marlon Brando enda var hann ekki allra eins og þekkt er. Þess má geta að Caan studdi Cop- pola í því að Al Pacino fengi hlut- verk Michaels Corleone. Francis Ford Coppola vissi hins vegar hvað hann vildi og varð ofan á í þessari deilu. Hann vildi að yngsti sonurinn hefði yfir sér ítalskt yfirbragð eins og Pacino en að Sonny yrði meiri New York-týpa eins og Caan. James Caan fékk til- nefningu til Óskarsverðlauna fyrir túlkun sína á Sonny árið 1973 en Al Pacino og Robert Duvall voru einn- ig tilnefndir fyrir frammistöðu sína í Guðföðurnum. Marlon Brando hlaut Óskarinn fyrir besta leik í að- alhlutverki. „Myndirnar hans og hlutverkin sem hann tók að sér munu aldrei gleymast,“ sagði Coppola eftir að Caan lést en Coppola er 83 ára. Ánetjaðist kókaíni Eftir myndirnar um Guðföðurinn voru leikararnir í myndunum í hæstu hæðum en ferill Caan átti eftir taka dýfur á milli. Hann hafn- aði hlutverkum í nokkuð mörgum myndum sem áttu eftir að ganga vel. Má þar nefna One Flew Over the Cuckoo’s Nest, Kramer vs Kra- mer, Apocalypse Now og Superm- an. Árið 1981 kom út myndin Thief í leikstjórn Michael Mann og Caan þótti mjög vænt um þá mynd. Sagð- ist hann vera stoltastur af henni fyrir utan myndirnar um Guðföð- urinn. Mann minntist Caan í vik- unni. „Mér þótti mjög vænt um hann og elskaði að vinna með hon- um,“ var meðal annars haft eftir Mann. Í hönd fór hins vegar tími sem var erfiður fyrir Caan. Á árunum 1982-1987 var hann háður kókaíni og gekk illa að vinna úr dauðsfalli systur sinnar. Caan náði sér hins vegar aftur á strik í leiklistinni og eftir 1990 lék hann í fjölda mynda og sjónvarpsþátta. Hann sýndi á sér nýja og léttari hlið sem gam- anleikari en var áður þekktastur sem skapgerðarleikari með munn- inn fyrir neðan nefið. Sú mynd sem naut hvað mestrar velgengni á seinni hluta ferilsins var jólamyndin Elf þar sem Caan lék á móti Will Farrell. Á listanum yfir allar þær myndir sem Caan lék í á síðari hluta ferils- ins leynast athyglisverðar myndir. Til dæmis The Program sem virðist nánast gleymd en vakti nokkuð um- tal á sínum tíma. Þar leikur hann þjálfara eins sterkasta háskólaliðs Bandaríkjanna í ameríkum fótbolta. Þar er Caan afskaplega trúverð- ugur enda hafði hann mikinn áhuga á íþróttinni. Giftist fjórum sinnum James skildi eftir sig fimm börn. Hann kvæntist fjórum sinnum á lífsleiðinni og skildi jafn oft. Hann var giftur Dee Jay Mathis frá 1960 til 1966, Sheilu Marie Ryan frá 1976 til 1977, Ingrid Hajek frá 1990 til 1995 og Lindu Stokes frá 1995 til 2017. Síðasta hjónabandið entist því lengst. Sheila Marie Ryan hafði áður verið kærasta kóngsins sjálfs Elvis Presley en með henni eignaðist Ca- an soninn Scott Andrew Caan. Sá hefur einnig farið út í leiklistina og lék í þáttunum Hawaii Five-O í ára- tug. Hann var einnig í Oceans- myndunum. AFP 17.7. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 EDRÚ Þrjátíu ár eru liðin frá því bandaríska þungarokkshljóm- sveitin Megadeth sendi frá sér plöt- una Countdown to Extinction. Kom hún í framhaldi af Rust in Peace sem hlaut góða dóma árið 1990. Í tilefni tímamótanna ræddi tíma- ritið Rolling Stone við söngvarann Dave Mustaine. Segist hann hafa verið nýhættur í drykkju og fíkni- efnaneyslu þegar Rust in Peace var gerð. Hann hafi verið orðinn býsna skýr í kollinum þegar kom að því að gera Countdown to Extinction. Var orðinn skýr í kollinum Dave Mustaine á Íslandi árið 2005. Morgunblaðið/Sverrir BÓKSALA 6.-12. JÚLÍ Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Leyndarmálið Kathryn Hughes 2 500 mílur frá mér til þín Jenny Colgan 3 Iceland in a Bag Ýmsir höfundar 4 Indepentent People Halldór Laxness 5 Liðin tíð Lee Child 6 Hanni granni dansari Gunnar Helgason 7 Ofsóttur Bill Browder 8 Nágrannavarsla Unni Lindell 9 Nætursöngvarinn Johanna Mo 10 Enginn heimilisgyðja Sophie Kinsella 1 Sjöunda Davíðsbók – ljóð af léttara tagi Davíð Hjálmar Haraldsson 2 Allt og sumt Þórarinn Eldjárn 3 Ég er nú bara kona Embla Rún Hakadóttir 4 Blástjarna efans Valdimar Tómasson 5 Meinvarp Hildur Eir Bolladóttir 6 Tíminn á leiðinn Steinunn Sigurðardóttir 7 Þykjustuleikarnir Anton Helgi Jónsson 8 Ljóðasafn Vilborgar Vilborg Dagbjartsdóttir 9 Ekki var það illa meint Hjálmar Freysteinsson 10 Umframframleiðsla Tómas Ævar Ólafsson Allar bækur Ljóðabækur Áhugi minn á bókalestri vaknaði þegar amma mín heitin dró mig ungan með sér í gamla bókasafnið í Keflavík, eða í Lestrarfélagið eins og hún kallaði það jafnan. Þar kynntinst ég fyrst ævintýraveröld bóka og hvernig sögur geta opnað fyrir manni nýjar víddir og göfgað andann. Í dag á ég líklega óhóflega mikið af bókum, en mér finnst ég aldrei hafa nægan tíma til lesturs, því hef ég undanfarið hlustað í meira mæli á hljóðbækur og yf- irleitt á tvöföldum hraða svo ég komist yfir fleiri bækur en ella. Ég hef mjög fjölbreyttan áhuga og les nánast hvað sem er. Undanfarna daga hef ég dvalið með fjölskyldunni minni í ítalska klaustrinu Abbazia San Faustino en íslensk hjón reka þar hótel. Klaustrið er frá 14. öld og algjör ævinýraheimur. Það hefur því ver- ið einstaklega viðeigandi að lesa Í nafni rósarinnar eftir Umberto Eco. Sagan á sér einmitt stað í ítölsku klaustri árið 1327 og átti ég því auð- velt með að lifa mig inn í frásögn- ina. Í bókinni Leonardo da Vinci eft- ir Walter Isaacson, er ævi þessa merka vísinda- og listamanns gerð ítarleg skil. Hugvit og sköp- unargáfa Leonardos var einstök. Bókin minnir á mikilvægi þess að efast um allt, vera endalaust for- vitinn, leita sífellt að nýrri þekk- ingu og hugsa út fyrir kassann sem er í mínum huga hornsteinn fram- fara. Dune eftir Herbert Frank er ein merkasta vísindaskáldsaga sem gefin hefur verið út, enda má sjá áhrif þessarar bókar í Star Wars, Game of Thrones og mörg- um öðrum stórvirkjum. Ég var rétt í þessu að klára Children of Dune sem er þriðja bókin í Dune- seríunni. Þar fléttast inn í söguna hvernig breytt loftslag getur haft hörmulegar afleiðingar fyrir efna- hag plánetunnar, eitthvað sem við tengjum við í dag. American dirt eftir Jeanine Cummins er bók sem ríghélt mér og ég kláraði í einni beit. Sagan veitir sannfærandi og ein- staka innsýn í líf fólks sunnan landamæra Bandaríkjanna, sem er tilbúið að fórna öllu fyrir von um nýtt og betra líf. Ég hef gaman af að lesa bækur sem horfa til framtíðar. Hvað ger- ist þegar tölvur og vélar verða greindari en mannfólk? Verður líf- ið hér á jörð betra? Eða munu ör- lög mannkyns ráðast alfarið af að- gerðum tölva? Nick Bostrom veltir þessu m.a. fyrir sér í bókinni Superintelligence. Mjög áhuga- verð bók sem minnir okkur á að við þurfum að vera sérlega með- vituð um þær hættur sem fylgja því að vélar verði ofurgreindar. Að lokum verð ég að nefna bók- ina 1984 eftir George Orwell sem er líklega mín uppáhaldsbók, af- skaplega vel skrifuð og sterk pólitísk ádeila. Ég las hana fyrst þegar ég var 14 ára og í kjölfarið sá ég heiminn í öðru ljósi. HAUKUR INGI ER AÐ LESA Les nánast hvað sem er Haukur Ingi Guðnason er sálfræðingur og starfar hjá Sidekick. ÞARMAFLÓRAN Í FORGRUNNI meðPROBI®mjólkursýrugerlum “Probi ® Family eru bragðgóðar tuggutöflur ætlaðar allri fjölskyldunni frá þriggja ára aldri” - Caroline Montelius PhD, hjá Probi AB í Svíþjóð

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.