Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Síða 12
N okkur atriði, sem geymst hafa, sum
trúlega brengluð, í huga pilts, sem
var á níunda ári sumarið 1940,
þegar breskur her settist að á Íslandi.
Hann er nú 83 ára, og er að dunda við
að skrifa Flugsögu, slitrótt ágrip af sögu
þeirrar áráttu manna að ferðast í lofti,
sem Bókaútgáfan Hólar mun gefa út á
þessu ári. Að ósk ritstjóra Víkings
eru hér birtar nokkrar línur úr Flug-
sögunni.
Enskur her var varla (eða ekki) stiginn
á land í Reykjavík 10. maí 1940 þegar há-
vær Walrus-flugvél birtist yfir borginni,
og fór talsvert fyrir ferðum slíkra véla í
upphafi hersetunnar. Um ferðir þeirra yfir
aðra landshluta veit ég ekki, og grunur
leikur á að ofsagt sé að „slíkar vélar” hafi
verið yfir Reykjavík. Margt bendir nú til
þess að þetta hafi alltaf verið sama flug-
vélin, sem flogið hafi yfir, horfið svo úr
sjónmáli og komið aftur úr sömu eða
annarri átt. Miðað við önnur umsvif Þjóð-
verja um þessar mundir áttu Bretar von á
að þeir hefðu áform um að elta þá hingað,
og þeir reyndu að gera sem mest úr eigin
viðbúnaði í von um að Þjóðverjar létu
blekkjast.
Annað dæmi, sem þetta varðar:
Ég átti heima í Austurbæjarskóla, þar
sem faðir minn var skólastjóri, og nokkrir
gluggar á íbúðinni sneru suður að Skóla-
vörðuholti. Þar risu síðar Iðnskólinn
(eins og hann þá hét), Hallgrímskirkja og
Templarahöllin, en var þá braggahverfi.
Örskammt sunnan við skólann gnæfðu
ógnvekjandi hlaup á loftvarnabyssum.
Búist var við loftárásum, og húsnæði á
jarðhæðum eða í kjöllurum var víða
breytt í loftvarnabyrgi, þar sem borgar-
búum var skylt að leita skjóls ef sírenur
væru þeyttar slitrótt til marks um árásar-
hættu. Háskinn var síðan blásinn af með
óslitnu hljóðmerki. Í hlutum af jarðhæð
Austurbæjarskóla voru loftvarnabyrgi, þar
sem gluggar voru byrgðir hlerum eða
sandpokum. Þar leituðum við skjóls
nokkrum sinnum framan af stríðinu. Við
vitum nú, að margar þær þýsku flugvélar
sem hér birtust – Heinkel-111 sprengju-
flugvélar – voru hingað sendar frá Þránd-
heimi til að ljósmynda umsvif óvinanna
og höfðu ekki flug- og burðarþol til að
Örnólfur Thorlacius
Flugvélar fórust
yfir Reykjavík
Walrusvél í Strandgötu á Akureyri.
12 – Sjómannablaðið Víkingur
SEINNI HEMSSTYRJÖLDIN 1939-1945