Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Side 14
flytja sprengjufarm ásamt bensíni til
heimferðar.
Fyrsta þýska flugvélin flaug hér um
áður en viðvörunarkerfið varð virkt, svo
engar sírenur gullu. Ég var þá á níunda
ári og sá út um suðurglugga tveggja
hreyfla flugvél á hraðri ferð hátt uppi,
og allt í kringum hana „sprungu út“
svartir blettir, sem mér var sagt að verið
hefðu eftir skot úr loftvarnabyssum Breta.
Ekki greindi ég neitt hljóð með þessu
sjónarspili.
En byssurnar við húsvegginn?
Á árum síðari heimsstyrjaldar var alltaf
talsvert um herflugvélar hér. Auk fastra
„heimaflugvéla,“ einkum orustuflugvéla,
var talsverður straumur flugvéla með við-
komu hér á leið yfir Atlantshaf, einkum á
Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvelli, þar
sem tekið var bensín og farið yfir flug-
vélarnar. Mest var þessi umferð frá því
ákvörðun var tekin um innrás í Norm-
andí. Flugmenn voru fæstir kunnugir að-
stæðum hér, margir auk þess nýútskrifað-
ir úr flugskóla. Flugvélar voru líka margar
nýjar og „ótilkeyrðar,“ svo búast mátti við
einhverjum verksmiðjugöllum. Miðað við
þessa váboða var flugumferðin hér á stríð-
sárunum furðu snurðulítil. Höfundur tók
einu sinni eftir amerískri tveggja hreyfla
Hudsonflugvél sem kom utan af hafi, og
gekk á öðrum hreyflinum, þar sem aðeins
önnur skrúfan hreyfðist. Hún hvarf svo
innan um húsin á Skildinganesinu og rétt
á eftir gaus upp svartur reykur. (Þetta
mun hafa verið vorið 1942.) Flugvélin,
sem hafði flogið of lágt eða misst jafnvægi
út af vélarbiluninni, sópaði hluta af þaki
af einu húsi og stakkst niður í það næsta,
sem brann með flugvélinni. Engin slys
urðu á íbúum, enda enginn heima, en
áhöfn flugvélarinnar hlýtur að hafa farist.
Sömu örlög hlaut áhöfn annarrar Hud-
sonflugvélar, sem flaug yfir Háskólann
til lendingar en skall niður, trúlega þar
á milli, sem nú standa styttan af séra
Sæmundi á selnum og Norræna húsið.
Vel hefur logað í flakinu, sem lá á slysstað
nokkra daga áður en það var fjarlægt, því
taumar og pollar af storknuðu áli lágu út
frá bolnum. Í fullmannaðri Lockheed
Hudson sprengjuflugvél voru átta í áhöfn.
Verið getur að færri hafi verið í flugvélum
á ferjuflugi yfir Atlantshaf á leið á víg-
stöðvar í Evrópu, en tæplega hafa þeir
verið færri en þrír.
Fóru snattferð norður
Hernaðaryfirvöld höfðu strangar gætur á
því að íslenskir fjölmiðlar greindu í engu
frá umsvifum herja þeirra. Mátti ætla að
þau teldu að Abwehr, leyniþjónusta þýska
hersins, væri áskrifandi að Morgunblað-
Loftvarnarbyrgi voru víða í borginni, til dæmis í nágrenni Dómkirkjunnar, þar sem myndin er tekin við lok minningarguðsþjónustu um Franklyn D. Roosevelt forseta í
apríl 1945.
Einhversstaðar á þessu svæði skall Hudsonflugvélin niður. Háskólabyggingin er í fjarska. Reykjavíkur-
flugvöllur nær.
14 – Sjómannablaðið Víkingur
www.beita.is Ægisgata 2, 240 Grindavík s. 581-2222
MEIRA EN BARA BEITA
Voot beita selur hágæða beitu fyrir allar stærðir línubáta ásamt
veiðarfærum og ýmsum aðföngum og leggur mikla áherslu á
að mæta kröfum viðskiptavina sinna með traustri og vandaðri
þjónustu
Beita Veiðarfæri Aðföng
Afgreiðum vörur um allt land samdægurs
Hafðu samband nuna!
SEINNI HEMSSTYRJÖLDIN 1939-1945