Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Qupperneq 16
inu og fylgdist með fréttum Ríkisútvarps-
ins. Fyrir vikið mátti stundum lesa eða
heyra annarlegar fréttir, þar sem hluta
efnisins hafði verið stungið undir stól til
að styggja ekki herstjóra. Í Reykjavíkur-
dagblaði kom fram í lýsingu á eldsvoðan-
um af völdum flugvélarinnar, sem brann á
húsinu á Skildinganesi við Skerjafjörð, að
upptök eldsins væru ókunn, eldur hefði
ekki borist til annarra húsa, en gat hefði
komið á þak næsta húss. Með breska her-
námsliðinu komu 18 stórar orustuflugvél-
ar (eða litlar sprengjuflugvélar, eftir því,
hvernig á það er litið), Fairey Battle.
Þetta hafa verið framúrstefnuflugvélar
þegar þær komu fyrst fram 1936, einþekj-
ur úr málmi yst sem innst, með áhöfn
undir lokaðri glerhvelfingu og drógu upp
hjólin á flugi, en voru á örfáum árum
orðnar hálfgerðir forngripir, sem flug-
menn á þýsku Messerschmitt 109 flug-
vélunum léku sér að eins og kettir að
músum í orustunni um Frakkland. En
hér voru engar þýskar orustuflugvélar og
Battle-flugvélarnar hafa trúlega mest verið
í hlutverki kattarins við kafbátaleit og
-veiðar suður af landinu, enda með bæki-
stöðvar skammt frá ströndinni, á Kald-
aðarnesi nærri Selfossi.
Árið eftir komu Breta til landsins, eða
23. maí 1941, flugu nokkrar Fairey
Battle flugvélar snattferð norður í land,
líklega til að kanna aðstæður víðar í þessu
landi, sem þeir höfðu hernumið, og sér í
lagi að kynna nýjum RAF-generáli, odd-
vita flughersins hér, umráðasvæði sitt.
Lent var og flogið upp frá Melgerðismel-
um sunnan Akureyrar, en þaðan og þang-
að var sambandi haldið við höfuðborg
Norðurlands á ill- og stundum ófærum
vegum.
Battle-flugvél, auðkennd P2330 í RAF,
flaug hinn 26. maí 1941 frá Melgerðis-
melum norður til Akureyrar, hækkaði sig
hringsólandi yfir borginni og tók svo
kompásstefnu á Kaldaðarnes. Í henni
voru fjórir ungir breskir flugliðar. En flug-
vélin kom aldrei til Kaldaðarness og lengi
vissi enginn, hvað um hana varð.
Nær 40 árum síðar, 1980, fór Hörður
Geirsson, síðar forstöðumaður Flugsafns
Íslands á Akureyri, að grennslast fyrir um
afdrif P2330, og að lokum fannst flakið
21. ágúst 1999 í smáhvilftarjökli utan í
fjallshlíð á Tröllaskaga og hefur síðan ver-
ið vitjað nokkrum sinnum. Erfitt er að
komast að staðnum, þar er aðeins snjó-
laust um hásumar, og leifar flugvélarinnar
koma út úr jöklinum í smáskömmtum,
sumir illa farnir. Leifum mannanna, sem
fórust með flugvélinni, hefur verið búinn
legstaður í hermannagrafreit í Fossvogs-
kirkjugarði.
Með breska hernámsliðinu komu 18 stórar orustuflugvélar (eða litlar sprengjuflugvélar, eftir því, hvernig á það
er litið), Fairey Battle. Myndin sýnir eina slíka.
Northropvél yfir Íslandi.
16 – Sjómannablaðið Víkingur
SEINNI HEMSSTYRJÖLDIN 1939-1945