Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Síða 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Síða 23
Sjómannablaðið Víkingur – 23 S einni heimsstyrjöldin byrjaði með stórum hvelli. Þjóð- verjar ruddust inn í Pólland. Litlu síðar lögðu Sovétríkin þeim lið og mátti vart á milli sjá hvorir voru öflugri í voðaverkunum, þýskir eða sovéskir. En svo gerðist hið furðu- lega. Þegar Pólverjar höfðu verið brotnir á bak aftur, haustið 1939, féll allt í dúnalogn. Í heilan vetur héldu herir stórþjóð- anna sig til hlés og biðu í ofvæni. Þannig var upphaf mann- skæðustu styrjaldar allra tíma sem kostaði 50 til 85 milljónir kvenna, karla og barna lífið. Sápugerðarmeistari handtekinn Þetta er þó ekki alveg kórrétt. Á landi voru menn vissulega til friðs veturinn 1939 og ´40 en á hafinu giltu önnur lögmál. Þar var háð grimmilegt stríð frá fyrsta degi. Við ætlum þó ekki að fylgja því eftir frá upphafi heldur grípa niður í atburðarásina sumarið 1940. Danmörk og Noregur eru fallin í hendur Þjóðverj- um og hakakrossinn blaktir yfir höfuðsetri vestrænnar siðmenn- ingar, sjálfri höfuðborg Frakklands, París. Í norðri hafa Bretar hertekið Ísland og eru í önnum við að smala saman Þjóðverjum sem hafa tekið sér bólfestu á eyjunni. Við skulum fylgja einum þeirra eftir. Sá hét Frank Ludwig Hüter, var sápugerðarmeistari og bjó á Akureyri þar sem hann hafði ráðið ríkjum síðan 1933 í Sápuverksmiðjunni Sjöfn. Hüter var giftur Margarete Bahr – sem næstu árin kallaði sig Margréti Eiríksdóttur – og átti dóttur sem var rétt í þann veginn að verða tveggja ára þegar sveit breskra hermanna bankaði upp á hjá þeim hjónum. Um þennan örlagaríka dag sagði Margarete löngu síðar: „Þeir voru með byssur undir hand- leggjum eins og búist væri við mót- spyrnu. Margar klukkustundir fóru í yfirheyrslur, rótað var í öllum okkar pappírum og einnig öllum bókum, og læstar ferðatöskur voru brotnar upp án þess að biðja um lykla. Síðan fóru þeir með manninn minn niður í kaupstað- inn og settu hann í varðhald á Hótel Gullfossi. Næstu tvo daga fékk ég að tala við hann í 15 mínút- ur að þýskumælandi liðsforingja nærstöddum. Síðan var hann sendur til Reykjavíkur og var settur ásamt öllum hinum föngunum um borð í skip, sem skyldi fara til Kanada.“ Gróflega ofhlaðið Skipið hét Arandora Star og hafði oft komið til Íslands fyrir stríð með skemmtiferðamenn. Fljótlega eftir að ófriðurinn skall á tók enska flotamálaráðuneytið skipið í sína þjónustu. Í endaðan maí 1940 var Arandora send til Noregs að bjarga breskum, frönskum og pólskum hermönnum sem farið höfðu halloka fyrir Þjóðverj- um. Hún átti eftir að gegna sama hlutverki við Frakklands- strendur. Í endaðan júní eða byrjun júlí 1940 lagði Arandora Star upp í sína hinstu siglingu. Um borð voru nálega 1300 þýskir og ítalskir fangar sem Kanadamenn höfðu fallist á að taka í sína vörslu. Þeirra gættu 200 verðir en í áhöfn skipsins voru 174. Alls voru þetta tæplega 1700 manns en Arandora var byggð fyrir 354 far- þega sem að vísu áttu allir að lifa eins og blóm í eggi um borð. Engu að síður var skipið freklega ofhlaðið. Skipstjórinn mót- Arandora og „þýskir“ Íslendingar Úfið Atlantshaf. S.S. Arandora Star var lúxus-skemmtiferðaskip, sjósett 1927. Þá tæplega 13.000 tonn en var tveimur árum síðar stækkuð í 14.694 tonn og státaði þá af tennisvelli og sundlaug. Eigandi var skipafélagið Blue Star. Myndin er af skipinu á Pollinum við Akureyri.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.