Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Qupperneq 24
24 – Sjómannablaðið Víkingur
mælti en árangurslaust. Það var stríð og Bretum lá á að losna við
þessa menn sem flestir voru grunaðir um að vera nasistar, að
minnsta kosti Þjóðverjarnir, og varasamir undirróðursmenn.
Svo var siglt af stað.
Notuðu hnefana - eða hvað?
Heima á Íslandi vissi enginn neitt um hið nýja hlutverk Arand-
oru Star. Þar mundu menn aðeins hið glæsta skemmtiferðaskip
sem hafði svo oft glatt auga landans. Í byrjun júlí þetta örlagaríka
sumar 1940 breyttist þetta. Þá birtu öll helstu blöð landsins frétt
um árás sem Arandora hafði orðið fyrir. Skipið væri sokkið og
mannfall gífurlegt. Þýski kafbátsforinginn Prien hefði staðið fyrir
ódæðinu. Sá hinn sami og í október 1939 gat sér orð fyrir að
sigla inn í aðalflotastöð breska heimsveldisins á Scapaflóa og
sökkva Royal Oak og drepa ríflega 800 manns af 1234 manna
áhöfn orrustuskipsins.
Þetta allt vissu íslensku blöðin. Morgun-
blaðið vitnaði meira að segja í Churchill sem
hefði farið viðurkenningarorðum um Prien
fyrir „hugdirfsku og dugnað“ en nú hefði
siðferðinu eitthvað hrakað hjá honum, hafði
blaðið eftir ónefndum Bretum.
Blöðin fluttu býsna nákvæmar fréttir af
örlögum Arandora Star og bar þeim öllum
saman um að fangarnir hefðu misst stjórn á
sér og ruðst „í áttina til björgunarbátanna og
segja menn, sem af komust, að Þjóðverjar
hafi hrundið Ítölunum harkalega frá og not-
að hnefana óspart“, sagði Morgunblaðið og
hafði eftir breskum yfirvöldum.
En sannleikanum er oft hætt og þó aldrei
eins og þegar þjóðir takast á. Magnús Þór
Hafsteinsson kannaði þessa frásögn í bók
sinni, Tarfurinn frá Skalpaflóa, sem kom út í fyrra, og skrifaði
eftirfarandi: „Engin ofsahræðsla braust út. Það bar ekkert á slags-
málum við að komast frá borði áður en skipið færi niður.“
„Íslensku“ Þjóðverjarnir
Manntjón varð hins vegar geypilegt. Um 800 manns fórust eða
tæplega helmingur allra um borð. Meðal þeirra voru Þjóðverjar
sem Bretar höfðu handtekið á Íslandi. Blöðin veltu vöngum um
hverjir þessir menn væru og voru nefnd þrjú og jafnvel fjögur
nöfn í því sambandi. Síðla í ágúst kom blaðið Vísir með svarið
þegar það birti útdrátt úr bréfi sem heildsalinn Heiny Scheither
skrifaði heim til Íslands.
Scheither var einn „íslensku“ Þjóðverjanna um borð í Arand-
ora. Hann hafði komist á fleka og hrakist um á köldu hafinu í
átta eða níu klukkustundir áður en hjálpin barst. Í bréfi sínu
Ógnvaldur Atlantshafsins. Að minnsta kosti í augum bandamanna.
SEINNI HEMSSTYRJÖLDIN 1939-1945
Friðrik A. Jónsson ehf
Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ
S: 552 2111 - www.faj.is
Siglinga-, fiskileitar- og rafeindatæki
Tækin í brúnna frá FAJ
Fyrir allar stærðir skipa og báta
CM599 breiðbands
chirp botnstykki
48, 64 og 72 Nm drægni
Minni útgeislun
Lengri drægni
Samstundis virkni
Afburðar aðgreining
Sýnir mörg MARPAmerki í einu
HALO Breiðbands púls radar
Ný tækni frá SIMRAD
Þrívíddar plotter
Botnharka
3Dmynd af botni
Siglingaleiðir
Straumgögn
Sjávarhiti
Xenon Ískastarar og LED flóðljós
AP sjálfstýringar
5" skjár.
Follow Up,
Non Follow,
QuickStick,
fjarstýringar
(útistýri)
Innfellanlegt.
Stýring fyrir allt að
sex hliðarskrúfur.
SIMRAD GO7
Vandaður sambyggður
kortaplotter og
dýptarmælir.
• Innanskips-
samskipti
• Handstöðvar
• Hjálmaheadset
• GMDSS
neyðarstöðvar
• IP stöðvar með
duplex samskipti
SIMRAD BSM 3
Nákvæmur
breiðbands chirp
sendir.