Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Side 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Side 26
26 – Sjómannablaðið Víkingur H inn 10. janúar 1940 villtist flugmaður þýskrar Mess- erschmitt Bf108 könnunar- og snattflugvélar inn yfir Belgíu, sem þá var hlutlaust ríki. Eitthvað kom fyrir flugvélina, sem eyðilagðist í nauðlendingu, en flugmaðurinn, Erich Hoenemanns majór, og farþegi hans, Helmut Reinberger majór, skriðu heilir út úr flakinu. Þetta hefði vart talist til tíð- inda nema af því að síðarnefndi majórinn hafði í tösku sinni nákvæma tilskipun um vestursókn þýska hersins yfir Niðurlönd og þaðan til Frakklands. Hann reyndi að brenna skjalið en það náðist heilt og afrit var sent yfirvöldum allra landa er málið varðaði. Tildrög þessa flugs voru eftirfarandi og sýna vel hvernig lítil þúfa getur stundum velt stóru hlassi. Reinberger majór hafði átt fyrir höndum þreytandi ferð með járnbrautarlest frá Münster til Kölnar, þar sem þinga átti um plaggið og herferðina sem í henni var lýst. Hoenemanns flugstjóri, sem bjó í Köln, sá þarna tylliá- stæðu til að koma óhreinum fötum í þvott til konu sinnar og taka jafnframt ómakið af vini sínum Reinberger og fljúga með hann á fundinn. Majórinn lét freistast þótt hann vissi að bannað var að ferðast flugleiðis með þannig hernaðarleyndarmál. Hoene- manns og Reinberger voru báðir fjarverandi dæmdir til dauða af þýskum herrétti. Verður raunar ekki séð hver sök flugstjórans var, því honum var ekki kunnugt um farangur farþega síns. Eina dauðsfallið, sem tengt verður þessu máli, var fráfall konu flugstjórans, Hoenemanns majórs, en hún lést af völdum yfir- heyrslu hjá Gestapo. Skjalið olli víða fjaðrafoki í herbúðum Bandamanna. Frakkar töldu það blekkingu en Churchill tók mark á efni þess. Þjóðverj- ar seinkuðu innrásinni og breyttu sóknaráformum sínum að kröfu Hitlers. Örnólfur Thorlacius Mechelen-uppákoman Messerschmitt Bf108. Í svona vél flugu þeir félagar og majórarnir, Hoenemanns og Reinberger, og höfðu með í tösku öll plögg um væntanlega árás Hitlers á Niðurlönd og Frakkland. Flugferðin endaði í Belgíu. Benedikt Sæmundsson vélstjóri var lengi hjá Útgerðarfélagi Akureyringa, eða alls í ein 37 ár. Hann var einn þeirra sem náði í Svalbak nýjan 1949 og var síðan í fáein ár á skipinu. Eitt sinn hitti hann ritstjóra vorn að máli og rifjaði upp eftirleik stríðsár- anna sem hefði hæglega getað farið ver: „Við vorum úti á Hala. Ég var að koma af vaktinni einmitt í því bili sem verið var að hífa pokann um borð. Mér fannst það ganga eitthvað hægt og hef orð á því við Jónas Þorsteinsson en þetta var í fyrsta skiptið sem hann var með skipið. Þorsteinn skipstjóri [Auðunsson] var í fríi. Það er svona mikið grjót í pokanum, segir Jónas. Loksins ná þeir pokanum um borð en hann var þá búinn að berjast margoft utan í skipshliðina. Þegar leyst er frá veltur þessi járnhlunkur niður á dekkið, skjöldóttur og ljótur, Við sjáum strax að þetta er tundurdufl. Karlarnir binda duflið fast og Jónas siglir inn á Prestabótina við Ísafjörð. Þar var þá fyrir varðskipið María Júlía og sprengjusérfæðingur um borð er gerði duflið óvirkt. En það fannst mér alltaf mesta furða að við skyldum lifa til að segja frá eins og tundurduflið var búið að berjast utan í skipið þegar við vorum að baksa pokanum inn .“ Þegar Svalbakur fékk duflið í vörpuna María Júlía var með sprengjusérfræðing um borð. Ljósmynd: Landhelgisgæslan Svalbakur EA 2 kemur til löndunar. SEINNI HEMSSTYRJÖLDIN 1939-1945

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.