Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Qupperneq 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Qupperneq 28
28 – Sjómannablaðið Víkingur É g ætla að rifja upp kynni mín af tólf togaraskipstjórum sem ég var með áður en ég varð sjálfur togara- skipstjóri. Það var þeim öllum sam- eiginlegt að vera sannir heiðursmenn. � Sá fyrsti er Karl Jónsson skipstjóri á b/v Skutli. Það heyrðist lítið í honum nema þegar sæmilegt hol var á síðunni. Þá hafði hann hátt, hærra en nokkur annar sem ég hef verið með. Mér er minnisstætt þegar tundurdufl flaut upp í skvernum og hann lét halda því frá síðunni með hökum meðan netið var skorið í kringum duflið með sveðjum sem bundnar voru á hakaenda. Ég er viss um að flestir hefðu heldur höggvið frá sér trollið. � Næstur er Sigurður Eyleifsson. Hann var skipstjóri á Skutli í fyrstu siglingunni sem ég fór á Skutli. Sigurður var ákaflega skemmtilegur brandarakarl. Í þessari sigl- ingu var líka Arinbjörn sonur hans og var þetta líka fyrsta sigling hans. Ferðinni var heitið til Fleetwood. Þegar við komum í sundið milli „Torr og Southend“ (Írska kanalinn) heimtaði Sigurður að við Arin- björn færum frammá hvalbak og slægjum skaufanum við rekkverkið. Hann sagði þetta gamlan sið þegar farið væri í fyrsta sinn gegnum kanalinn eða Pentilinn. Við þrjóskuðumst fyrst við en fórum að lok- um frammá og framkvæmdum verknað- inn við mikinn fögnuð karlanna. � Næsti skipstjóri er Hannes Pálsson á b/v Ingólfi Arnarsyni. Hannes var slyngur aflamaður. Uppáhalds breiðan hans var grunnt út af Svörtuloftum. Hann var eini skipstjórinn sem kallaði mig upp í brú og hældi mér fyrir vel unnið verk. Við vorum út af Svörtuloftum. Það var gott hol á síðunni. Vindur var hægur en stór undiralda. Þá gerist það að þegar búið er að taka fyrsta pokann og pokan- um er slakað niður aftur að um leið og talíunni er krækt úr rennur pokinn yfir borðstokkinn og þá í eina skiptið heyrði ég Hannes öskra: „Hífið í stertinn, hífið í stertinn.“ Hann hélt að pokinn væri opinn en ég hafði hnýtt fyrir án þess að hann tæki eftir því. Hann kallaði mig upp í brú, tók í höndina á mér og sagði: „Þú varst snöggur að hnýta fyrir pokann. � Næsti skipstjóri er Auðunn Auðunsson. Hann leysti Hannes af einn túr vorið 1948. Mér fannst Auðun alltaf vera í þungum þönkum. Ég sá hann aldrei brosa. Við erum á Halanum. Það er logn og blíða. Það er búið að sleppa rópnum. Ég stend við borðstokkinn og tek eftir því að þegar sett er á ferð þá fer skipið í bak- borða en við vorum að láta stjórnborð- strollið fara. Það skipti engum togum. Trollið fer beint í skrúfuna. Stýrið hafði verið hart í bak en ekki í stjór. Því fór sem fór. Það var mikið basl fram undan. Þræða þurfti vír undir skipið og törna vélinni Ragnar Franzson tólf skipstjórar Greinarhöfundur og Jónas Þorsteinsson árið 2010. Ljósmynd: Jón Hjaltason Í aðgerð. En þekkja lesendur skipið? Kannski það fjær líka? Netjið á jonhjalta@simnet.is Ljósmynd: Ásgrímur Ágústsson

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.