Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Síða 30
30 – Sjómannablaðið Víkingur
og það var ekki fyrr en eftir rúman sólar-
hring að við náðum trollinu úr skrúfunni.
Það má segja um Auðun að fall er
fararheill.
�
Næstur er Loftur Júlíusson. Hann var
skipstjóri á Ingólfi í siglingu til Hamborg-
ar. Við erum á leið frá Þýskalandi og þeg-
ar við komum í Pentilinn er norðvestan
stormur og bullandi meðstraumur. Átökin
þegar við vorum í mesta straumnum voru
svakaleg. Það vildi til að skipið var nýtt
og sterkt. Lúið skip hefði ekki þolað slík
átök.
�
Næsti skipstjóri er Hallgrímur Guð-
mundsson. Ég fór einn túr með honum
á b/v Þorkatli Mána. Þá var ég búinn með
stýrimannaskólann og leysti af sem 1.
stýrimaður. Við fiskuðum í salt við
Vestur-Grænland. Það var mokveiði.
Hallgrímur var sá eini sem ég var með
sem kom niður á dekk þegar legið var í
aðgerð. Hann var vinnuharður og taldi
nógan svefn fyrir stýrimann frá kl 15 til
21, eða 6 tíma, en hann hlífði ekki sjálf-
um sér og innifyrir var margt gott.
�
Næstur er Jón Stefánsson á b/v Jóni
Baldvinssyni. Ég held að hann hafi verið
mesta prúðmennið sem ég var með til
sjós. Hann var afar rólegur og þaulsetinn.
Það fóru nokkur skip um vortíma, þar
á meðal við, til Bjarnareyja og síðan í
Barentshaf. Afli var lítill og það gáfust all-
ir upp og héldu heim nema við. Við héng-
um á ca. 2.5 tonna hali og þegar olían var
á þrotum vorum við komnir með um það
bil 100 tonn af saltfiski. Þá var haldið til
Hammerfest og þar urðum við að bíða í
rúma viku eftir olíu. Þegar við sluppum
út aftur köstuðum við í krikanum sem
var á milli rússnesku og norsku land-
helginnar en þá var landhelgin fjórar míl-
ur hjá Norðmönnum en tólf hjá Rússum.
Þarna fengum við mokafla, kláruðum
túrinn og sigldum innan skerja suður
með Noregsströnd og til Esbjerg þar
sem við lönduðum 320 tonnum af salt-
fiski.
�
Næsti skipstjóri er Kristján Kristjánsson
en hann leysti Jón af einn túr á Jóni
Baldvinssyni.
Ég kastaði um nótt á Halanum. Um
morguninn kemur Kristján upp kapp-
klæddur með trefil upp að höku en ég
var á skyrtunni, enda vel hlýtt í brúnni.
Kristján byrjar á því að opna alla glugga.
Það rumdi í karli: Engan sofandahátt.
Eftir það passaði ég mig á því að vera
búinn að opna alla glugga áður en karlinn
kom upp í brú.
Við mokfiskuðum þennan túr. Kristján
lét sér ekki nægja að fylla lestarnar, held-
ur fyllti hann líka dekkið og kom við á
Flateyri þar sem hann losaði sig við allan
fiskinn af dekkinu.
�
Næsti skipstjóri er Karl Magnússon. Ég
var stýrimaður hjá honum á Jóni Bald-
vinssyni. Karl var mikið snyrtimenni og
hann sá fyrir það sem átti eftir að gerast.
Hann bannaði mér að yfirgefa brúna og
skilja 2. stýrimann eftir einan við stjórn.
Forspárgildi þessa banns átti eftir að
koma í ljós þegar þessi sami stýrimaður
sigldi Jóni Baldvinssyni í strand við
Reykjanes.
Það var einn ókostur á Karli. Hann
var með Sæmundarsýki. Hann þurfti helst
alltaf að vera í nánd við Harðbak en Sæ-
mundur Auðunsson var skipstjóri á hon-
um. Karl spurði gjarnan þegar hann kom
upp: „Hvar er Harðbakur?“
�
Næsti skipstjóri er Þórður Hermannsson.
Ég var 2. stýrimaður hjá honum og leysti
af sem 1.
Þórður var mjög laginn fiskimaður.
Hann fór aldrei úr brúnni þegar legið var
í aðgerð. Hann las bók og hafði dýptar-
Hnýtt fyrir pokann. Ljósmynd: Ásgrímur Ágústsson
Hlerinn tekinn inn. Ljósmynd: Ásgrímur Ágústsson
Hvaleyrarbraut 27
220 Hafnarfirði
Sími: 564 3338