Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Síða 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Síða 32
32 – Sjómannablaðið Víkingur mælinn í gangi og fylgdist með torfunni. Það brást ekki að hann fyllti dekkið í tveimur holum þegar við veiddum í salt við Vestur-Grænland. Sumir sem fóru öðruvísi að voru búnir að rífa trollið þegar þeir fundu torfuna. En það var einn galli við Þórð. Hann var dálítill draslari. Skal ég nefna um það eitt dæmi sem kom mér í koll. Við erum á Anton Dorn banka með stjórnborðstroll. Það er komið vitlaust veður. Ég er nýkominn á vakt og byrja á því að ganga frá stjórnborðstrollinu og þá er bakborðstrollið laust og afturhlerinn dottinn úr græjunni. Fyrst varð að ná inn hleranum. Það var orðið það slæmt í sjóinn að ég þorði ekki að láta strákana krækja gilsinum í hlerann. Ég setti þá við spilið og fór sjálfur að reyna að koma gils- inum í hlerann. Mér tókst það en um leið og hlerinn kom inn fyrir kom brot og ég klemmdist einhvernveginn á milli hlera og gálga. Ég fann ekki mjög mikið til fyrst og við gátum klárað að binda upp trollið en þá var ég orðinn viðþolslaus af verkj- um vinstra megin í líkamanum. Þegar að var gáð var ég svarblár af mari frá hálsi og niður að mjöðm. Það var farið með mig til Patró og þaðan flaug ég heim til Reykjavíkur. Þá kom í ljós að nokkur rif voru brákuð og neyddist ég til að vera í landi í tvo túra. Það eru einu veikindi mín á mínum 40 ára togaraferli. � Næsti skipstjóri er Sigurður Óskarsson. Hann leysti Þórð af og var 1. stýrimaður hjá honum. Við erum í Þverálnum í sæmi- legu kroppi. Ég er á vakt í brúnni. Það er vaxandi norðaustan-veður þegar ég hífi um kl 9. Mér líst ekki á að láta trollið fara aftur svo ég hinkra við. Þegar Sigurður kemur upp fer ég niður í borðsal. Stuttu seinna heyri ég að trollið er látið fara. Um kl 13 kemur kokkurinn niður til mín með miklu írafári og hrópar: „Þeir voru að missa út mann.“ Ég rauk upp hálf-klæddur og frammá dekk. Þá er maðurinn horfinn. Hann hafði verið á afturleysinu og farið út með belgnum og sást síðast hanga neðan í belgnum. En þá gerðist kraftaverkið. Þeg- ar snarlan var höluð inn hafði snörlu- krókurinn krækst í hann. Við náðum honum því um borð og þegar ég var bú- inn að vera með hann í ca. 20 mínútur fékk ég líf í hann. Þarna var einu holi ofaukið. � Sá tólfti í röðinni er Sigurður Þórarins- son. Ég var 1. stýrimaður og afleysinga- skipstjóri í tvö ár hjá honum. Okkur Sig- urði kom ákaflega vel saman og það gekk mjög vel þessi tvö ár. Það var einn galli á Sigurði. Hann var með snert af Sæmund- arsýki en ég held að ég hafi læknað hann af henni. Við erum austur í Þverál með Harðbak og fleiri skipum. Það hafði verið smá- kropp en þegar ég hífi um miðja nótt er rifið svo ég læt bæta trollið og kippi vest- ur eftir og kasta í Djúpkróknum. Snemma um morguninn, þegar Siggi kemur upp, er það fyrsta sem hann segir: „Hvar er Harðbakur?“ Ég svara: „Hann er væntanlega austur í Þverál.“ Þegar við hífðum var ágætt í trollinu. Ég held að þar með hafi Sæmundarsýkin verið úr sögunni. Að lokum, ég segi frá því sem er mér minnisstætt en venjulega rann þetta áfram eins og lækur, oftast lygn en stundum með látum á flúðum. Farið um borð í ÚA-togara. Er þetta Svalbakur EA 2? Fyrstur til að stjórna þar um borð var Þorsteinn, þriðji Auðunsbróðirinn. Ljósmynd: Ásgrímur Ágústsson Staðið við spilið. Ljósmynd: Ásgrímur Ágústsson

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.