Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Page 34
34 – Sjómannablaðið Víkingur
N ú líður að þrettándu ljósmynda-
keppni Sjómannablaðsins Víkings
og þar með einnig möguleika sjó-
manna á íslenskum skipum að taka þátt
í Norðurlandaljósmyndakeppni sjó-
manna sem reyndar hefur verið við lýði
á þriðja áratug. Í íslensku keppninni
vinna þrjár myndir til verðlauna en
þrettán myndir til viðbótar eru síðan
valdar af dómnefnd og keppa þessar
fimmtán myndir við jafn margar ljós-
myndir frá hinum Norðurlöndunum. Í
Norðurlandakeppninni eru veitt fimm
verðlaun.
Nú þurfið þið sjómenn að skoða ljós-
myndasafnið ykkar og senda okkur
myndir. Reglur keppninnar eru einfaldar.
Myndefnið má vera hvað sem er hvort
heldur, af landi, láði eða legi. Þær þurfa
ekki endilega að vera teknar á síðasta ári
heldur má grafa djúpt í myndasafninu.
Ljósmyndarinn telst vera sá aðili sem ýtir
á afsmellarann á myndavélinni. Myndum
má ekki breyta meira en nauðsynlegt telst
vegna litaleiðréttinga en ekki má skeyta
saman tveimur myndum í eina með að-
ferðum Photoshop.
Hver ljósmyndari má senda inn allt að
15 ljósmyndir í hvaða formi sem er. Ósk-
að er eftir að allar stafrænar myndir séu
sendar í mestu upplausn og að þær hafi
ekki vatnsmerki á sér. Ljósmyndarar eru
beðnir um að gefa myndum sínum nafn.
Þá þarf að liggja fyrir á hvaða skipi við-
komandi er eða hefur verið séu menn
komnir í land tímabundið. Skilafrestur er
til 30. nóvember n.k. og skulu stafrænar
myndir sendar á umsjónarmann keppn-
innar, Hilmar Snorrason, á netfangið ices-
hip@heimsnet.is en aðrar myndir sendast
á
Ljósmyndakeppni sjómanna
FFSÍ v/Sjómannablaðsins Víkings
Grensásvegi 13
108 Reykjavík
Norðurlandaljósmyndakeppnin mun
að þessu sinni fara fram í Danmörku í
byrjun næsta árs.
Ljósmynd: Hlynur Ágústsson.
Ljósmynd: Hlynur Ágústsson
Ljósmynd: Jón Páll Ásgeirsson.
Ljósmyndakeppni
sjómanna 2014