Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Síða 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Síða 36
36 – Sjómannablaðið Víkingur V iðmælandi minn, hann Einir – sem allir kalla Adda – er ekki gamall að árum og ég velti fyrir mér af hverju hann sé kominn í land. Óhapp, svarar hann. Ég vil fá meira að vita. Við vorum að taka trollið í leiðinda- veðri, fengum á okkur brot og ég kastað- ist ofan í dekkið. Jú, þetta fór allt í helvít- is vitleysu, hálsinn, bakið og annar fóturinn. Hvað tók þá við? Gangan endalausa á milli lækna og sjúkraþjálfara. Í tvö eða þrjú ár var maður á þessu leiðinda vappi. Það teygðist líka á þessu, maður hélt jú í vonina um að komast á sjóinn aftur og vildi ekki gefast upp í bataleitinni fyrr en í fulla hnefana. Jamm, maður lifði ef til vill of lengi í von- inni. Kannski það. Hvað vildirðu taka þér fyrir hendur í landi? Já, svo var nú það. Maður kunni ekk- ert annað en að vera á sjó. Ég byrjaði á Kaldbak 1982, aðeins 17 ára gamall. Ætl- aði svo að komast til mannvirðinga á sjónum. Fór í stýrimannaskólann á Dalvík 1997 og lærði fræðin sem eru vel að merkja alveg ónýt í landi. Ég hafði því ekkert fast í hendi þegar ljóst varð að ég myndi ekki fara á sjóinn aftur. Varstu örvæntingarfullur um framtíð- ina? Manni var kannski ekki alveg rótt en ekki þannig að maður væri byrjaður að örvænta. En auðvitað leit þetta ekkert of vel út. Hvað gerðirðu þá? Iðan varð mín lausn. Ég komst á nám- skeið hjá þeim. Gunnar Þór Jóhannesson í Gólfefnavali bauð mér að koma og læra að meðhöndla parket, djúphreinsa það, olíubera, lita og svo auðvitað að fara með vélar sem tilheyra djobbinu. Fórstu þá að vinna við þetta? Já, og þó ekki alveg strax. Þarna hafði ég sem sagt lært að djúphreinsa ýmis gólf- efni og fór upp úr því til Málmeyjar í Sví- þjóð að læra meira. Um var að ræða park- etslípun og parketlögn sem ég tek þó ekki að mér. Best að undirstrika það. Skrokk- urinn segir einfaldlega nei við þess háttar átökum og bogri. Ég lærði líka meira á efnin og vélarnar. Þetta er sem sagt vélavinna? Einmitt. Ég er með djúphreinsivél sem ég nota á parket, steinateppi, flísar og sól- palla. Græjan þrýstir vatni niður í viðinn með burstum og sýgur síðan upp aftur. Og það skal ég segja þér að þótt menn sjái það ekki þá er gamalt parket undan- tekningarlaust svo óhreint að vatnið verð- ur á litinn eins og versta jökulsá. Svo pússa ég parketið og olíuber með annarri vél. Ég olíuber líka sólpalla og er þá venjulega búinn að djúphreinsa dekkið. Verður gamalt parket þá eins og nýtt? Ég segi það ekki. Hef aldrei verið fyrir það að ýkja. En djúphreinsivélin gerir gömul gólfefni nýlegri, flísar, steinateppi og parket. Og ég fullyrði að með því að fá mig til að þrífa til dæmis gamalt parket þá ertu að lengja lífdaga þess um nokkur ár. Þetta getur spyrjandinn vottað með Hann er kominn í land Addi djúphreinsar og olíuber - Spjallað við Eini Einisson Í vetur er leið fór Addi á námskeið hjá SÍMEY, Sí- menntunarmiðstöð Eyjafjarðar, þar sem hann lagði stund á sölu-, markaðs og rekstrarnám. Það getur aldrei nema bætt mann að læra þessi rekstrarfræði betur, segir hann, og svo er maður alltaf að pæla. Kaldbakur skip með mikla sál. Á þessu skipi byrjaði Addi 17 ára gamall en á Kaldbaki var hann í alls 15 ár.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.