Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Blaðsíða 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Blaðsíða 38
38 – Sjómannablaðið Víkingur góðri samvisku. Fyrir tveimur árum fékk ég Adda til að þrífa gamalt og lúið parket, sem virtist komið á endadægur en lifir enn og lítur ágætlega út. Ertu í vinnu hjá öðrum við þetta? Nei, ég stofnaði mitt eigið fyrirtæki, Einir parket- og sólpallaþjónustuna, í kringum þetta starf mitt. Ég þykist vita að Addi fari víða og lendi í ýmsu með græjurnar sínar. Ég spyr því hvort hann – svona í lokin – eigi ekki sögu handa lesendum Víkings? Hann hugsar sig um: Nei, maður lend- ir aldrei í neinu í landi. En ég get sagt þér ótal sögur af sjónum. Ég er á báðum áttum. Þetta á jú að vera viðtal við sjómann í landi, manninn sem ekki á lengur sjógalla eða lætur sér til hugar koma að draga fisk nema þá upp úr frystikistum verslana. En Addi er byrjaður og verður ekki stoppaður héðan af. Hann segir mér af nýliðanum sem sendur var upp í brú með ísprufu handa skipstjóranum, af körlun- um sem hímdu 50 daga á Reykjaneshrygg og fengu varla bröndu og ótaldar siglinga- sögur. Dagur er liðinn að kvöldi. Og ég fellst á að hafa eina siglingasöguna með enda ég hálfdauður úr hlátri. Addi hefur orðið: Þetta er sko þannig saga að hér verða engin nöfn nefnd. Allt í lagi? Annars verða eftirmálar og ekkert endilega þægilegir. Jú, ég fellst á það. Þetta hefur verið í kringum ´89. Við sigldum til Hull en eins og allir vita þá fer maður ekki í siglingu án þess að fara á djammið. Ég tala nú ekki um þegar selja á heilan skipsfarm af fiski. Þegar svo áhöfnin sneri aftur til skips eftir mikla gleði fram á rauða nótt slæddust innfædd- ar konur með. Hafnarlöggan fékk veður af þessu og þusti um borð að hindra allan ósóma. Konunum var smalað upp á dekk en tjallinn gætti ekki að því að í hópnum var íslenskur boldangskvenmaður – meira að segja í náttkjól - og harðgift einum úr áhöfninni. Og þar sem þær stóðu þarna á dekk- inu, íslenska eiginkonan líka, heyrðist eiginmaðurinn segja: Já, í guðanna bæn- um, endilega takið hana með ykkur. Addi með bónvélina góðu. Iðnaðarryksuga er inni á baðinu – enda þrifnaður og góð umgengni aðalsmerki í þessari starfsgrein, segir Addi, og vitnar í góða bók: Cleanliness is next to godliness.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.