Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Side 40
40 – Sjómannablaðið Víkingur
T il að liðka fyrir útflutningi fiskafurða til Austur-Þýska-
lands fór á árinu 1956 íslensk sendinefnd þangað á veg-
um stjórnvalda, til að kanna möguleika þess að láta
smíða þar stálfiskiskip í skiptum fyrir fiskafurðir en vöru-
skipti af einhverju tagi voru forsenda þessara viðskipta.
Meðal þeirra, sem fóru til Austur-Þýskalands voru Gunnar
Friðriksson, forstjóri Vélasölunnar og Hjálmar R. Bárðarson, sigl-
ingamálastjóri og skipaverkfræðingur. Vegna hugmynda um kaup
á fiskiskipum frá Austur-Þýskalandi kom til Reykjavíkur í
október 1956 austur-þýski togarinn Ross 207 sem var útgerðar-
mönnum til sýnis í einhverja daga. Hann var um 300 brl., lengd
193 fet eða 58,54 m., breidd 18 fet eða 8,99 m., dýpt 18 fet eða
5,49 m. Aðalvél 920 hö og hjálparvél um 300 hö sem bæði fram-
leiddi rafmagn fyrir skipið ásamt því að knýja togvinduna. Gang-
hraði 12 sm/klst. og íbúðir fyrir 34 manna áhöfn.
Þetta skip var nokkru minna en okkar hefðbundnu togarar en
nokkru stærra en skipin sem fyrir hugað var að smíðuð yrðu í
Austur-Þýskalandi til togveiða.
Samið um 50 skip
Að loknum vönduðum undirbúningi var ákveðið að ganga til
samninga við Austur-Þjóðverja um smíði fiskiskipa. Vegna stjórn-
málaástandsins á þeim tíma, kalda stríðið, var ekki talið heppi-
legt að íslensk stjórnvöld gerðu beina samninga við austur-þýska
alþýðulýðveldið en stofnað var einkafyrirtækið DESA (Diesel
Engines & Shipbuilding Assosiation). Tilgangur þess var, sam-
kvæmt hlutafélagaskrá, innflutningur og umboðssala frá Austur-
Þýskalandi á skipum
og hvers konar vél-
um, svo sem diesel-
vélum, dráttarvélum,
bifreiðum, þunga-
vinnuvélum og öðr-
um skyldum tækj-
um. Samþykktir
félagsins voru dag-
settar 17. mars 1956.
Í stjórn voru kjörnir
Eggert Kristjánsson,
stórkaupmaður, for-
maður, Gunnar Frið-
riksson, varaformað-
ur og Hjalti Pálsson,
meðstjórnandi.
Framkvæmdastjóri
1960 til 1970 var
Eggert Kristjánsson,
lögfræðingur, en
hann var jafnframt
starfsmaður Véla-
sölunnar. Gunnar
Friðriksson tók við
stjórnarformennsku
1966. Fyrirtækið
starfaði næstu 12
Helgi Laxdal
Skip fyrir fiskafurðir
Fyrirkomulagsteikn HRB 54, lengri gerðin.