Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Side 44
44 – Sjómannablaðið Víkingur
V íkingurinn hefur gaman af snjöll-
um setningum og tilsvörum.
Stundum eru þau spakleg, stund-
um ekki, fyndin eða ekki fyndin, en
alltaf lýsa þau ögn inn í sálina. Líka
þótt þau séu töluð út úr bergi af
kannski ekki dæmigerðum Íslendingi.
•
„Það skiptir ekki máli að gera frábæra
hluti heldur að gera hversdagslega hluti
frábærlega.“
Kristján Kristjánsson heimspekingur
•
„Ég má ekki drekka kaffi, hjartað meltir
það ekki.“
Ónefndur hjartasjúklingur sem
læknarnir höfðu bannað að drekka kaffi.
•
Vígðu nú ekki meira, Gvendur biskup;
einhversstaðar verða vondir að vera.“
Rödd úr Drangeyjarbergi við Guð-
mund biskup góða Arason þegar hann
vígði bergið og hafði farið hringinn um
eyjuna og átti aðeins einn blett eftir. Kom
þá stór og loðin loppa, í rauðri ermi, út
úr berginu og brá stórri sveðju á sigstreng
biskups en það varð honum til lífs að
einn af þremur þáttum festarinnar var svo
rækilega vígður að sveðjan beit ekki á
hann. Baðst bergbúinn þá vægðar með
framangreindum orðum. Sá Guðmundur
aumur á honum, lét draga sig upp og
vígði ekki meira. Heitir þar síðan Heiðna-
berg og er varasamt sigmönnum.
•
„Það er ekkert skaðinn hjá skömminni.“
Jón Markússon, búandi víðs fjarri
byggðum bólum í Eskifelli innan við aura
Jökulsár í Lóni, þegar hann kom of seint
til skips og menn vorkenndu honum að
hafa misst af róðrinum. En Jón, sem reri
lengi á báti sem gekk úr Hvalneskróki, fór
heiman og heim kvölds og morgna þótt
löng væri sjávargatan og ekki torfæru-
laus.
•
„Hanú, hanú, ég held ekki sé barn í hand-
leggnum á þér.“
Björn Jónsson, í Syðra-Garðshorni í
Svarfaðardal, við 16 ára vanfæra dóttur
sína þegar feðginin reru saman og honum
þótti hún taka linlega á.
•
Lífsviðhorf Íslendinga
Óneitanlega hafði Lúsífer ærinn áhuga á að snúa
frelsaranum til fylgis við sig en, eins og Guðrún
Runólfsdóttir benti syni sínum á, gleymir hann ekki
smælingjunum. Málverkið er eftir hollensk-franska
málarann, Ary Scheffer (1795-1858).
Fengsælum sjómönnum kann að þykja
freistandi að hlaða bát sinn út í hið óendanlega.
Það getur hins vegar skapað mikla hættu þar
sem ofhleðsla getur leitt til alvarlegra slysa.
Gætum að öryggi okkar og siglum örugg í höfn.
ERTU
AFLAKLÓ?