Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Page 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Page 46
46 – Sjómannablaðið Víkingur Eitt heimsmetið til viðbótar Skip fara stöðugt stækkandi og höfum við nokkuð fylgst með gámaskipum og þeirri öru þróun í stækkun þeirra. Hinsvegar höfum við minna fylgst með öðrum skipategundum. Nýlega kom eitt risaskipið úr skipasmíðastöð í Kína en það er bílaskipið Hoegh Target. Skipið sem er heimsins stærsta bíla- skip er með hvorki meira né minna en þilfarsflatarmál á við 10 fótboltavelli eða 71.400 fermetra. Þetta 200 metra langa og 36 metra breiða skip getur flutt 8.500 bifreiðar á 14 þilförum. Ef öllum þessum bílum yrði komið fyrir í einni röð myndi hún verða 42 km löng. Bílaskip eru mörg hver mismun- andi hvað varðar sveigjanleika í flutningum en Hoegh Target getur tekið farartæki frá allt að 6,2 metrum á hæð og 12 metra breiðum. Þá getur skip- ið tekið allt að 375 tonna farartæki í skut. Skipið er í eigu norsku útgerðar- innar Hoegh Autoliners og var það afhent í júní sl. Sigldi skipið þaðan til hafna í Suður Kóreu, Japans, Ítalíu, Spánar, Hollands, Belgíu og Bretlands í jómfrúferð sinni. Skipið mun verða í siglingum milli Austur-Asíu og Evrópu. Hoegh Target er fyrsta skipið af sex sem smíðuð eru fyrir Hoegh Autoliner en skipið er umhverfisvænt af gerðinni New Horizon. Breytingar á Súezskurðinum Fréttir um opnun nýs Súezskurðar í byrjun ágúst hafa örugglega ekki farið framhjá sjómönnum. Þessi 145 ára gamla siglingaleið hefur nú fengið nýja upplyftingu sem á að hraða umferð um skurðinn til muna. En hér koma nokkrar staðreyndir um skipaskurðinn. 1 Súezskurðurinn tengir saman Miðjarðarhafið og Rauðahafið sem sparar siglingu milli Asíu og Evrópu um 25 daga að meðaltali. Skurðurinn er að fullu í eigu egypskra stjórnvalda en hann var þjóðnýttur árið 1956 2 Nýja siglingaleiðin sem liggur samhliða gamla skurðinum, er 35 km löng. Þá er búið að dýpka 37 km af gamla skurðinum sem gerir 72 km endur- nýjun skurðarins sem nú gefur færi á mótgangandi umferð. 3 Forseti Egyptalands, Abdel Fattah al-Sisi, fyrirskipaði að endurbætur skurðarins tækju aðeins eitt ár í stað þriggja eins og til stóð. Meira er 43 þúsund manns unnu við dýpkun og hönnun skurðarins sem mun stytta suðurleiðina úr 18 í 11 klst. 4 Umferð um skurðinn telur um 8% af alheimssiglingum að sögn stjórnar skurðarins. Búist er við að dagleg umferð um skurðinn muni tvöfaldast fyrir árið 2023 úr 49 í 97 skip á dag. 5 Yfirvöld áætla að tekjur skurðarins aukist á sama tíma úr 5,3 milljörðum dollara í 13,23. Hagfræðingar efast þó um þessar spá. 6 Til að fjármagna framkvæmdina var safnað 8,5 milljörðum dollara meðal Egypta í formi skuldabréfa með 12% ávöxtun til allra fjárfesta. Gert er ráð fyrir að nýi skurðurinn muni tvöfalda þjóðartekjur auk þess að leiða af sér eina milljón nýrra starfa tengda skurðinum. Falsaði olíudagbókina Rúmlega fertugur rússneskur yfirstýrimaður, Valerii Georgiev, var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í New Jersey fyrir að hafa ekki haldið með ná- kvæmni olíudagbók um borð í skipi sínu Murcia Carrier. Á siglingu skips- ins á alþjóðasiglingaleið undan Florida lét hann varpa fyrir borð fjölda tunna af glussaolíu. Jafnframt fyrirskipaði hann skipsfélögum sínum að neita því að hafa varpað glussanum fyrir borð. Yfirvöld telja að Georgiev hafi látið varpa allt að 20 tunnum fyrir borð en hann neitar. Reyndar neitaði hann í fyrstu að einhverju hefði verið varpað fyrir borð en eftir að hann viðurkenndi hefur verið ágreiningur um magnið. Eigandi skipsins, Norbulk Shipping UK Ltd frá Glasgow, lýsti yfir sekt í málinu fyrir dómstólum og hlaut fyrir vikið 750 þúsund dollara sekt og skilorð í þrjú ár. Yfirstýrimað- urinn missti að sjálfsögðu vinnuna. Bestu litirnir Í hvaða lit ætli sé best að mála skip? Líkast til verða svörin fjölbreyttari eftir því sem fleiri eru spurðir. Fyrrum skipaverkfræðiprófessor og skipaeigandi Jack Devanney hefur miklar skoðun á hvernig best sé að mála tankskip. Þau eiga að vera hvít! Hann heldur því fram að með því að mála þilför og síður í hvítum lit verði viðhald miklu betra. Í dag keppast útgerðir við að hafa þilför í dökkum litum og þá er ryðbrúnn afar vinsæll litur til að fela ryð, skít og olíu. Sá er tilgangurinn með dökkum litum. Ef þilför eru blaut líta þau afar vel út í fjarska. Enda þegar á að taka ljósmyndir af tankskipum eru þilförin bleytt til að sýnast betur útlítandi. Síður skipa eru oftast hafðar svartar því þá sjást ekki olíutaumar frá niðurföllum ofaní sjó. Upp úr 1980 fóru menn að skipta yfir í ljósgráa þilfarsmálningu en áhafnirnar voru lítt ánægðar með þá breytingu. Hinsvegar fóru menn að sjá áberandi betra viðhald auk þess sem þilförin fóru að verða kaldari. Til að halda fóðrun í farmtönkum í sem besta ástandi skiptir þilfarsliturinn miklu máli. Í dag er mest verið að nota dökkrauða málningu en sá litur dregur til sín að minnsta kosti 60% af sólargeislun en ef notuð væri hvít málning myndi hún endur- kasta 80% af geisluninni. Rauð þilför draga í sig fjórum sinnum meiri sólar- orku en sú hvíta. Þetta er reyndar eitthvað sem við Íslendingar höfum lítið þurft að spá í nema ef vera skyldi á þeim flutningaskipum sem sem fluttu frystar vörur og kæliskipum. Nýtt þyrlumóðurskip Í mars s.l. fékk japanski sjóvarnarherinn afhent stærsta herskip frá því í seinni heimstyrjöldinni þegar þyrlumóðurskipið Izumo var afhent. Er það á stærð við þau flugmóðurskip sem Japanir áttu þegar þeir börðust við Banda- ríkjaher í Kyrrahafi. Izumo er 248 metra langt og með 470 manna áhöfn. Telja sérfræðingar að það sé sýnilegt dæmi um vöxt í hernaðarumsvifum Japana en forsætisráðherra þeirra hefur lagt til að þarlendum lögum verði breytt í þá veru að heimila hernum að taka þátt í hernaðarumsvifum utan heimalandsins og þar með að leyfa hernum meiri umsvif en núverandi lög leyfa. Með því að hafa skipið sem þyrlumóðurskip heldur sjóvarnarherinn sig innan ramma laganna en flugmóðurskip er skilgreint sem ógnandi vopn og því ekki leyfilegt að byggja slík skip. Heimahöfn skipsins er í flotahöfninni Yokosuka nærri Tókyo en þar heldur einnig sjöundi floti Bandaríkja sig til. Ekki eins hagkvæm Í nýlegri könnun umhverfissamtaka sem kallast Seas At Risk og Transport & Environment er fullyrt að ný skip sem verið er að taka í notkun séu ekki eins hagkvæm og þau voru fyrir 20 árum síðan þrátt fyrir fullyrðingar skipaeigenda þar um. Fram kom að hönnun skipa sem smíðuð voru árið 2013 voru að meðaltali að 10% lakari í eldsneytissparnaði en skip sem smíðuð voru 1990. Hönnun skipa með hagkvæmni í huga hófst að alvöru upp úr 1980 og náði hátindi á níunda áratug síðustu aldar en fór að ganga til baka þegar komið var á nýja öld. Talsmaður Transport & Environment samtakanna, Bill Hemmings, segir að sannleikurinn sé nú ljóslifandi fyrir Utan úr heimi Stærsta bílaskip heims Hoegh Target. Ljósmynd: Southern Daily Echo Hilmar Snorrason skipstjóri Izumo við afhendingu. Ljósmynd: The Japan Times

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.