Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Síða 48

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Síða 48
48 – Sjómannablaðið Víkingur Þ eir tala um það Grandamenn að nýja skipið hafi náð allt að 18 sjó- mílna hraða. Víkingur spyr Guð- laug Jónsson skipstjóra eftir þessu. „Ég ætla ekki að neita því en 15 og 16 mílur sjást á mæli en þá er keyrt mikið. Við erum venjulega ekki að sperra okkur neitt meira en í 12 sjómílur. Það dugar vel til að komast á milli.“ Við erum að tala um nýjasta skip HB Granda sem í vor kom til heimahafnar á Vopnafirði og var skömmu síðar, eða mið- vikudaginn 27. maí, formlega gefið nafnið Venus NS 150. „Afbragðsgott sjóskip,“ segir Guðlaug- ur skipstjóri. Og hann talar af reynslu. Þá tólf sólarhringa sem siglingin tók frá Tyrk- landi – þar sem skipið var smíðað – gekk ítrekað á með brælu og leiðindum. „Já, það gerði haugasjó og rok en skipið stóð sig vel og fór vel með mannskap- inn.“ Vinnubrögð Tyrkjanna hafa líka reynst traust. „Skipið hefur ekki stoppað síðan það kom,“ segir Guðlaugur. „Ætli við séum ekki komnir með um tíu þúsund tonn af makríl og síld. Að auki fórum við fyrir og eftir sjómannadaginn tvo túra til Færeyja á kolmunna. Þar bættust við tæp 2.500 tonn af fiski.“ Ekki þarf að fjölyrða um þá miklu tækni sem er um borð, græjurnar verða alltaf betri og betri og svo er vinnulagið líka að breytast. „Já, við dælum úr trollinu eins og það kemur upp, sem sagt við skutinn, en þurfum ekki lengur að losa pokann og færa fram með síðunni. Margir Norðmenn og Færeyingar hafa tekið þetta upp og við erum svona að fylgja á eftir. Bæði Sigurð- ur og Börkur nota þessa tækni og nú við.“ Nýtt skip í flotann Venus NS 150 Venus NS er á lengdina rétt rúmir 80 metrar, 17 metrar á breidd og ristir tæpa 8 metra. Smíðin fór fram í skipasmíðastöðinni Çeliktrans Deniz Insaat Ltd. í Tyrklandi. Ljósmynd: Kristján Maack Guðlaugur Jónsson hagræðir sér í skipstjórastólnum. Ljósmynd: Kristján Maack

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.