Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1947, Blaðsíða 52
Norrœn jól
gerði hann mikla brú og breiða, og hefur ekkert verk hans sætt slíkri gagnrýni
sem hún. En á handriði brúarinnar beggja vegna hefur hann komið fyrir meir
en sextíu höggmyndum. Þær myndir munu reka lestina í hans mikla æfiverki.
Hann hefur enn greypt þar í málminn líf mannsins, karla og konur á öllum
aldri, leik barnsins og grát, hljóðláta, kvíðandi ást, veika von, ungar meyjar,
þungvaxnar, rósamar, nær allstaðar alvöru og trega, sums staðar kyrláta sælu, á
einum stað fagnandi móður sem lyftir syni sínum á höndum sér móti sól og von.
Ekki er nema hálfsögð sagan, þó að nefnd séu þessi listaverk sjálf. Umgerð
meistarans um þetta allt þykir mörgum sæta hinni mestu furðu, skipun mynd-
anna, steinbálkar og stallar, feiknleg og óteljandi ljósker úr bronsi. Síðar meir
eiga há tié og gróður að prýða þennan stóra lysdgarð.
Enginn Norðmaður fæst nú lengur um milljónirnar sem lagðar hafa verið í
Vigelands-garð. En hinu mun margur kvíða í hljóði, að fyrir einræði meistarans
verði aldrei bætt, stirðleg „byggingalist“, skorur á heilbrigðu heildarskyni, muni
um aldur kasta skugga á sjálfa meistarasmíð hans: höggmyndina. Framtíðin ein
mun úr þessu skera.
Osló gaf Gustav Vigeland fáheyrt tækifæri til þess að þjóna list sinni einni.
Enginn listamaður mun hafa átt slíkt hlutskifti síðan á dögum Períkless.
Aths.:
Fyrsta myndin yfir fyrirsögn greinarinnar, sýnir brunninn fullgerðan, vatnsþróna,
bronsitrén, steinriðin upp á hæðina þar sem drangurinn gnæfir í fjarska.
Aðalheimild í riti að þessari grein: Arne Durhan: „Gustav Vigeland“.