Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1947, Blaðsíða 67
Norrœn jól
sel ég ekki dýrari en ég keypti þær, en séu þær sannar, má þessi gamli Harð-
angursprstur vel við árangurinn una, og þeir, sem neytt hafa ávaxtanna úr görðum
prestssetursins í Ullensvang, hljóta að hugsa til hans með þakklæti.
Prestssetrið Ullensvang stendur á fögru nesi fram við sjó. Fyrir ofan eru
hlíðarnar þéttvaxnar barr-trjám. Þar lengst uppi í fjallinu, á háum hjalla, á prestur-
inn dálítið sumarhús, og er mörg einstigi upp að fara, áður en þangað er komið.
Handan við fjörðinn eru brattar hlíðar, og lengra innfrá er Harðangursfönnin,
fallegur jökull, og hefir verið á það bent, hve skaut Harðangurskvenna sé líkt
honum að formi til. Er engu líkara en konurnar í Harðangri hafi sjálfrátt eða
ósjálfrátt viljað bera sama höfuðskraut og fjallið, sem gnæfir yfir sveitina og
fjörðinn. Þegar hin frægu Harðangursbrúðkaup eru haldin, koma menn á bátum
yfir fjörðinn, og niður við sjóinn er brúðareikin, þar sem brúðurin býst skarti
sínu, áður en hún gengur til kirkju. Eikin er orðin gömul, og þótt undarlegt
megi virðast um tré í slíkri stöðu, er hún nú tekin að hrörna. Væntanlega fær
hún þó enn oft að sjá fagurt bros í brúðar auga. Ég spurði presdnn, hvort hann
gæti ekki komið því svo fyrir, að ég fengi að vera viðstaddur brúðkaup, meðan ég
stæði við. Ekki var þess kostur, en ferming var næsta sunnudag, og þó það þyki
kannske ekki viðeigandi af presti að gefa svo mikinn gaum að veraldlegum
hlutum við messugjörð, hlýt ég að segja, að hinir fögru og þjóðlegu búningar
fólksins settu sinn svip á daginn og gáfu öllu, sem fram fór, þjóðlegan blæ.
Kirkjan í Ullensvang er meira en 650 ára gömul, tildurslaus, en svipmikil.
Hún mun rúma um 700 manns, og þætti það rausnarleg sveitakirkja hér á íslandi.
Var hún nærri full þennan sunnudag, og morguninn eftír, kl. 10 f. h., fór fram
altarisganga fyrir fermingarbörnin og aðra, er koma vildu. Skifti aðsóknin þá
aftur hundruðum. Mér var það sannarlega gleði að aðstoða sóknarprestinn við þá
athöfn. í lok útdeilingarinnar bað hann mig að veita sér sakramentið með útdeil-
ingarorðum íslenzku kirkjunnar, og er það sjálfsagt í fyrsta skiftí, sem íslenzk
tunga hefir verið töluð við messu í Harðangri, en Sande prestur ber mikla lotn-
ingu fyrir iillum sann-norrænum erfðum, jafnframt því, sem hann er þjóðrækinn
Norðmaður. Hann tekur gjarnan þátt í þjóðdönsum, tíl dæmis að taka og hann
er ákveðinn fylgjandi nýnorskunnar. Lýðháskólarnir eiga í honum ákveðinn stuðn-
ingsmann, enda er hann jafnframt prestsskapnum kennari við „Harðanger Folke-
högskule“, sem stendur lítið eitt uppi í fjallshlíðinni, ofan við prestssetrið.
Ola Sande er kvæntur. Heitir kona hans Tora. Þau hjón eiga þrjár dætur
65