Mosfellingur - 01.04.2021, Blaðsíða 33

Mosfellingur - 01.04.2021, Blaðsíða 33
www.samanhopurinn.is Foreldrum er heimilt að stytta þennan tíma en ekki lengja. Bregða má út af reglu- num þegar börn eru í fylgd með fullorðnum og börn 13-16 ára eru á heimleið frá viðurkenndri skóla,- íþrótta- eða æskulýðssamkonu. Aldur miðast við fæðingarár. FORELDRAR VERUM SAMTAKA! ÚTIVISTAR- REGLURNAR* Á skólatíma 1. september til 1. maí 12 ára börn og yngri mega lengst vera úti til kl. 20 13 – 16 ára börn mega lengst vera úti til kl. 22 1. maí til 1. september 12 ára börn og yngri mega lengst vera úti til kl. 22 13 – 16 ára börn mega lengst vera úti til kl. 24 *Skv. 92 gr. laga nr. 80/2002 www.samanhopurinn.is Foreldrum er heimilt að stytta þennan tíma en ekki lengja. Bregða má út af reglu- num þegar börn eru í fylgd með fullorðnum og börn 13-16 ára eru á heimleið frá viðurkenndri skóla,- íþrótta- eða æskulýðssamkonu. Aldur miðast við fæðingarár. FORELDRAR VERUM SAMTAKA! ÚTIVISTAR- REGLURNAR* Á skólatíma 1. september til 1. maí 12 ára börn og yngri mega lengst vera úti til kl. 20 13 – 16 ára börn mega lengst vera úti til kl. 22 1. maí til 1. september 12 ára börn og yngri mega lengst vera úti til kl. 22 13 – 16 ára börn mega lengst vera úti til kl. 24 *Skv. 92 gr. laga nr. 80/2002 www.samanhopurinn.is Foreldrum er heimilt að stytta þennan tíma en ekki lengja. Bregða má út af reglu- num þegar börn eru í fylgd með fullorðnum og börn 13-16 ára eru á heimleið frá viðurkenndri skóla,- íþrótta- eða æskulýðssamkonu. Aldur miðast við fæðingarár. FORELDRAR VERUM SAMTAKA! ÚTIVISTAR- REGLURNAR* Á skólatíma 1. september til 1. m í 12 ára börn og yn ri mega lengst vera úti til kl. 20 13 – 16 ára börn mega lengst vera úti til kl. 22 1. maí til 1. september 12 ára börn og yngri mega lengst vera úti til kl. 22 13 – 16 ára börn mega lengst vera úti til kl. 24 *Skv. 92 gr. laga nr. 80/2002 Þar sem vorið er á næsta leiti þykir okkur vert að minna á foreldrarölt Mosfellsbæjar, með hækkandi sól fylgir aukinn áhugi barna og unglinga á útiveru seint um kvöld. Foreldrafélög Mosfellsbæjar ásamt félagsmiðstöðinni Bólinu standa fyrir foreldrarölti í Mosfellsbæ. Gengið er á kvöldin um helgar frá þremur skólum bæjarins, Varmárskóla, Lágafellsskóla og Helgafellsskóla. Með þátttöku í foreldrarölti kynnist þú öðrum íbúum Mosfellsbæjar. Einnig hefur þú góð áhrif á bæjarbraginn og það félagslega umhverfi sem börnin okkar búa í. Nærvera fullorðinna þar sem unglingar hafa safnast saman hefur róandi og fyrirbyggjandi áhrif. Slík nærvera gefur unglingum líka tækifæri til að leita aðstoðar fullorðinna ef á þarf að halda. Öryggi Mosfellsbæjar er á okkar ábyrgð og því færri óæskilegar hópamynd- anir og því meiri sýnileiki fullorðinna er góð forvörn gegn notkun vímuefna, einelti og ofbeldi. Allir þessir hlutir ógna öryggi bæjarins sem hefur hugsan- lega bein eða óbein áhrif á okkur öll. Allir geta tekið þátt í foreldrarölti, líka þeir sem eru ekki foreldrar eða eiga uppkomin börn. Við viljum hvetja foreldra og alla þá sem er annt um börn og bæinn okkar að kíkja inn á Facebook síðu röltsins ,,Foreldrarölt í Mosfellsbæ“ og skrá sig. Þó svo skráningarsíðurnar séu sérstaklega merktar ákveðnum bekkjum er öllum, sem vilja taka þátt, frjálst að skrá sig á hvaða kvöld sem er. Hlökkum til að sjá þig á röltinu. SAMMOS Samtök foreldrafélaga grunnSkóla moSfellSbæjar Foreldrarölt Þegar fólk kaupir sér húsnæði er að mörgu að hyggja. Byggingin þarf að uppfylla lög og reglugerðir en því miður virðast allt of margir gallar koma í ljós eftir að eigendur taka við fasteign. Margir slíkra galla eru á ábyrgð hönnuða, byggingastjóra eða meistara. Skv. lögum má Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (áður Mannvirkjastofn- un) ávíta og svipta starfsréttindum þá sem vanrækt hafa starfsskyldur sínar. Ekki hefur komið til þess að hönnuður, byggingastjóri eða iðnmeistari hafi hlotið áminningu og misst löggildingu eða starfsleyfi á grund- velli 57. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki. Ótrúlegt! Hér er ekki við byggingafulltrúa að sakast heldur Húsnæðisstofnun svo að það sé tekið fram. Yfirvöld í bænum ættu hins vegar að beita sér fyrir að bygginga- eftirlit fái nægt fjármagn til þess að veita aðhald þeim sem starfa í mannvirkjagerð innan bæjarmarka. Aðrir hagsmunir vega einnig þungt, t.a.m. skipulagsþátturinn. Þar gilda önnur lög en í grófum dráttum má segja að skipu- lagsvaldið sé pólitískt. Bæjarstjórn tekur ákvörðun um aðalskipulag sem er áætlun eða stefna. Það má segja að aðalskipulag sé framtíðarsýn. Deiliskipulag er áætlun fyrir afmarkað svæði eða reiti sem í manna máli eru kölluð hverfi. Þetta er þó ekki algilt. Skipulagsþátturinn er alfarið á ábyrgð kjörinna fulltrúa. Skipulagsvaldið er nánast alltaf í höndum sveitarfélagsins. Miðflokkurinn í Mosfellsbæ hefur tekið þá afstöðu að deiliskipulagi sem er í gildi eigi ekki að breyta. Átæða þess er sú að við breytingar skerðast gæði þeirra sem fyrir eru. Á þessu eru að vísu fáeinar undan- tekningar. Þær eru t.d. breytingar er lúta að umferðaröryggi íbúa og aðgengi. Mið- flokkurinn hefur líka verið fylgj- andi breytingum á deiliskipulagi hverfa sem eru óbyggð enda vita fasteignakaupendur þar að hverju þeir muni ganga. Það er nefnilega raunin að þeg- ar verið er að gera breytingar er of algengt að horft sé til gróðasjón- armiða vertaka. Rökin sem beitt er geta verið að markaðurinn kalli eftir tilteknum stærðum eigna og því sé eðlilegt að fjölga íbúðum. Yfirleitt fylgja slíkum fullyrðingum engin gögn. Greiningardeild Ríkislögreglustjóra gaf út skýrslu um skipulagða brotastarfsemi 2019. Í skýrslunni var vitnað í Noreg og ástandið þar. „Í kafla um spillingu á bæjar- og sveit- arstjórnarstigi segir að sakamál síðustu ára gefi til kynna sérstaka áhættu á spill- ingu í tengslum við leyfisveitingar vegna skipulagsmála og byggingaframkvæmda. Sú hætta sé fyrir hendi að starfsmenn á bæjar- og sveitarstjórnarstigi ýmist reyni að hagnast á aðstöðu sinni með tilliti til leyfa vegna framkvæmda eða þeim séu boðnar mútur. Fjallað er um að framferði sem almenningur upplifi sem siðleysi og spillingu á þessu sviði stjórnsýslunnar þurfi ekki nauðsynlega að fela í sér lögbrot. Sagt er frá rannsókn á vegum samtaka sveitarfé- laga í Noregi árið 2018. Í henni kváðust 85% stjórnenda á bæjar- og sveitarstjórnarstigi telja spillingu „litla eða mjög litla“ á þessu sviði opinbers reksturs. Í sömu könnun sögðu 13% þátttakenda að þeir hefðu á síðustu 12 mánuðum orðið fyrir þrýstingi um að hygla sérstaklega tilteknum aðilum í störfum sínum.“ Vonandi stöndum við okkur betur en Noregur. Jón Pétursson, fulltrúi Miðflokksins í skipulagsnefnd Mosfellsbæjar Verður byggð blokk í bakgarðinum hjá þér? Aðsendar greinar - 33

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.