Bræðrabandið - 01.11.1953, Blaðsíða 4

Bræðrabandið - 01.11.1953, Blaðsíða 4
4 - "Bræðrabandið11 10.11'53 okkar, og í gegn um það er hægt að ná til ykkar allra. Drottinn blessi ykkur öll og hjálpi okkur til að reynast trú. Biðjum hvert fyrir öðru. Ykkar einl. br. í Sannleikanum, Júl. Guðmundsson. E. B. Rudge; BÆNA- OG SJÁLFSAFNEITUNARVIKAN 1953 u n ii n ii ti ii ii ii n ii it ii it ti ii n ii n ii ii ii n ii ii ii n n ii n ii ii n n n 28. nóv. höfum við fyrstu samkomu bænaviku þessa árs. Um allan heim munu þeir, er trúa Aðventboðskapnum, safnast saman daglega í smáum og stórum hópum til bæna og íhugunar. Tilgangi slíkra samkoma hcfur þjónn Drottins með eftirfarandi orðum: "Við komum saman til þess að uppbyggja hvert annað með því að skiptast á hugsunum, safna kröftum, ljósi og hugrekki með því að kynnast vonum og löngunum hvers annars, og fyrir einlægar, hjartnæmar bænir, sem við biðjum í trú, að öðlast endurnýjun og kraft frá uppsprettu kraftarins." Testimonies 11.b.578. Við þessi áhrifaríku tækifæri er-um við minnt á hinn tvöfalda tilgang, sem Guð hefur með okkur sem limi líkama Krists. 1 fyrsta lagi: "Söfnuðurinn, sem er íklæddur rétt- læti Krists, er eign hans, og í honum eiga dýrmæti verð- leika hans, náð hans og kærleiki, endanlega að birtast í hinni fullkomnu mynd sinni." Desire of Ages, 680. 1 öðru lagi: "Söfnuðurinn er erindreki Guðs í boð- un Sannleikans, sem hann hefur gert hæfan til að framkvæma sórstakt verk," Acts of the Apostles, 600. Slíkar samkomur með trúsystkinum staðfesta hin mörgu forréttindi okkar sem sona og dætra Guðs, og ábyrgðir okkar sem meðlima safnaðar hans. Þegar við í þessari deild komim saman í bænavilcunni að þessu sinni, og hugsum og biðjum um persónulegar þarfir okkar, þarfir fjölskyldna okkar og safnaða, skulum við einnig minnast þarfa þeirra, sem ennþá eiga eftir að þekkja Krist, sem veginn, sannleik- ann og lífið. "Bæn er nauösynleg í starfi okkar að frelsun sálna." Testimonies, b.4,bls.528. legar við meðtökum frá Guði mikla andlega blessun á þossum tíma, skulum við einnig íhuga þessa ráðleggingu frá þjóni Guðs: "Erjálsar gjafir og tíund- in eru telcjur starfs Drottins." Acts of the Apostles, 74. Fórnartíminn. Með þakklæti minnumst við hinnar glæsilegu fórnar síðasta árs, sem nam 40.448,94 dollurum, þó hún væri um 898,23 dollurum lægri en árið 1951. Þarfir trúboðssvæðis okkar eru mjög miklar. Verkinu miðar áfram. Beiðnin um meira örlæti er mjög áköf. Er við förum að ráðum Páls þetta ár "og yfirgefum ekki vorn eigin söfnuð, sem sumra er siður, heldur uppörvum hvert annað og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær", skulum við einnig minnast áminn-

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.