Bræðrabandið - 01.11.1953, Page 5
5 -
"Breðrabandið11 10.111 3 3
ingar Frelsarans: "ökeypis hafið þdr meðtekið, og ókeypis
skuluð þér af hendi láta."
Eg minni ykkur á, að á seinni árum hefur sjálfs-
afneitunarvikan verið sameinuð bœnavikunni, Fyrir náð Guðs
skulum við gera þessa bænaviku einnig að s.jálfsafneitunar-
viku.
"Við erum í skuld við Guð að nota allt, som hann
hefur trúað okkur fyrir til að opinbera sannleikann með
heilagleika lundernisins, og að senda boðskap viðvörunar-
innar, huggunarinnar, vonarinnar og kærleikans til þeirra,
sem eru í myrkri synGa og villu." L.S. bls.196
1 sambandi við að uppfylla slíkar skyldur sem
þessar, er hvíla á þeim, er trúa þessun síðasta boðskap,
stingum við vinsamlegast upp á því, að allir, scm geta,
íhugi alvarlega hvort þeir vilji ekki fórna einuia viku-
launum. Áðrir kynnu að vilja gcfa launin fyrir besta vinnu-
dag þessarar sérstöku viku, Enn aðrir kynnu að vilja
láta af hendi sérstaka gjöf, sem mundi fela í sér vcrulega
fórn fyrir Meistarann, sem við þjónum, og fólkið, sem situr
í myrkri og bíður eftir ljósinu.
BÆNA- OG SJÁLFSáEDEITUNARVIKAN
Athygli skal vakin á grein br. Rudge um bæna- og
sjálfsafneitunarvikuna. Tíninn er alvarlegur. Áhyggjur
daglega lífsins og annir vilja kæfa andlega lífið. Notum
því vel hið undursamlega tækifæri, sem bænavikan veitir
okkur. Leyfum engu að hindra okkur í að meðtaka blossun
hennar. Verk Guðs þarfnast gjafa okkar, en fyrst og fremst
vill Guð fá okkur sjálf heil og óskipt.
Verum samtaka í því að leita Drottins í komandi
bænaviku og hlustum á það, sem hann vill segja við hvert
einstakt okkar. T „
híDING VELGERÐARSTARFSEMINNAR
1 KRISTNIBODSSTARFINU.
Velgerðarstarfsemin hefur ávallt verið þýðingar-
mikill þáttur í starfi safnaðarins. En á yfirstandandi
tímum eykst þýðing þessa starfs, og hún nun halda áfram að
aukast og margfaldast jafnhliða erfiðleikum síðustu daga.
kað er ljóst að bestu dagar velgerðarstarfseminnar eru
framundan. Ljós heimsins eru óðum að slokkna. Ljós vísind-
anna er dofnað, Fyrir stríðiö trúðu margir því, að vísind-
in mundu frelsa heiminn. En nú hefur það komið í ljós, að
þau hafa framleitt sprengjur og vélar, sem í sameiningu eru
að eyðileggja þá siðmenningu, sem mannkynið hefur byggt upp,
Ljós alþjóðasamninganna er dautt. Sú var tíðin,
að menn byggðu traust sitt á alþjóða friðarsamningum. En
hvernig fór? Ljós heimsins eru að slokkna. En því daufari