Viljinn - 01.10.1939, Page 5
ROBERT CHAPMAtí
vinur hins nafnfræga bænarmanns, George Miiller, var einu
sinni spurður: Munduð þér ekki ráða kristnum æskumönnum að
vinna eitthvað fyrir Drottin?
Robert Chapman svaraði: ”Nei, eg mundi ráða þeim til að
vinna allt fyrir Drottin."
Þetta var hið rétta svar, samboðið sannkristmam manni.
Vinnum eigi sumt fyrir Drottin og sumt fyrir sjálfa okk-
ur eða heiminn. Tvískiptum okkur eigi. Allt fyrir Drottin,
þá þreytumst við aldrei að starfa, því að þá erum við sam~
verkamenn Brottins, og njótum stöðugt fulltingis hans, þá
helgast hvert dagsverk, sem við höfum með höndum, hversu
smátt sem það er. Þá verðum við glaðir verkamenn, "síauðug-
ir í verki Drottins". Þá segir Ðrottinn við okkur í orði
sínu: "Gott, trúi þjónn, þú varst trúr yfir litlu, eg mun
setja þig yfir meira £ ríki mínu."
"Augu Drottins hvarfla -um alla jörðina, til þess að hann
megi sýna sig máttugann þeim til hjálþar, sem eru heils
hugar við 'hann."
Verum heils hugar við Drottin, þá getum við verið örugg
í þjónustu hans. Eins og jafnan er dimmast undir dögunina,
svo er líka hjálp Drottins næst, þegar neyðin er hæst.
Með hverjum nýjum náðardegi fsrumst við nær hjálpræðis-
degi Drottins.
Frá sjónarmiði þeirra, sem eru heils hugar við Drottin,
eru horfurnar um vöxt og viðgang starfsins £ r£ki Guðs jafn
hjartar og fyrirheit Guðs, þv£ að "Guðs samverkamenn erum
vór. ”
Hans er verkið, við erum verkfærin.
(B.J.)
Gef þig allan - ekkert minna
er hór boðlegt; sjálfur hann
ekkert minna en allan gaf sig,
er á krossi deyja vann.
M.J.