Viljinn - 01.10.1939, Qupperneq 6

Viljinn - 01.10.1939, Qupperneq 6
- 6 - í MÁLARASTOFU Framh. Hann talaði til þess á ókunnu máli, um leið og hann lét pokann niður. Stenburg skreið inn í tjalðið. Tunglið lýsti upp hið fátæklega heimili. Ung stúlka lá í fleti úr þurru laufi. Hún var föl og mögur. "Pepíta,” kallar hann. Þegar hún heyrði röödina, opnaði hún augun. Þau voru dökk og yndicleg og ljómuðu eins og áður. Bros lék um varir hennar. Hún reis upp við olnboga og sagði: "Já, nú er minn tími kominn. Eg veit að Jesús rétti líka sínar blóðugu hendur út til þess að frelsa mig." Þessi orð mælti hún við Stenburg að skiln- aði. Þegar Stenburg og Pepíta höfðu legið mörg ár í gröfum sín- um, þá kom ungur aðalsmaður akandi í skrautvagni til Díissel- dorf. Og meðan hann áði hestum sínum, fór hann að slcoða hið fræga listasafn. Hann var ríkur og gáfaður, og það var sem allur heimurinn brosti við honum og byði honum auðæfi sín. Nú stóð hann hugfanginn fyrir málverkinu og las orðin á umgjörðinni: "Allt þetta gerði eg fyrir þig, hvað hefur þú gert fyrir mig?" Hann las þessi orð aftur og aftui’ og gat ekki sljrið sig frá þeim. Þau læstu sig inn í hjarta hans. Kærleikur Krists altók sálu hans. Stundirnar liðu og rökkrið datt á. Dyra- vörðurinn lagði höndina á öxl hins grátandi aðalsmanns og sagði, að tíminn væri kominn til þess að loka safninu. Þaö var komin nótt - nei, fyrir hann var það miklu fremur dags- brún eilífs lífs, Þessi ungi aðalsmaður var Zinsendorf greifi. Hann gekk aftur til gistihússins og inn í vagn sinn. En í stað þess að fara til Parísar, sneri hann við og fór heim. Upp frá þeirri stundu lagði hann nafn sitt, virðingu, auð sinn og alt sitt við fætur Jesú, þess meistara, sem hann vissi nú að hafði dáið fyrir hann. Hann svaraði spurningunni: "Hvað hefur þú gert fyrir mig", með að helga Guði líf sitt og bjóða dauðann velkominn. Hapn var stofnandi hins fræga Bræðrasafnaðar. (Framh. á bls.10)

x

Viljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Viljinn
https://timarit.is/publication/1700

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.