Austurglugginn


Austurglugginn - 30.05.2008, Page 13

Austurglugginn - 30.05.2008, Page 13
 Fimmtudagur 30. maí AUSTUR · GLUGGINN 13 Kajaksportið nýtur sífellt meiri vinsælda og verður margt spennandi í gangi hér fyrir austan í sumar. Helst ber að nefna sjóka- jakmót sem verður á Norðfirði helgina 6. til 8. júní. Það eru Seakayak Iceland og kajak- klúbburinn Kaj sem standa að mótinu sem kennt er við landnámsmanninn Egil Rauða. Mótið er í raun kajakhátíð og í raun stærsta sinnar tegundar hérlendis og verður margt í boði, bæði námskeiðahald, ferðir, fyrirlestrar, sprettróðrar og veltukeppni auk þess sem von er á erlendum gestum. Erlendir ræðarar væntanlegir Búist er við fólki allstaðar að af landinu og er hátíðin góð leið fyrir fólk til að undirbúa sig fyrir róðra sumarsins. Fengnir hafa verið heims- þekktir kajakræðarar til að vera með námskeið og halda fyrirlestra um helgina. Bandaríkjamaðurinn Nigel Foster, sem fyrstur manna reri hringinn í kringum Ísland árið 1977 mun koma, en hann er líklega eftirsóttasti kajakleiðbeinandi í heiminum í dag. Þýski kajaksnillingurinn Freya Hofmeister, sem reri umhverfis Ísland á síðasta ári, sérhæfir sig í veltukennslu og öðrum kúnstum og mun leiðbeina.. Mótið hefst á föstudegi en aðaldagskráin verður á laugardag og sunnudag. Gert er út frá aðstöðu kajakklúbbsins Kaj í fjörunni neðan við Norðfjarðarkirkju, en þar eru bátageymslur og búningsaðstaða. Það verður margt spennandi í boði bæði fyrir byrj- endur og lengra komna. Til dæmis skipulagðar dagsferðir, í eyðifirði, eða kletta- og hellaskoðun og veltukennsla verður í Norðfjarðarlaug á laugardags- og sunnudagsmorgun. Sem hluti af íslandsmeist- aramóti verður sprettróðrarkeppni og veltukeppni. Þyrlubjörgunarsveit Landhelgisgæslunnar hefur verið boðið að taka þátt í björgunaræfingu, þar sem maður er hífður af kajak upp í þyrlu. Í fram- haldi af mótinu stendur ræðurum til boða að taka þátt í 2ja daga róðrarferð. Allir eru velkomnir á hátíðina. Við hvetjum alla kajakræðara og áhugafólk um kajaksportið að kynna sér málið nánar á www.123.is/kaj eða www. seakayakiceland.com . og sjá hvort það finni ekki eitthvað við sitt hæfi um helgina. Mótinu er ætlað að höfða til allra, jafnt áhugasömum sem og þeim sem verið hafa ræðarar í lengri eða skemmri tíma. ÁL Kajakhátíð á Austurlandi Meðfylgjandi ljósmynd tók Ari Ben, Myndin er tekin í ferð á vegum kajakklúbbsins Kaj í norðanverðum Vopnafirði. Sóknarprestur Hátíðarguðsþjónusta verður í Eskifjarðarkirkju kl. 10:30 í tilefni Sjómannadagsins Óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn. HÁRHÖLLIN Sími 471 1331 Dynskógum 4, Egilsstöðum Fjarðabyggð - Fáskrúðsfjörður Heitu pottarnir við sundlaugina Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur samþykkt að setja upp heita potta við sundlaugina á Fáskrúðsfirði. Málið hefur þvælst milli ráða- og nefnda sveitarfélagsins og ekki verið sátt um staðsetningu þeirra. Minnihluti Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði á móti. Fulltrúar flokksins töldu að pottarnir ættu að vera við íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði. Sú staðsetning þjónaði stærri hóp notenda. „Hringlandaháttur og stefnuleysi meirihlutans í þessu máli er furðulegur og jafnvel bros- legur enda fór svo að hann klofnaði í afstöðu sinni til málsins. Meðferð þessa máls vekur óneitanlega upp spurningar um getu meirihlutans í afgreiðslu og framkvæmdum stærri mála,“ segir í bókun minnihlutans. Valaskjálf óskar eftir skemmtilegu starfsfólki í eftirtalin störf: Matreiðslumann Aðstoðarfólk í eldhús Starfsfólk á bar Dyraverði Lágmarksaldur 18 ár. Reynsla æskileg en ekki skilyrði. uppl. í síma 8649209.

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.