Austurglugginn


Austurglugginn - 29.07.2021, Side 2

Austurglugginn - 29.07.2021, Side 2
2 Fimmtudagur 29. júlí AUSTUR · GLUGGINN Skipulagsstofnun skilaði nýlega af sér áliti um mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðs fiskeldis í sjókvíum á Stöðvarfirði. Í álitinu leggst Skipulagsstofnun alfarið gegn því að í fiskeldinu verði alinn frjór lax, en Fiskeldi Austfjarða hf. telur hættuna af eldi á frjóum laxi vera óverulega. Fiskeldi Austfjarða hf. hefur áform um að hefja framleiðslu á 7.000 löxum árlega með sjókvíaeldi á Stöðvarfirði. Stefnt er að fyrstu útsetningu seiða í sumar en fyrirhugað er að setja út 2,5 milljónir seiða annað hvert ár. Leggjast alfarið gegn eldi á frjóum laxi Fiskeldi Austfjarða hafði hug á því að ala frjóan lax í eldinu og taldi að það myndi hafa óveruleg og afturkræf áhrif á erfðablöndun. „Rökstyður fyrirtækið niðurstöðu sína með vísan í fyrirbyggjandi aðgerðir gegn slysasleppingu, staðsetningu eldissvæðisins og litla hæfni eldislaxa til að fjölga sér og búa til harðgerð afkvæmi. Ennfremur er talin lítil hætta á að lax sem sleppur í Stöðvarfirði leiti í ár annars staðar á Austfjörðum eða í ár í öðrum landshlutum,“ segir í niðurstöðu Fiskeldis Austfjarða um hættuna á erfðablöndun af frjóum eldislaxi. Samkvæmt núgildandi áhættumati er óheimilt að ala frjóan eldislax í Stöðvarfirði vegna hættu á erfðablöndun í Breiðdalsá en áhættumatið var gert í maí árið 2020. Þá segir Skipulagsstofnun niðurstöðu Fiskeldis Austfjarða um áhrif eldis á frjóum laxi á erfðablöndun „óforsvaranlega.“ „Að mati Skipulagsstofnunar er um augljóst vanmat að ræða, enda liggur fyrir áhættumat frá Hafrannsóknastofnun, helstu rannsókna- og ráðgjafarstofnunar landsins á sviði nýtingar auðlinda hafsins, sem bannar eldi á frjóum laxi í Stöðvarfirði vegna hættu á erfðablöndun [...] Framkvæmdaraðili lýsir heldur ekki mögulegum áhrifum eldis á frjóum laxi á Breiðdalsá og Stöðvará, eða aðrar ár með lax sem áhættumat erfðablöndunar nær ekki til. Það verður að teljast ámælisvert í ljósi þess að ár með litla laxastofna eru almennt taldar viðkvæmari fyrir erfðablöndun en ár með stærri stofna auk þess sem eldið er staðsett nálægt Stöðvará,“ segir í niðurstöðu Skipulagsstofnunar og jafnframt tekið fram að það sé staðreynd að „eldið er staðsett innan þeirra 5 km fjarlægðamarka sem í dag er gerð krafa um til að vernda ár með villta stofna laxfiska.“ Í niðurstöðum Skipulagsstofnunar kemur skýrt fram að sjókvíaeldi á Stöðvarfirði skuli ekki fá leyfi fyrir eldi á frjóum laxi að óbreyttu áhættumati í firðinum. Fiskeldi Austfjarða áformar því að ala ófrjóan lax á meðan svo er. bþb Stefnt er að því að stækka nýuppgert Lúðvíkshús í Neskaupstað svo hægt verði að hýsa Héraðsskjalasafn Neskaupstaðar og mun stækkunin vera 277 m3. Héraðsskjalasafn Neskaupstaðar hefur verið frá stofnun árið 1979 í umsjón Guðmundar Sveinssonar, héraðsskjalavarðar, og hefur starfsemin til þessa verið á heimili hans. Lúðvíkshús er elsta hús Norðfjarðar og var það flutt inn tilhöggvið frá Noregi árið 1881. Það stóð upphaflega á Nesströnd en var flutt árið 1885 að Nesgötu. Húsið er friðað vegna aldurs og er því bannað að breyta því, rífa eða flytja úr stað nema með leyfi Minjastofnunar. Árið 2013 veitti forsætisráðherra styrk upp á 10 milljónir fyrir endurbyggingu á Lúðvíkshúsi og árið 2015 samþykkti Minjastofnun flutning hússins á Þiljuvelli 13 þar sem það stendur í dag. Alark arkitektar hafa teiknað stækkun á jarðhæð Lúðvíkshúss þar sem fyrirhugað er að héraðsskjalasafnið verði og í maí síðastliðnum óskuðu arkitektarnir eftir áliti Minjastofnunar á breytingunni. Minjastofnun heimilaði þær breytingar sem lagðar voru til. „Stækkun jarðhæðar er lítt áberandi frá götu og hefur óveruleg áhrif á ásýnd og ytra borð hins upphaflega friðaða húss sem þegar hefur verið gert upp á vandaðan hátt,“ segir í niðurstöðu Minjastofnunar. Bæjarráð samþykkti byggingar- leyfið í umboði bæjarstjórnar í síðustu viku. bþb Sótt um leyfi fyrir fjölbýlishúsum Tvær umsóknir um byggingar fjölbýlishúsa í Neskaupstað voru teknar fyrir á fundi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar Fjarðabyggðar í síðustu viku. Annars vegar var sótt um lóð undir 6-9 íbúða hús á svæðinu milli Hafnarbrautar 34-38. Svæðið er ódeiliskipulagt en innan íbúðabyggðar. Afgreiðslu þeirrar umsóknar var frestað og ákveðið að fara betur yfir málið. Nefndin samþykkti hins vegar umsókn um lóð undir par- eða raðhús við Blómsturvelli 29-31 frá sama aðila. Ódýrast að laga Selárdalslaug Kostnaður við nýbyggingu sundlaugar á Vopnafirði myndi nema hundruðum milljóna, samkvæmt greiningu sem Ynni arktektar unnu fyrir Vopnafjarðarhrepp. Innisund- laug við íþróttahúsið er talin kosta 507 milljónir en laug á íþróttasvæðinu 776 milljónir. Endurbætur á Selárlaug eru metnar á tæpar 80 milljónir. Til stendur að kynna hugmyndirnar á íbúafundi í ágúst. Loðnuvertíð bætir hag Útsvarstekjur Fjarðabyggðar hækka um 100 milljónir frá því sem ráð var fyrir gert í fjárhagsáætlun ársins 2021 og rekstrartekjur Fjarða- byggðahafna um 120 milljónir, samkvæmt viðauka við fjárhags- áætlun sem bæjarráð samþykkti nýverið. Auknar tekjur má að miklu leyti skýra með loðnuvertíð. Þetta þýðir að rekstrarniðurstaða A-hluta sveitarsjóðs batnar um 74 milljónir og B-hluta um 122 milljónir, að teknu tilliti til fjárfestinga sem hækka um 19 milljónir í A-hluta en 29 í B-hluta. Er þar um að ræða framkvæmdir svo sem við Breiðablik í Neskaupstað, dagvist aldraðra, Gamla barnaskólann á Eskifirði og leikskólann Lyngholt á Reyðarfirði. Viðaukinn var samþykktur með tveimur atkvæðum meirihluta en fulltrúi Sjálfstæðisflokks sat hjá. Í maí síðastliðnum samþykkti bæjarstjórn Fjarðabyggðar breyt- ingu á deiliskipulagi á miðbæ Eskifjarðar. Breytingin felst í því að efri hluti Lambeyrarbrautar verður gerður að vistgötu og einnig er gert ráð fyrir byggingarlóð fyrir íbúðarhús á milli Lambeyrarbrautar 1-3. Nú hefur sú ákvörðun verið kærð af einum íbúa Lambeyrarbrautar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Íbúinn kærir á grundvelli þess að „ekki var farið efnislega yfir allar þær athugasemdir sem bárust“ og fer því fram á „að afgreiðsla þessi verði dregin til baka og lögð aftur fyrir Eigna-, skipulags-, og umhverfisnefnd til afgreiðslu með öllum þeim athugasemdum sem bárust.“ Efasemdir íbúa Áður en breyting á deiliskipulagi á miðbæ Eskifjarðar var samþykkt sendu hús- og íbúðaeigendur við Lambeyrarbraut bréf til sveitarfélagsins þar sem efasemda gætti um breytinguna. Í bréfinu kemur fram að íbúarnir telji óvissu ríkja í málinu þar sem „ekki væri búið að fullhanna götuna og þær breytingar sem fyrirhugaðar eru.“ Þá segir einnig í bréfinu: „Erum við íbúarnir afar óörugg með hvað felst í raun í breytingu á deiliskipulagi þar sem götunni er breytt í vistgötu og bætt við íbúðarhúsi í þrönga götuna, ofan á þær breytingar sem heldur hafa ekki komið til framkvæmda en voru samþykktar á deiliskipulagi mjög nýlega þar sem götunni er breytt í botnlanga.“ Hluti íbúa við götuna hefur því óskað eftir að breytingunni yrði frestað þar til gatan væri fullhönnuð og leyst hafi verið úr lóðamálum. Þeim varð ekki að ósk sinni og var breytingin samþykkt. bþb MOLAR Héraðsskjalasafn Neskaupstaðar fer í Lúðvíkshús „Um augljóst vanmat að ræða“ Breyting á deiliskipulagi á miðbæ Eskifjarðar kærð

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.