Austurglugginn


Austurglugginn - 29.07.2021, Blaðsíða 8

Austurglugginn - 29.07.2021, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 29. júlí AUSTUR · GLUGGINN til Akureyrar í gegnum Viðfjörð. Það voru haldnar fjölmennar samkomur á þessum árum hjá Framsóknarflokknum í Hallormsstað og hjá Sjálfstæðisflokknum á Egilsstöðum. Það fór fjöldi manns á þessar samkomur og ég man eftir því þegar ég var yngri þá var fólkið ferjað á vörubílum, og sat bara á pallinum upp í Hérað, undir beru lofti,“ segir Freysteinn. Þar sem Norðfirðingar komust ekki langt á bílum sínum nema frá Viðfirði voru geymdir nokkrir bílar í Viðfirði sem Norðfirðingar áttu. „Það voru ófá skiptin sem fólk fékk næturgistingu og fæði hjá okkur. Einhverjar tekjur hafði heimilið af slíku. Ég man eftir einu skipti þar sem fólk var að koma í miklu rigningarveðri af einum af þessum samkomum af Héraði. Eitthvað voru lækirnir erfiðir yfirferðar á leiðinni út í Viðfjörð og rúturnar töfðust. Báturinn kom en fór svo aftur því aldrei komu rúturnar. Loksins skilaði fólkið sér og ég held að þetta hafi verið þrjár rútur, hver rúta hefur sennilega tekið um fjörutíu manns. Það þurfti að hýsa allt þetta fólk og um nóttina lá það inn á gólfi hjá okkur, í hlöðunni og hvar sem hægt var að koma því fyrir. Það var alveg mígandi rigning og daginn eftir þegar fólkið þurfti að komast í bátinn var erfitt að komast að bryggjunni og brugðið á það ráð að nota einn bílinn sem geymdur var í Viðfirði, gamall herbíll, til þess að ferja fólkið að bryggjunni,“ segir Freysteinn og brosir. Þó svo að vegur væri á milli Viðfjarðar og Eskifjarðar var hann oft torfær. „Menn fóru þetta nú á öllum bílum en hann var nú orðinn ófær strax á haustin. Okkar aðalsamgöngur voru á sjó með trillunni sem var í Viðfirði.“ Viðfjörður leggst í eyði Viðfjörður lagðist í eyði árið 1955 þegar flutt var af Viðfjarðarbænum, Stuðlum og Barðsnesi sem voru síðustu bæir Viðfjarðar sem enn var búið á. Guðríður og Guðni fluttu að Naustahvammi á Norðfirði, æskuheimili Guðna, ásamt börn- unum. „Það var ekki mikið talað um að flytja frá Viðfirði áður en sú ákvörðun var tekin,“ segir Freysteinn en með flutningnum var um 200 ára búsetu ættarinnar í Viðfirði lokið. Freysteinn segir að það hafi ekki verið neinn tregi að fara en erfitt er fyrir Freystein að rifja upp þá atburði sem urðu til þess að flutt var frá Viðfirði. „Um nónbil í gær bárust þær fréttir vestan úr Grundarfirði, að þar hefði orðið hörmulegt sjóslys. Síldveiðiskipinu Eddu frá Hafnarfirði hvolfdi nokkrum hundruð metrum undan landi er ofsalegur stormsveipur skall á skipið á mánudagsmorgun. Af 17 manna áhöfn létust 9 skipverjar. Þrír þeirra létust úr kulda og vosbúð,“ sagði á forsíðu Morgunblaðsins 18. nóvember árið 1953. „Með Eddu fórust tveir bræður frá Gerði, þeir Jósep og Sigurður Guðmundssynir, en Sigurður var þá reyndar búsettur í Hafnarfirði. Þetta verður til þess að flutt er frá Gerði árið 1954 þó það sé skráð að það hafi verið flutt þaðan árið 1955 en það er vegna þess að einn maður varð eftir á bænum og sá um féð, en það var Svavar tvíburabróðir Jóseps og bjó hann þennan vetur hjá föðurbræðrum sínum á Stuðlum. Með því að fjölskyldan á Gerði flutti úr Viðfirði var einungis búið á þremur bæjum, Viðfjarðarbænum, Barðsnesi og Stuðlum. Fjölskyldurnar ákváðu í sameiningu að flytja í burtu frá Viðfirði sem lagðist þar með í eyði,“ segir Freysteinn og það leynir sér ekki að þungbært er fyrir hann að rifja upp hræðileg örlög nágranna sinna. „Með því að það fækkaði í firðinum var erfiðara að búa þar. Kannski hefði fjörðurinn lagst í eyði fljótlega, maður veit það ekki, en brottflutningur þeirra setti strik í reikninginn.“ Römm er sú taug Freysteinn og fjölskylda hans halda fast í ræturnar og eiga Viðfjarðarbæinn enn. Þau gerðu hann upp fyrir um þrjátíu árum síðan og honum er vel við haldið. „Fyrstu árin eftir að við fluttum reyndum við að halda bænum við. Það endaði þó með því að það var allt brotið og bramlað í bænum, meðal annars rúður brotnar innan frá sem við vorum búin að negla fyrir. Þá gáfust við upp á því að reyna halda honum við,“ segir Freysteinn. „Það er svo árið 1989 sem að Sveinn bróðir fer að tala um að hann sé búinn að smíða sex glugga fyrir Viðfjarðarbæinn og spyr okkur bræðurna hvort við eigum ekki að fara og laga húsið eitthvað til að utan. Það var upphafið af því að réðumst í endurbætur á húsinu. Fljótlega vorum við búnir að taka allt húsið í gegn. Við skiptum um alla glugga og manni þykir merkilegt, að þeir eru orðnir þrjátíu ára í dag en eru eins og nýir.“ Freysteinn keypti hraðbát sem einfaldaði mjög ferðir fjölskyldunnar út í Viðfjörð. „Við fórum reglulega til Viðfjarðar á bátnum og unnum í húsinu. Fyrst löguðum við það að utan svo það liti sæmilega út. Þá fórum við að velta fyrir okkur hvort það væri ekki sniðugt að taka í gegn eldhúsið og svefnherbergi svo við gætum sofið í húsinu og svoleiðis vatt verkefnið upp á sig,“ segir Freysteinn. Freysteinn segir að fjölskyldan sé stolt af húsinu eins og það er í dag og vonast eftir að því verði haldið við í framtíðinni. „Við erum að vona að einhverjir taki svo við þessu. Páll sonur minn setti upp virkjun sem sér bænum fyrir rafmagni, það er alveg stórkostlegt. Þetta gjörbreytir húsinu að vera kynt upp allt árið, engin fúkkalykt í því eða neitt,“ segir Freysteinn. „Viðfjörður er enn hluti af fjölskyldunni og hún á góðar minningar þaðan, þó svo að ekki sé búið þar lengur,“ segir Freysteinn að endingu. bþb Ljósmyndir fengnar frá Skjala- og myndasafni Norðfjarðar – Héraðsskjalasafninu í Neskaupstað. Systkinin Sveinn, Ólöf og Freysteinn. Viðfjarðarbærinn á síðari árum. Fjölskyldan hóf að gera hann upp árið 1989. Guðríður Þorleifsdóttir, móðir Freysteins, ásamt síðari eiginmanni sínum Guðna Þorleifssyni.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.