Austurglugginn - 11.10.2007, Síða 2
2 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 11. október
Eftir því sem Austurglugginn kemst
næst eru samningaviðræður í gangi
sem tengjast malarréttindum og
malarsölu til Landsvirkjunar vegna
Kárahnjúkavirkjunar úr landi
Laugavalla, og munu vera þar miklir
fjármunir í húfi. “Þetta hangir
allt saman,“ segir Þorvaldur B.
Hjarðar einn fjögurra landeigenda
við Laugavelli. Getgátur hafa verið
uppi um að Landsvirkjun hafi tak
á eigendum Laugavalla vegna
malarréttindanna. En er Lands-
virkjun með eigendur Laugavalla
í skrúfstykki vegna samninga um
malarréttindin, og sölu á þeim til
Landsvirkjunar? “Þetta mál get
ég bara ekki tjáð mig um,” sagði
Þorvaldur. “Ég get bara tjáð mig um
minn hlut í jörðinni.” segir Þorvaldur
þegar hann var þráspurður.
Eigendur Laugavalla í
skrúfstykki Landsvirkjunar?
Eigendur jarðarinnar Laugavellir í Jökuldal ákváðu að una niðurstöðu
matsnefndar um verðmæti vatnsréttinda vegna Kárahnjúkavirkjunar.
Haustroði á Seyðisfirði
Tippalingur valin
fallegasta gulrótin
Haustroðinn fór fram á
Seyðisfirði um helgina, þrátt fyrir
leiðindaveður. Eru menn almennt
sammála um að Seyðfirðingar
hafi verið óheppnir með veður
á Haustroðanum undanfarin ár.
Þeir eru þó hvergi nær af baki
dottnir og stóla á betra veður á
næsta Haustroða.
Ýmsir viðburðir voru í boði á
Haustroða þetta árið. Meðal
annars var keppt í sultukeppni
þar sem 14 heimagerðar sultur
kepptu um verðlaun. Verðlaunin
hlaut Vigdís Helga fyrir sítrónu-
og hunangssultu sína sem gerði
góðan róm meðal dómnefndar.
Nafnlaus
kartafla fallegust
Í fegðurðarsamkeppni rótarávaxt-
anna tóku sex fulltrúar þátt,
þar af voru fjórir verðlaunaðir
sérstaklega. Gulrótin Engilfríð
hlaut titilinn furðulegust og
stærst í flokki gulróta. Fallegasta
gulrótin var valin gulrótin
Tippalingur. Kartöflurnar Hjörtur
og Nýru hlutu titilinn stærst og
furðulegust í flokki kartaflna.
Nafnlaus kartafla Stefáns Ómars
hlaut titilinn Fallegust í flokka
kartaflna. Gestir í Angró kusu í
þessari sérstæðu keppni meðal
rótargrænmetis. Margt fleira var
í boði á Haustroða sem er árleg
uppákoma á Seyðisfirði.
r
Nýr
sérútbúinn
snjótroðari
í Stafdal
26. september gekk
Seyðisfjarðabær frá kaupum
á nýjum snjótroðara af
gerðinni Kossbohrer Pitsen
Bully 200, árgerð 2006.
Þessa ljósmynd tók Björg Jónsdóttir á Vopnafirði á dögunum. Það er ekki
ósjaldan sem við Austfirðingar fáum að njóta slíks sjónarspils skýja, himins
og sólar.
Ólafur Hr. Sigurðsson, bæjar-
stjóri, Harald Hage, Kassbohrer
og Ívar Sigmundsson, Kassbohre,
handsala kaupsamning um
nýjan snjótroðara.
Hið keypta tæki er sýningarein-
tak og er því troðarinn ónotaður
að mestu. Kaupverð er um 20
milljónir komin til landsins.
Þykir troðarinn fjölhæfur og
aflmikill, en hann er sérútbúinn
til að þjónusta brettasvæði. Nýji
snjótroðarinn er væntanlegur til
landsins í desember og má segja
að tilkoma hans sé bylting og
mikil framför fyrir skíðasvæðið
í Stafdal og iðkendur þar.
Uppsagnir á
Breiðdalsvík
Hluta starfsfólks Fossvíkur
á Breiðdalsvík hefur verið
afhent uppsagnarbréf.
Uppsagnirnar taka gildi um
áramót.
Að sögn Ríkharðs Jónassonar
hjá Fossvík vonast hann til
þess að uppsagnirnar taki aldrei
gildi. “Hins vegar er þetta
ákveðin öryggisventill sem við
þurfum að setja með þessum
uppsögnum í ljósi óljósrar
stöðu í sjávarútveginum.” segir
Ríkharður. Fossvík hefur meðal
annars unnið fisk frá Eskju hf. í
verktöku, staðan er því óljós eins
og er hvað varðar framhaldið.
Ríkharður segir þó að blikur séu
á lofti og ákveðin verkefni séu
í bígerð. “Ég ætla rétt að vona
það.” segir Ríkharður aðspurður
um hvort verði hægt að halda
starfsemi Fossvíkur gangandi.