Austurglugginn


Austurglugginn - 11.10.2007, Qupperneq 9

Austurglugginn - 11.10.2007, Qupperneq 9
 Fimmtudagur 11. október AUSTUR · GLUGGINN 9 Leikmennirnir sem Green tekur með sér, þeir Everard Bartlett og Benn Hill, virðast gríðarsterkir. Báðir hafa þeir sýnt Hattarmönnum hvernig skal troða bolta í körfu og hitta af löngu færi. Hill er landsliðsmaður Ný-Sjálendinga og stefnir á að halda sæti sínu í liðinu og fara á Ólympíuleikana í Peking. Bartlett er yngri leikmaður með mikla hæfileika, hann stefnir á að vinna sér sæti í landsliðinu og komast á Ólympíuleikana með Hill. Leikur Bartlett hefur þó verið óheflaður á tíðum, en honum hefur verið líkt við óslípaðan demant í heimalandi sínu. Á laugardaginn spilar lið Hattar fyrsta leik vetrarins í Íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Miðað við styrk leikmannanna má búast við hörkuleik og verður líkast til enginn svikinn af því að fylgjast með leikjum Hattar í vetur. Árið 2003 þjálfaði hann lið Breakers í heimalandi sínu, þá fékk stjórn liðsins fjölda kvartana vegna hegðunar þjálfarans á hliðarlínunni og hefur Green verið sektaður um þúsundi dollara vegna slægrar hegðunar á hliðarlínunni í gegnum tíðina. Green hefur helst verið sektaður vegna óafsakanlegs munnsöfnuðar og móðgana sem beint er til dómara og leikmanna annarra liða auk skringilegra uppákoma af hans hálfu, eins og Ný-Sjálenskir fjölmiðlar nefna það. Seinast var hann sektaður um 500 dollara í ágúst á þessu ári fyrir að missa stjórn á skapi sínu í leik með Waikato Titans sem hann þjálfaði á nýafloknu keppnistímabili. Green hefur einnig vakið athygli nýverið fyrir að gagnrýna harkalega val Ný-Sjálenska landsliðsþjálfarans í landslið Ný-Sjálendinga, og segir val hans byggja á kynþáttafordómum. Reynir að bæta hegðun sína Green hefur undanfarin ár reynt að hemja skap sitt og bæta hegðun sína. Kvaðst hann mjög óánægður með hegðun sína er hann var seinast sektaður fyrir tveimur mánuðum. Það er næsta öruggt að fróðlegt verður að fylgjast með störfum Green í vetur, þó ekki væri nema vegna skapgerðar þessa færa Ný-Sjálenskja þjálfara. Íslandsför Green hefur vakið athygli í körfuboltaheiminum í heimalandi hans, og segir hann meðal annars í þarlendum fjölmiðlum að hann þurfi aðeins að landa þrem sigrum með Hetti í vetur til að ná betri árangri en Hattarliðið náði á síðasta ári. Mun Green “missa það” í vetur? Jeff Green nýr þjálfari Hattar í körfubolta á líklegast eftir að vekja athygli í vetur. Jeff er metnaðarfullur og skapmikill þjálfari. Svo skapmikill að hann er þekktur í heimalandi sínu fyrir hegðun sína á hliðarlínunni í leikjum þeirra liða sem hann hefur þjálfað. Körfuknattleikur Stúlknaliðið spilar sína fyrstu leiki Á síðasta fimmtudag gerði minnibolti í körfuknattleik hjá Hetti sér ferð til Djúpavogs til að etja kappi við Sindra frá Hornafirði. Sögulegir leikir fóru þar fram því stelpnalið Hattar lék þar við strákalið Sindra og Hattar. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem lið frá Austurlandi teflir fram kvennaliði, því er um að ræða merk tímamót í sögu körfuboltans á Austurlandi. Ágætis rómur var gerður að spilamennsku stúlknanna og verður forvitnilegt að fylgjast með þeim í framtíðinni. Þorvaldur á förum Samningur við Fram undir feld Samkvæmt heimildum Austur- gluggans mun Þorvaldur Örlygsson yfirgefa Fjarðabyggð eftir frábæran árangur í sumar. Í samningi Þorvalds og KFF er uppsagnarákvæði sem gerir honum kleift að yfirgefa liðið án skýringa, en eitt ár er eftir af samningi þjálfarans við Fjarðabyggðarliðið. Ólafi Þórðarsyni var sagt upp störfum sem þjálfari Fram í síðustu viku og þykir Þorvaldur Örlygsson meira en líklegur til að taka við starfinu. Þegar Þorvaldur hefur tjáð sig við fjölmiðla um málið hefur hann sagst liggja undir feld að hugsa málin, samkvæmt öruggum heimildum er það hins vegar fyrirsláttur og mun samningur Þorvalds við Framara liggja falinn undir feld þar til honum verður svipt af á næstunni. Þorvaldur hefur náð undraverðum árangri með Fjarðabyggðarliðið síðastliðinn tvö ár og ekki að undra að stórlið Fram skuli vilja klófesta hann hið snarasta. Líklegir eftirmenn Þorvalds eru nefndir Njáll Eiðsson og Brynjar Þór Gestsson. Víkingur spilar í U17 Víkingur Pálmason leikmaður Fjarðabyggðar spilaði tvo leiki af þremur fyrir hönd Íslands í landsliði leikmanna 17 ára og yngri á dögunum. Liðið vann einn leik af þremur og lenti 3. sæti af fjórum liðum í undankeppni fyrir Evrópumótið sem fer fram á næsta ári. Víkingur var einmitt valinn efnilegasti leikmaður Fjarðabyggðar á liðinni leiktíð. Nýir frá Nýja-Sjálandi Eins og Austurglugginn sagði frá fyrr í haust hefur körfuboltaliði Hattar borist liðsauki frá Nýja-Sjálandi. 3. október stjórnaði nýr þjálfari Hattarmanna, Jeff Green, sinni fyrstu æfingu. Talsverður hópur áhorfenda fylgdist með æfingunni og voru heimamenn spenntir að sjá hvernig nýi þjálfarinn og leikmennirnir litu út. Góður rómur er gerður um Jeff Green meðal Hattarmanna og virðist þjálfarinn kunna sitt fag. Everard Bartlett, Benn Hill og Jeff Green. Ónefndur piparsveinn sem æfir með Hattarliðinu læðir sér inn á myndina.

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.