Austurglugginn - 11.10.2007, Page 11
Fimmtudagur 11. október AUSTUR · GLUGGINN 11
Birkir Jón Jónsson þingmaður Norðausturkjördæmis
hefur nú bæst í hóp bloggara landsins. Á bloggsíðu sinni,
birkir.blog.is, fjallar Birkir fyrst og fremst um pólitík.
Hér birtum við athyglis-verða færslu hans um mót-
vægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar.
Ný ríkisstjórn hefur það að
forgangsverkefni að leggja niður
Flutningsjöfnunarsjóð. Sjóðnum
er ætlað að jafna flutningskostnað
á bensíni og olíu um landið. Til
dæmis er bensínið á Þórshöfn 3,30
kr. ódýrara en ella og gasolían 2,20
kr. Nú er það ljóst að verð á eldsneyti
á landsbyggðinni mun hækka í
kjölfar þessara „mótvægisaðgerða“
ríkisstjórnarinnar, þó var það allt of
dýrt fyrir. Þvílík skilaboð á þessum
síðustu og verstu tímum fyrir
margar byggðir landsins!
Stærsti smásöluaðilinn, Bónus, má
eiga það að það er flutningsjöfnun á
vörum fyrirtækisins, sama verð um
allt land. Ég legg til að Jóhannes í
Bónus verði kallaður til og ráðleggi
ríkisstjórninni í þessum efnum. Því
öll viljum við að það ríki jafnræði
milli íbúa landsins í þessu sem
öðru.
Ég verð að viðurkenna að
niðurlagning Flutningsjöfnunar-
sjóðs kemur mér ekki algjörlega
á óvart. Íhaldið hefur á síðustu 12
árum haft uppi tilburði að koma
þessum sjóði fyrir kattarnef en
hefur ekki haft erindi sem erfiði.
Samfylkingin hefur selt sig ódýrt
og þessi ákvörðun er einungis
lítill hluti af þeirri málefnalegu
brunaútsölu sem fram fór á
Þingvöllum síðasta vor.
Svanhvít og Jóna María
Þessa dagana er kornflex í miklu uppáhaldi hjá okkur mæðgum.
Því koma hér tvær uppskriftir með kornflexi;
Við mæðgur skorum á bróður/frænda minn Stefán Arason
tónskáld, sem er búsettur í Danmörku, að vera matgæðing næsta
Austurglugga.
Verði ykkur að góðu.
Svanhvít og Jóna María
Ca. 1 dós af sýrðum rjóma er
hrærð í skál og töfrakryddið sett
út í eftir smekk.
Kornflexið mulið og svo er
kjúklingabringum velt fyrst upp
úr sýrða rjómanum og svo upp úr
kornflexinu.
Bringurnar settar í eldfast mót
og bakaðar í ofni við 180 í ca 30
mín.
Borið fram með híðishrísgrjón-
um, sweet-chilli sósu og góðu
salati.
Kornflexkjúklingur (f. 4)
Kornflexkökur (uppáhaldið hennar Jónu Maríu)
4 kjúklingabringur
(skinn og beinlausar)
1 dós sýrður rjómi
Töfrakrydd frá Pottagaldri
Kornflex
Sírópið og smjörlíkið er hitaði í
potti. Súkkulaðið bætt úti, passa
að láta það ekki sjóða. Kornflexið
aðeins mulið, sett úti og svo í
muffinsform. Vel kælt eða fryst.
4 msk síróp
60 gr smjörlíki
75 gr súkkulaði
100 gr kornflex (gróf mulið,
líka hægt að nota crispies)
ÞVÍLÍKAR
MÓTVÆGISAÐGERÐIR
4.10.2007 | 11:16
klippan
Blogg
20 ára afmæli Fellaskóla var haldið
hátíðlegt á laugardaginn var. Á sama
tíma fór fram uppgjör þemadaga
sem hafa staðið yfir í skólanum.
Fyrsti skólastjóri skólans, Sigurlaug
Jónasdóttir, tók til máls ásamt
Sigurrós Gylfadóttir, sem hefur verið
nemandi, starfsmaður og foreldri við
skólann og þekkir starf hans vel í
gegnum árin. Sýnt var skemmtilegt
og fyndið myndband sem sýndi brot
úr 20 ára sögu skólans.
Myndarlegar
gjafir
Óskar Bjarnason frá Bólholt ehf.
afhenti skólanum myndarlega gjöf
í tilefni dagsins, en það voru 15
skáksett og skákklukkur ásamt úti-
tafli með risvöxnum skákmönnum.
Sverrir skólastjóri hafði það á orði í
gamansömum tón að hann hefði ekki
hlutast til um gjöfina, en hann er
annálaður skákáhugamaður. Ónefnt
foreldri afhenti svo skólastjóra 100
þúsund krónur að gjöf fyrir hönd
dætra sinna sem eru fyrrverandi
nemendur við skólann.
Í lok dagskrár fluttu svo nemendur
lagið “Hjálpum þeim” en salurinn
tók vel undir. Þemadagar skólans
snerust einmitt um hjálparstarf og
var meðal annars fjársöfnun á meðal
nemenda eyrnamerkt hjálparstarfi í
Afríku.
Fellaskóli 20 ára
Það var falleg stund þegar nemendur Fellaskóla sungu “Sameinumst,
hjálpum þeim.”