Austurglugginn


Austurglugginn - 02.09.2011, Page 3

Austurglugginn - 02.09.2011, Page 3
Fréttir frá Fjarðaáli Umsjón: Kristborg Bóel Steindórsdóttir ritstjóri Álpappírsins, fréttabréfs starfsmanna Alcoa Fjarðaáls. Stöðfirsku bræðurnir Margeir, Bryngeir og Guðgeir Margeirssynir eru allir starfs- menn Alcoa Fjarðaáls í sumar. Margeir hefur reyndar unnið í skautsmiðjunni í tæp fjögur ár, en bræður hans komu inn sem sumarstarfsmenn í vor, Bryngeir í kerskála og Guðgeir í steypuskála. Guðgeir er nemi í húsgagnasmíði við Tækniskólann í Reykjavík en Bryngeir er að læra á náttúrufræðibraut í Borgarholts- skóla. Aðeins tvö skólaár eru milli allra bræðranna, Margeir er 22 ára, Guðgeir tvítugur og Bryngeir 18 ára. Við náðum tali af Guðgeir, sem sagði að vinnan kæmi ansi oft til tals við matarborðið í foreldra- húsum á Stöðvarfirði. Búinn með eitt ár í húsgagnasmíði Guðgeir var að klára sitt fyrsta ár í hús- gagnasmíði við Tækniskólann í Reykjavík. „Ég byrjaði í málaranum en það átti ekki við mig. Mér fannst húsgagnasmíðin spenn- andi og er mjög ánægður í náminu. Ég var búinn að vera í sumarvinnu í Reykjavík þrjú síðustu sumur og var alveg kominn með ógeð og langaði að komast austur í vinnu. Margeir hefur mikið talað um vinnuna og hann er mjög ánægður, þannig að það var um að gera að prófa að sækja um. Í fyrstu hræddist ég að ég þyldi ekki vaktavinnuna, en hún hefur lagst vel í mig. Mér finnst þetta fyrirkomulag fínt, en ég lít bara á þessi þriggja daga frí sem mínar helgar,“ segir Guðgeir. Hvernig líkar honum lífið innan veggja fyrir- tækisins? „Bara mjög vel, vaktin mín er fín. Ég er á víravélinni í steypuskálanum. Ég kom ekki inn með neinar væntingar. Þó er kannski eitt, ég varð hálf stressaður á grunnnámskeiðunum, ég var hræddur um að ég þyrfti að muna allt sem þar var sagt. Það er erfitt að meðtaka allt þetta efni áður en maður hefur farið út á starfs- stöðvarnar. Þetta kom svo allt saman. Ég vissi að þetta væri allt saman stórt og mikið, en það hefur vanist alveg ótrúlega,“ segir Guðgeir. Stöðfirskt bræðrabandalag Árlega framleiðir Alcoa Fjarðaál í Reyðarfirði um 346 þúsund tonn af áli til útflutnings, í formi hreins gæðaáls, álblanda og álvíra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýútgefnu staðreyndaskjali Fjarðaáls, þar sem birtar eru helstu lykiltölur um starfsemina og samfélagsleg áhrif hennar. Í skjalinu, sem ber heitið Staðreyndir um starfsemi Alcoa Fjarðaáls, kemur fram að heildartekjur af útflutningi áls frá landinu hafi numið um 220 millj- örðum króna á síðasta ári, en það svarar til um 25 prósenta af útflutningstekjum þjóðarinnar. Fjarðaál er stærsta iðnfyrirtæki landsins og nam hlutur þess í heildarvöruútflutningnum um 17 prósentum. Ekkert annað fyrirtæki hér á landi flytur út meira vörumagn. Fjarðaál flutti út ál fyrir tæplega 790 milljónir dollara, sem svarar til 94 milljarða króna miðað við gengi bandaríkjadollars í desember síðastliðnum. Verðmæti útflutningsins nam því rúmlega 250 milljónum króna hvern dag. Um 33% útflutningstekna fyrirtækisins urðu eftir í landinu, eða rúmlega 31 milljarður króna. Laun, opinber gjöld og keypt þjónusta Að sögn Ruth Elfarsdóttur, framkvæmdastjóra fjár- mála hjá Alcoa Fjarðaáli, greiddi fyrirtækið um 4,3 milljarða króna í laun og launatengd gjöld á árinu 2010 og námu meðallaun starfsmanna 6,9 millj- ónum króna á árinu. Auk þess keypti álverið vörur og þjónustu innanlands fyrir um tíu og hálfan milljarð og 1,1 milljarður króna var greiddur í opinber gjöld til ríkis og sveitarfélagsins Fjarðabyggðar í formi fasteignagjalda, hafnargjalda, orkuskatts og fyrir- framgreidds tekjuskatts samkvæmt samningi við ríkið. Starfsfólk Fjarðaáls greiddi um 1,3 milljarða króna í tekjuskatt og útsvar. Starfsmenn Hjá Fjarðaáli starfa um 480 manns. Guðný Björg Hauksdóttir framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Fjarðaáli, segir að auk þeirra starfi um 320 manns á álverssvæðinu á vegum ýmissa undirverktaka við störf nátengd álverinu. „Hér eru því að jafnaði um 800 manns að störfum,“ segir Guðný. Hún segir að um fjórðungur starfsmanna Fjarðaáls séu konur, en það er hærra hlutfall en í nokkru öðru álveri í eigu Alcoa. Útflutningur frá Fjarðaáli nam 250 milljónum króna á dag

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.