Austurglugginn - 02.09.2011, Page 4
4 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 2. september
BÚÐAREYRI 7, 730 REYÐARFJÖRÐUR
Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Ragnar Sigurðsson • frett@austurglugginn.is • Fréttasími: 477 1750
Auglýsingastjóri og þjónusta við áskrifendur: Lára Björnsdóttir • 477 1571 & 891 6484 - auglysing@austurglugginn.is
Fréttaritari í Neskaupstað: Áslaug Lárusdóttir s. 695 8498 - aslaugl@gmail.com • Fréttaritari á Vopnafirði: Bjarki Björgólfsson s. 865 7471 - kompan@vortex.is
Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf. • Umbrot og prentun: Héraðsprent.
Á NÆSTUNNI...
...verður ár liðið frá Stöðvarfjarðarfundinum
sem haldinn var í kjölfar þess að tilkynnt var
að Íslandspóstur og Landsbankinn áformuðu
að loka útibúum sínum þar. Fundurinn var fjöl-
mennur og teygði umræðan anga sína víða. Þó svo
að umræðan hafi snúist að lokum að mestu um
Þjóðveg 1 þá höfðu nokkrir Stöðfirðingar lítinn
áhuga á þeirri umræðu og bundu ekki miklar vonir
við að sú ákvörðun hefði mikil áhrif á búsetu-
kosti kjarnans. Síðan þá hefur hafist uppbygg-
ing á Sköpunarmiðstöðinni í gamla frystihúsinu,
kaffihús, upplýsingamiðstöð og fleira. Blaðið mun
á næstunni fara yfir orð og efndir fundarins í til-
efni að því að ár er liðið frá því hann var haldinn.
...mun afmælisrit Austurgluggans koma út en í
desember verða 10 ár liðin frá því Austurglugginn
hóf göngu sína. Af því tilefni verður gefið út afmæl-
isrit þar sem m.a. verður farið yfir helstu þætti í
fjölmiðlasögu Austurlands.
...munu sveitarstjórnarmenn á Austurlandi koma
saman og skerpa á sameiginlegum stefnumálum
sínum. Fróðlegt verður að fylgjast með því hversu
vel sveitarstjórnarmönnum gengur að koma sér
saman um ýmis mál sem fullyrt er að þarfnist sam-
stöðu t.d. samgöngumál. Aðalfundur Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi verður haldinn á
Fljótsdalshéraði 30. september næstkomandi og
lýkur deginum þar á eftir þann 1. október.
...kemur það í ljós hvort Hetti og/eða Fjarðabyggð
takist að komast upp í 1. deild í knattspyrnu.
Deildin hefur sjaldan verið eins spennandi og nú
en þegar þrjár umferðir eru eftir á um helmingur
liðanna í deildinni tæknilegan möguleika á því
að komast upp um deild. Ég hugsa að það myndi
gleðja áhangendur beggja liða ef liðin myndu fylgj-
ast að í að fara upp.
...kemur út fullt af skemmtilegum og fréttnæmum
tölublöðum Austurgluggans, viku eftir viku.
...nær gæsaveiðin hámarki og við tekur skemmtilegt
tímabil áhugasamra skotveiðiáhugamanna.
...er hætta á að margir hreindýraveiðimenn verði
við veiði á sama tíma því samkvæmt Vísi.is er
haft eftir hreindýraleiðsögumanni að veiðimenn
séu mun seinna á ferðinni en áður. Það er því rík
ástæða til að fara varlega.
...hefjast þingstörf af fullum þunga en þingfundir
hefjast aftur í dag eftir hlé. Almenningur bíður
eflaust eftir afgreiðslu ýmissa mála í þeirri von
að fá farsæla úrlausn eða a.m.k. svör hvað varðar
sín hagsmunamál þ.m.t. Norðfjarðargöng, fjár-
lög næsta árs og máli málanna hvort sett verði á
laggirnar rannsóknarnefnd til að rannsaka hina
dularfullu en upplýstu ákvörðun sem lá að baki
stuðningi Íslands við loftárásir NATO á Líbýu.
Ekki veit ég hvað það er sem ekki liggur fyrir sem
ætti að rannsaka en það verður fróðlegt að fylgjast
með því máli í meðferðum Alþingis.
...kemur betri tíð.
Lifið heil
Ragnar Sigurðsson
Nú er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn farinn af landi
brott og þá stendur allt til bóta. Ögmundur virðist
kenna honum um flest sem miður hefur farið en
telur hann þó ekki alslæman. Þar sem sjóðurinn
hugsaði meira um að bjarga fjármálakerfinu heldur
en fólkinu þá er ef til vill ekki skrýtið þó eldri
borgarar séu orðnir þreyttir á að geyma peninga
á bankareikningum. Reyna að bjarga þeim undir
koddann áður enn allt brennur upp. Það er svo
sem ekki nýtt að menn fjalli um kjör aldraðra.
Þessa vísu sendi Helgi Seljan en hún er eftir Ólaf
Einarsson er lengi bjó á Jökuldal og Reyðarfirði:
Okkur hrella yfirvöld,
ógna helling kjörum.
Mörgum svellur kveðjan köld
og krókna í ellisnörum.
Ólafur Einarsson
Ingvi Hrafn Jónsson, fréttamaðurinn kjaftgleiði,
olli miklum taugatitringi um daginn þegar
hann kallaði Guðmund Steingrímsson-
Framsóknarhomma. Þetta fór mikið fyrir brjóstið
á einhverjum forsvarsmönnum hjá Samtökunum
78. Samkynhneigðir hafa oft þurft að þola margt í
þjóðfélaginu en að vera kallaðir Framsóknarmenn
er trúlega með því versta sem þeir hafa lent í:
Illa leiknir erum snar
orðin hjörtu svíða.
Fríðir hommar framsóknar
Finnast ekki víða.
Glúmur
Meira af Framsóknarmönnum því
nú er formaðurinn kominn í megrun
og til að ná sem bestum árangri
borðar hann aðeins íslenskan mat.
Víkingar borðuðu ekkert annað
en eðalfóður og meltingarfærin í
Íslendingum ráða ekki við pasta að ég
tali nú ekki um kjúkling og svínakjöt.
Næringarinnihald íslenska matarins
er líka betra en þekkist í hinum stóra
heimi. Það er vonandi að Sigmundur
leggi af en fái samt ekki skyrbjúg er
var þó nokkuð vinsæll sjúkdómur
hér á öldum áður. Líklegasta skýringin á þessum
fullyrðingum hans gæti hreinlega verið að hann
hafi óvart borðað ofskynjunarsveppi í stað íslenskra
lerkisveppa og hafi því ekki verið með réttu ráði
er hann kom með þessar yfirlýsingar. Kannski er
hluti af skýringunni hversu fljótt Sigmundur léttist
sú að maturinn fari ekki of vel í hann.
Matarræðið mikið gaf
miklum tölum strax að flíka
Drýpur lýsið drengnum af
Drullan kannski eitthvað líka
Glúmur
Guðmundur Magnússon fyrrverandi
forstöðumaður Skólaskrifstofu Austurlands
sendi mér eina vísu. Læt ég skýringar hans hér
fylgja. „Ásmundur Helgason (1872-1949) bjó
lengi á Bjargi í gamla Helgustaðahreppi. Hann
var bóndi, sjómaður og fræðimaður. Ásmundur
ritaði ævisögu sína og nefndi hana Á sjó og landi.
Hún er stórmerkileg samtímaheimild. Um þennan
heiðursmann varð þessi vísa til:
Í ártugi sótti hann sjó
Sífellt hress og glaðru.
Ævilangt á Bjargi bjó
bóndi og fræðimaður.
Læt þessu lokið að sinni. Ætlaði mér að fjalla um
hugsanleg landakaup Kínverja en læt það bíða
þangað til í næstu viku. Væri samt sem áður gott
ef einhverjir sendu inn vísur um þetta tiltekna
mál í næsta vísnahorn.
Vinsamlegast sendið á glumur2@centrum.is
eða frett@austurglugginn.is
Vísnahornið
Samfylkingarframsóknarmenn
og megrun Sigmundar Davíðs
Hjalli
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
telur óráðlegt að leggja af
stað í óarðvæn ævintýri.
Tryggðu þér
áskrift að
fréttablaði
austfirðinga
ÁSKRIFTARSÍMI
Sendu netpóst á auglysing@austurglugginn.is
eða hringdu í síma 477-1571.