Austurglugginn


Austurglugginn - 02.09.2011, Side 10

Austurglugginn - 02.09.2011, Side 10
2 Í sumar hefur Landsvirkjun tekið á móti gestum í Végarði sem er gesta- og kynningarstofa Fljótsdalsstöðvar. Þar fá gestir kynningu á Kárahnjúkaframkvæmdinni og kynnast raforkuvinnslu í Fljótsdalsstöð. Í allt sumar hefur verið boðið upp á skipulagðar skoðunarferðir og leiðsögn um Kárahnjúkastíflu og Hálslón. Þau Arna Óttarsdóttir og Dagur Skírnir Óðinsson hafa séð um að taka á móti gestum og segjast þau ánægð með sumarið þó svo að veðrið hafi ekki verið eins gott og síðastliðin sumur. Talsverð aukning gesta hefur verið í sumar og segjast þau f inna fyrir almennri ánægju þeirra á meðal. Auknar gestakomur Arna og Dagur segja að í Végarð komi fólk á öllum aldri og af hinum ýmsu þjóðernum. Íslendingar og Þjóðverjar eru í meirihluta þeirra gesta sem heimsækja Végarð en í sumar hafa þau fundið fyrir tals- verðri aukningu Breta. Merkjanleg aukning er fjölda gesta í Végarð og munar þar mestu um fjölda erlendra ferðamanna sem koma í heimsókn.Ástæða aukningarinnar er sú að brugðið var á það ráð að lengja opnunartímann um þrjár klukkustundir á dag og einnig var lagt upp með það að auglýsa í ár á ensku og setja Végarð inní helstu ferðabæklinga. Skemmtiferðaskip sem leggja við Seyðisfjarðarhöfn koma í skipulagðar ferðir í Végarð með Atlantik en um 1500 manns hafa komið á þeirra vegum í heimsókn. Þau segja að júní hafi verið „fremur rólegur en júlí fór fram úr væntingum okkar og tengjum við það klárlega við betra veður og þar að leiðandi meiri ferðahug Íslendinga og erlendra gesta.“ Mikill áhugi á Kárahnjúkastíflu Helstu spurningar gesta snúa að álverinu og framleiðslu þess. En einnig eru almennar spurningar um gerð virkjunarinnar, hvernig hún virkar og hvert rafmagnið fer. Í sumar var ákveðið að hafa leið- sögumann uppi á Kárahnjúkastíflu sem hefur verið þar til staðar og svarað spurningum gesta í sambandi við stífluna, gljúfrið og lónið og hefur Þórhallur Pálsson leyst það verkefni. Þau Dagur og Arna segjast finna fyrir miklum áhuga á stíflunni og gestir eru almennt mjög ánægðir með þá nýbreytni og auknu þjónustu við ferðamenn. Þau segja jafnframt að „allir gestir sumarsins hafa verið mjög jákvæðir í garð virkjunarinnar og hefur það komið mörgum á óvart hversu mikill metnaður er lagður í að ganga frá, og hafa allt sem snyrtilegast eftir framkvæmdirnar. Einnig hafa margir haft á orði að vélasalurinn sé snyrtilegri en stofan heima hjá þeim.“ Litir og listaverk heilla Frá 10. júní til 10. ágúst var boðið uppá ferðir inn í stöðvarhúsið, sem hafa mælst vel fyrir á meðal gesta. Keyrt er frá Végarði um 2 kílómetra inn í Norðurdal en á leiðinni má sjá margt skemmtilegt, meðal annars Valþjófsstaðakirkju en inni í henni er fræg eftirlíking af hurð sem var skorin út á 13. öld. Háspennulínurnar sem liggja til Reyðarfjarðar sjást vel og einnig línan sem liggur í áttina að Kröflu. Keyrt er yfir frárennslisskurð virkjunarinnar en í honum miðjum er listaverk sem kallast Eilífðardraumurinn eftir Ólaf Þórðarson. Gestum Végarðsstofu hefur þótt listaverkið (báturinn í miðjum frárennslisskurði) mjög áhugavert og hefur verið nefnt að það líti út fyrir að vera búið til úr sápustykki og /eða osti. Þegar rennt er upp að þjónustubyggingunni blasir við tengivirkið og snjóvarnargarður á bak við það. Það er mál manna að það sem sést fyrir utan fjallið sé sérstakt og fallegt og því þykir aðkoman að Fljótsdalsstöð einkar skemmtileg. Því næst er keyrt í gegnum göng, um kílómetra inn í Valþjófsstaðafjall. Þegar inn í stöðvarhúsið er komið sést hversu gríðarlegt mannvirki virkjunin er en vélasalurinn er um 115 metra langur og 34 metrar á hæð. Þar inni gefst fólki tækifæri til þess að virða fyrir sér salinn, lesa sér til og taka myndir. Erlendir ferðamenn hafa sérstaklega gaman af því að fá að sjá inn í virkjunina og hvað þá mega taka myndir. Litasamsetning vélasalarins þykir frumleg og nýtískuleg en litirnir fjólublár og gulur eru þar í aðalhlutverki. Listaverk Betty Bier vekja þá mikla athygli en hún sýnir gifsmót sem tekin voru úr lónsstæðinu áður en byrjað var að fylla upp í Hálslónið. Fjölmargir kostir í Fljótsdal „Við höfum verið í góðu samstarfi við nágranna okkar hérna í Fljótsdal, bæði Snæfellsstofu og Skriðuklaustur, og hvetjum við alla til þess að kíkja þangað sem hingað koma“ segir Arna. „Boðið hefur verið uppá rútuferðir frá Egilsstöðum, þrisvar á dag yfir háanna- tíma sumarsins, inn í Fljótsdal og stoppar rútan meðal annars hjá Hallormsstað, Hengifossi, Skriðuklaustri og hérna í Végarði. Við teljum tilvalið fyrir ferðamenn að nýta þennan kost í að skoða umhverfið í Fljótsdal sem er engu líkt“ segir Dagur. Mikil fjölgun gististaða Gistiplássum í Fljótsdal hefur fjölgað mjög mikið undanfarin tvö sumur með tilkomu Laugafellsskála, gistirýmum Fljótsdalsgrundar og tjaldstæðinu við Végarð. Sú fjölgun á eflaust sinn þátt í aukn- ingu gesta í Fljótsdal en þau Dagur og Arna telja að ferðamönnum komi til með að halda áfram að fjölga næstu árin vegna ýmissa Fjölbreytt og ógleymanlegt sumar Gestum Végarðs fjölgar milli ára Sumarvinnuhópur Fljótsdalsstöðvar að loknu góðu dagsverki.

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.