Austurglugginn - 02.09.2011, Síða 14
14 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 2. september
Dagana 27. og 28. ágúst var haldin þjóðsagnahelgi á
bænum Berufirði í Djúpavogshreppi. Uppákoma þessi
var haldin til styrktar Nönnusafni sem er muna- og
minjasafn staðsett þar á bæ. Yfirstjórn með hátíðinni
var í höndum safnstjórnar. Margir lögðu hönd á plóg
við undirbúning og framkvæmd hátíðarinnar sem
heppnaðist mjög vel í alla staði.
Fjölmargir gestir nutu upplesturs á þjóðsögum og
frásögnum, gömlum og nýjum, bæði innlendum
og erlendum, ásamt tónlistaratriðum og ljóðalestri
á þjóðsagnahelginni.
Hátíðin hófst á laugardag með helgistund
í Berufjarðarkirkju kl. 14. sem séra Sjöfn
Jóhannesdóttir stýrði en einnig voru lesnar helgi-
sögur við athöfnina. Eftir helgistundina nutu
gestir veðurblíðunnar nokkra stund og skoðuðu
Nönnusafn og kirkju undir leiðsögn staðkunn-
ugra. Gestir voru síðan kallaðir til þjóðsagna-
tjalds með tónum töfraflautu, sem blásin var af
og til um helgina ef ná þurfti athygli gesta. Í
tjaldinu hófst sagnaveislan með ávarpi Gauta
Jóhannessonar sveitarstjóra í Djúpavogshreppi.
Var síðan lesið og kveðið það sem eftir lifði dags,
með kaffi- og matarhléum, langt fram eftir kveldi.
Í barnahorni voru lesnar og sagðar sögur fyrir
yngstu gestina. Á sunnudag var síðan gengið til
dagskrár klukkan 14 og haldið áfram þar sem frá
var horfið á laugardag. Berglind Agnarsdóttir frá
Fáskrúðsfirði, núverandi Íslandsmeistari í sagna-
list, kom í heimsókn og töfraði áheyrendur með
ævintýrum af ýmsu tagi og endaði hátíðin með
fjöldasöng undir hennar stjórn. Allan tímann
var veislukaffi, súpa, rabarbaragrautur og fjalla-
grasabrauð á borðum í „Gamlabæ“ í Berufirði
sem nýlega var gerður upp undir eftirliti húsa-
friðunarnefndar og er ekki síður skoðunarverður
en safnið og sóknarkirkjan.
Forsvarsmenn þessa nýstárlega viðburðar og stjórn
safnsins vill koma á framfæri þakklæti til allra
þeirra fjölmörgu, sem lögðu helginni lið með
upplestri, vinnu og góðum gjöfum til safnsins.
Þriðjudaginn, 23. ágúst, fengu
íbúar Vopnafjarðar tilkynningu
frá sveitarfélaginu og heilbrigðis-
eftirliti Austurlands þess efnis að
neysluvatnsmengun hefði komi upp.
Í tilkynningunni var íbúum þétt-
býlisins greint frá því að sökum
gerlamengunar í vatninu væri íbúum
ráðlagt að sjóða neysluvatn, sem
notað væri til drykkjar.
Í tilkynningunni var íbúum greint frá
því að verið væri að leita orsaka og
grípa til ráðstafana. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Helgu Hreinsdóttur,
framkvæmdastjóra heilbrigðiseftir-
lits Austurlands, er talið að einn af
brunnum á vatnstökusvæðinu hafi
laskast og yfirborðsvatn komist inn
á kerfið. Brunnurinn var aftengdur
og hófst sýnataka í kjölfarið og fylgst
með því hvort kerfið næði að hreinsa
sig af menguninni. Á meðan þurftu
íbúar að sjóða allt neysluvatn ætlað
til drykkjar.
Það var svo ekki fyrr en á miðviku-
daginn, 31. ágúst, sem íbúum var
greint frá því að þeir þyrftu ekki
lengur að sjóða vatnið þar sem það
stæðist gæðakröfur neysluvatns-
reglugerðar. Íbúarnir þurftu því að
sjóða allt drykkjarvatn í meira en
viku.
Samkvæmt tilkynningu á vef
Vopnafjarðarhrepps er talið að gerla-
mengunina megi rekja til mikilla
rigninga að undanförnu og af þeim
sökum hafi yfirborðsvatn úr fjallinu
ofan vatnsbólsins komist í brunninn.
Myndir/ Bjarki Björgólfsson
Neysluvatnsmengun í Vopnafirði
Aðal safnþró Vatnsveitu Vopnafjarðar. Brunnurinn er einn af nokkrum í fjallinu en þeir eru
allir innan girðingar.
Vatnstankarnir á Búðaröxl
Nýstárlegur viðburður
Ungur Djúpavogsbúi, Ragnar Sigurður Kristjánsson, var
með upplestur á hátíðinni en hann hefur unnið til verðlauna
í upplestrarkeppnum.
Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri Djúpavogshrepps, ávarpar
gesti.
Hrönn Jónsdóttir, einn skipuleggjenda hátíðarinnar, hélt utan
um dagskrána.