Austurglugginn - 02.09.2011, Blaðsíða 15
Föstudagur 2. september AUSTUR · GLUGGINN 15
• Fylgist með aðstæðum fólks með fötlun.
• Fólk með fötlun getur talað við réttinda-
gæslumann um réttindi sín.
• Réttindagæslumaður aðstoðar fólk við
að gæta réttar síns.
• Réttindagæslumaður getur líka sjálfur
ákveðið að skoða mál.
• Allir sem halda að brotið sé á rétti fólks
með fötlun eiga að tilkynna það réttinda-
gæslumanni.
• Réttindagæslumaður er með fræðslu fyrir
fólk með fötlun og þeirra sem þess óska t.d
aðstandendur og starfsfólk.
Mann-réttindi
Mann-réttindi eru
réttindi sem allir eiga
Allir eiga rétt á heimili - Allir eiga rétt á aðstoð
Allir eiga rétt á frelsi - Allir eiga rétt á virðingu
Réttindagæslumaður fólks með fötlun:
Sigurlaug Gísladóttir
er réttindagæslumaður fatlaðs fólks fyrir
Austurland allt frá og með Hornafirði til
og með Vopnafirði.
• Sigurlaug.gisladottir@rett.vel.is
• Sími 858 1964
• Tjarnarbraut 39 (Vonarland)
• 700 Egilsstaðir
Nú er það undir þér/ykkur komið að
nýta mína þjónustu, þú hringir og við
finnum okkur tíma saman.
Hlakka til að starfa með ykkur.
Réttindagæslumaður á Austurlandi er hálf staða, en vegna
vegalenda á mínu svæði koma vinnutarnir þar sem ekki er
hægt að komast hjá því að vinna meira, og verð ég því að taka
aukavinnu út í fríi og er því ekki alltaf við. Reyni þó alltaf að
vera með síman á morgnanna eftir kl 9 til að hægt sé að bóka
tíma. Sjáumst!
Austurglugginn fjallaði um synjun
framkvæmda á gerð rásar framhjá
svokölluðum steinboga í Jökulsá sem
er í Giljalandi skammt ofan við
Þjóðvegsbrú. Forsvarsmenn veiðifélags
Jökulsár á Dal hafa talið Steinbogann
hefta mjög möguleika árinnar hvað
varðar laxgengd, fjölda veiðistanga
og nýtingu á mögulegum veiðisvæðum
árinnar meðal annars.
Á síðasta fundi í Umhverfis- og hér-
aðsnefnd Fljótsdalshéraðs, sem var
haldinn í síðustu viku, var tekin fyrir
beiðni veiðifélagsins um endurskoðun
sveitarfélagsins á fyrri ákvörðun sinni
um synjun framkvæmda á grundvelli
náttúrusjónarmiða.
Vanhæfi
Áður en umræðan fór fram í nefnd-
inni kom til athugasemdar um
vanhæfi nefndarmanns sem hafði
verið kallaður á fundinn sem vara-
nefndarmaður fyrir Sjálfstæðisflokk.
Athugasemdin var lögð fram vegna
þess að Vilhjálmur Þ. Snædal, bóndi
á Skjöldólfsstöðum, var talinn eiga
hagsmuna að gæta af afgreiðslu
málsins. Vilhjálmur vék þá af fundi
á þeirri forsendu að „tefja ekki
framvindu málsins með hugsan-
legum kærum og veseni“ segir í
fundargerð nefndarinnar. Áður en
Vilhjálmur vék af fundi lét hann
bóka það í fundargerð að hann teldi
sig ekki „vanhæfari í þessu máli en
hvern annan, þar sem nefndarmenn
og sveitarstjórnarmenn fjalla iðulega
um mál sem á ýmsan hátt geta snert
þá sjálfa t.d. forseti bæjarstjórnar
Stefán Bogi Sveinsson sem er starfs-
maður Umhverfisstofnunar og er að
fjalla um þetta mál“ segir í bókun
Vilhjálms.
Lagt fyrir Skipulags –
og mannvirkjanefnd
Skipulags- og mannvirkjanefnd hafði
óskað eftir umsögn Umhverfis- og
héraðsnefndar um málið og hafði
frestað afgreiðslu þess af þeim
sökum. Sú umsögn hefur nú borist
frá Umhverfis- og héraðsnefnd og í
henni leggur hún til að framkvæmda-
leyfi verið veitt.
Eftirfarandi bókun var sam-
þykkt innan nefndarinnar með
tveimur atkvæðum gegn einu
(Ester Kjartansdóttir og Baldur
Grétarsson samþykktu en Aðalsteinn
Ásmundarson greiddi atkvæði gegn
bókuninni).
Bókun Umhverfis –
og héraðsnefndar:
„Umhverfis- og héraðsnefnd leggur
til að framkvæmdaleyfi fyrir fiskveg
um Steinboga í Jökulsá á Dal verði
veitt. Nefndin leggur mikla áherslu
á að rask verði lágmarkað við fram-
kvæmdina og að frágangur verði sem
snyrtilegastur.
Nokkur atriði sem nefndin leggur
sérstaka áherslu á:
1) Ekki verði hróflað við urðinni sem
myndar svokallaðan steinboga.
2) Sú steypa sem notuð verður, verði
lituð til samræmis við bergið í gilinu.
3) Komi til slóðagerðar niður í gilið,
verði verksummerki um hana fjar-
lægð að framkvæmd lokinni.
4) Staðið verði vel að öllu eftirliti
með framkvæmdinni.“
Aðalsteinn Ásmundarson lét bóka
það að „[í]trekuð er sú ósk að lausn
sem ekki felur í sér óafturkræft rask
á náttúrunni, verði fundin.“
Ákveðið hefur verið að hætta
að taka á móti sorpi frá Fljóts-
dalshéraði, Fljótsdalshreppi og
Seyðisfjarðarkaupstað á Heydala-
melum í Breiðdalshreppi. Samkvæmt
upplýsingum blaðsins er ástæðan sú
að þegar Breiðdalshreppur fékk und-
anþágu frá starfsleyfi sínu til þess að
urða sorp frá Héraði og Seyðisfirði
þá var sú undanþága til tveggja ára,
en jafnframt með þeim takmörk-
unum að magnið mætti ekki fara
yfir 2500 tonn á tímabilinu. „Nú
liggur fyrir að magnið er að nálgast
þessa tölu, áframhaldandi undanþága
mun ekki vera fyrir hendi sem og
Fljótsdalshérað komið með heim-
ild til þess að hefja urðun hjá sér“
segir Páll Baldursson, sveitarstjóri
Breiðdalshrepps.
Erindi Veiðifélags
Jökulsár á Dal samþykkt
Sorpurðun í Heydalamelum