Austurglugginn


Austurglugginn - 02.09.2011, Blaðsíða 17

Austurglugginn - 02.09.2011, Blaðsíða 17
 Föstudagur 2. september AUSTUR · GLUGGINN 17 Sláturhúsinu á Egilsstöðum, sími 894 7282. www.slaturhusid.is Myndlistasýning í Frystiklefanum og Vegahúsinu Við þrjár saman: Ásdís Jóhanns • Dagmar Einars • og Þura Halldórs Félagsmenn í Myndlistafélagi Fljótsdalshéraðs sýna verk máluð með olíu á striga. Sýningin stendur út ágúst. Opið mánudaga – fimmtudaga frá 17:00 – 22:00. AusturlandsmiðstöðvarMenningar Austurvegi 42, 710 Seyðisfirði, sími 4721632 / 8695107. www.skaftfell.is, skaftfell@skaftfell.is. Frásagnasafn Söfnunarmiðstöð • Skaftfell – aðalsalur • Stendur yfir Sýningar eru opnar alla daga frá 13:00 til 20:00 eða eftir samkomulagi Næstkomandi sunnudag, 4. septem- ber, verða haldnir tónleikar í kirkju- menningarmiðstöð Fjarðabyggðar á Eskifirði. Fyrri tónleikarnir verða kl. 15:00 og þeir síðari kl. 20:00 sama dag. Tónleikarnir eru haldnir til styrktar fjölskyldufólki og ein- staklingum í Fjarðabyggð sem eiga við fjárhagslega erfiðleika að stríða. Arnleif Axelsdóttir, íbúi Eskifjarðar, átti hugmyndina að styrktartónleik- unum og hafði samband við hóp af reyndu og hæfileikaríku fólki í Fjarðabyggð og allir tóku mjög vel í hugmyndina. Arnleif segir að allir tónlistarmenn og þeir sem koma að tónleikunum hafi viljað leggja sitt af mörkum sem og sr. Davíð Baldursson, sóknarprestur á Eskifirði, sem hefur lánað hópnum kirkjuna til æfinga og tónleikahaldsins. Arnleif seg- ist hafa safnað saman tíu manna hópi á öllum aldri „sem að ég vissi að gæti sungið og fékk þau til að syngja ásamt því að við söfnuðum saman hljómsveit fyrir söngvarana og þar koma fram reyndir tónlistar- menn.“ Hljómsveitin Randúlfarnir frá Eskifirði og Karlakórinn Glaður stíga einnig á svið sem og ungmenni úr tónskólanum sem munu spreyta sig á ýmsum hljóðfærum. Aðgangseyrir á tónleikana er 1500 kr. en frítt fyrir sjö ára og yngri. Arnleif hvetur fólk til að leggja sitt af mörkum til þeirra sem eiga um sárt að binda fjárhagslega með því að leggja verkefninu lið og mæta á tónleikana eða með því að styrkja hjálparstarf kirkjunnar beint með því að leggja inn á reikning: Hjálparsjóður Kirkjunnar: 0166 - 15 – 380065, Kennitala: 520169 – 4079. Styrktartónleikar á Eskifirði Lax Eitt laxaflak – getur verið 800 til 1000 gr. Ein krukka original mango chutney (ekki stór krukka) 3 msk púðursykur 1 ½ msk nýmalaður svartur pipar (svona um það bil) 2 msk Kikkoman sojasósa 4 hvítlauksrif ½ tsk salt (gróft Maldon salt) 1 dós af sýrðum rjóma (ég nota 18% en það er ekki nauðsynlegt) 1 hvítlauksrif (mörðu) svolítið gróft salt (maldon) svolítill sítrónusaf i (eitt kreist) smávegis malaður pipar söxuð basilika (nokkur blöð) - og ef maður vill má líka bæta við saxaðri steinselju. Byrjið á að beinhreinsa laxinn. Mér finnst mjög gaman að plokka beinin úr flakinu og nota við það flísatöng. Skerið laxinn í nokkuð væn stykki, svona u.þ.b. 12 – 15 cm breið. Hrærið saman mango chutney, púður- sykri, pipar og sojasósu í skál og bætið út í mörðum hvítlauk. Stráið salti yfir laxinn. Setjið laxastykkin á fat og smyrjið mango chutney blöndunni á þau, báðar hliðar. Látið standa í stofuhita í að minnsta kosti klukkustund. Hitið grillið vel. Húsbóndinn á heim- ilinu segist pensla grillið með smjöri því þannig festist fiskurinn síður við grindina. Setjið laxinn á grillið, snúið roðlausu hlið- inni niður. Eldunartíminn fer eftir stærð stykkjanna og þykkt en þarf ekki að grilla lengi. Snúið stykkjunum með spaða. Ef menn vilja er hægt að setja stykkin í fiski- klemmu og grilla þannig. Roðið má alveg verða svolítið stökkt. Með laxinum er ágætt að bera fram sósu sem í er: Það má hvort sem er bera fram soðnar eða ofnsteiktar kartöflur með laxinum. Ef þær eru ofnsteiktar er einfaldast að skera kartöflurnar í tvennt (eða fernt ef þær eru stórar), hella ólífuolíu yfir og hræra í. Dreifa svo salti (grófu Maldon) yfir og svolitlum möluðum pipar. Bakað í ofni í u.þ.b. 30-45 mín. við 225°C eða þar til kartöflurnar hafa tekið lit. Það er gott að bjóða ferskt salat með þessu; með káli (grand-salati/íssalati), tómötum, gúrkum og öðru því grænmeti sem til er. Ég skora á mágkonu mína, Hrafnhildi Hólmgeirsdóttur, að vera næsti matgæð- ingur Austurgluggans. Hún kennir mat- reiðslu við Handverks- og hússtjórnar- skólann á Hallormsstað og er einstaklega flink matreiðslumanneskja. Sigrún Blöndal Í sumarlok gef ég lesendum uppskrift að grill- uðum laxi sem við eldum oft á sumrin og hefur þótt mjög góður. Reyndar er það svo að ég grilla ekki sjálf; það gerir maðurinn minn. Því lýsi ég því ekki nákvæmlega hvernig fiskurinn er grillaður en mér er sagt að það sé ekki mjög vandasamt. Sunnudaginn 4. september verður árleg styrktarganga Göngum saman. Í ár verður gengið á ellefu stöðum á landinu, Reykjavík, Akranesi, Stykkishólmi, Patreksfirði, Ísafirði, Hólum í Hjaltadal, Akureyri, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Höfn og Selfossi. Fullorðnir þátttakendur eru beðnir um að greiða kr. 3.000 og renna göngugjöldin óskipt í styrktar- sjóð félagsins. Öll vinna við undir- búning og framkvæmd er unnin af sjálfboðaliðum og margir leggja hönd á plóg um land allt. Félagið hefur staðið fyrir slíkum fjáröflunargöngum frá árinu 2007. Í fyrra var gengið á Reyðarfirði og í ár bætast Egilsstaðir við. Á Reyðarfirði verður gengið frá Stríðsárasafninu og á Egilsstöðum frá bílastæðinu við Selskóg. Forskráning verður á báðum stöðum föstudaginn 2. september kl. 14 – 17, á Reyðarfirði í Molanum og á Egilsstöðum við Samkaup. Að göngu lokinni verður göngufólki boðið í sund í laugunum á Egilsstöðum og Eskifirði. Þá fá allir sem greiða göngu- gjaldið höfuðbuff með merki Göngum saman. Í fréttatilkynningu félagsins segir að „Göngum saman á rætur í gras- rótarstarfi 22ja kvenna sem tóku þátt í Avon göngu í New York í október 2007 en þar var gengið til fjáröflunar fyrir rannsóknir og meðferð á brjósta- krabbameini. Upphafsmaður er dr. Gunnhildur Óskarsdóttir en hún greindist með brjóstakrabbamein fyrir rúmum áratug síðan. Í september 2007 var styrktarfélagið Göngum saman formlega stofnað og stefnan sett á að veita árlega rannsóknarstyrki. Fjöldi félaga nálgast nú fjórða hundraðið“. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu félagsins; www.gongumsaman.is Lausn á gátu nr 7 Lárétt Lóðrétt 1 Dulbúa 2 Usla 5 Þórshöfn 3 Blettótt 8 Valgerður 4 Arðrán 9 Skjalasafn 5 Þorsti 11 Glóandi 6 Öxnadals 12 Sahara 7 Pundara 13 Bílsætin 10 Jólatré 16 Stásstofa 11 Gos 17 Samfélaginu 14 Lágu 21 Nauthóll 15 Nýslegni 24 Búrfell 18 Munaðarlaus 26 Hrylling 19 Grútarsálir 27 Vísvitandi 20 Bolungarvík 29 Rúning 21 Nýhorfinn 31 Ásjálegur 22 Talsverður 32 Nauðung 23 Óviss 33 Gusugangi 25 Fornmetið 34 Ergja 28 Drápan 35 Ráðrík 30 Ugga Styrktarganga Göngum saman

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.