Austurglugginn


Austurglugginn - 02.09.2011, Side 20

Austurglugginn - 02.09.2011, Side 20
Hugleiðing J ákvætt lífsviðhorf er dýrmætt í dagsins önn. Að takast á við verkefnin og óvæntar upp- ákomur með von í hjarta og sjá sóknarfærin í stað þess að gera strax ráð fyrir uppgjöf í kvíða og áhyggjum. Ég þekki fjölskyldu sem á sameiginlega stund einu sinni í viku og ræktar þakklæti með því að sérhver telur upp eitt og annað gott sem borið hefur við undanfarna daga og þakkar fyrir. Þetta er skapandi rækt við jákvætt lífsviðhorf, styrkir pers- ónulega ábyrgðarvitund og eflir þrek til þess að takast á við lífið. Líkamsrækt og útlitsdýrkun er vinsæl, en minna fer fyrir rækt- inni til að styrkja velfarnað í mannlegum samskiptum. Nóg er af öfund og reiði, biturð og sjálfsvorkunn, og margir eru sér- fræðingar í að finna brotalamir í fari annarra, en forðast eins og heitan eldinn að horfa í eigin barm, skynja ábyrgð sína og ját- ast sjálfum sér. Til að komast sæmilega af verðum við einnig að geta sett okkur í annarra spor, rækta æðruleysi og greina við- horf og aðstæður frá ólíkum sjónarhornum. Græðgin á sér oft engin takmörk og veður yfir allt með frekju og tillitsleysi, sérstaklega þegar peningar eru í spilum. Íslenskt þjóðlíf hefur sára reynslu af því og ekki enn bitið úr nálinni með það. Nú þarf íslensk þjóð að stofna til átaks og rækta jákvætt lífs- viðhorf, efla skapandi þátttöku í menningarstarfi og félagslífi, mæra hið góða og fagra, glæða víðsýni og leggja af bölsýni og gremju, greina sóknarfærin og byggja upp. Stjórnmálamenn verða að vakna og fara upp úr skotgröfunum, taka höndum saman þvert á flokka og valda- drauma og rækta traust og trúnað í samskiptum. Ísland er auðugt og fallegt land. Við eigum svo mikil gæði sem við njótum langt um fram aðrar þjóðir og sóknarfærin, stór og mörg, blasa við. Hér á að búa lífsglöð, framsækin og þakklát þjóð. Stefánsson, Heydölum Torfæra Ólafur Bragi Íslandsmeistari í torfæru í annað sinn Fótbolti Markahæsti knattspyrnumaður Íslandsmótsins frá upphafi Um síðustu helgi náði Vilberg Marínó Jónasson, leik- maður meistaraflokks Leiknis á Fáskrúðsfirði, þeim merka áfanga að slá markamet Íslandsmótsins í knatt- spyrnu. Vilberg hefur skorað 12 mörk á tímabilinu fyrir Leikni og hefur því alls skorað 212 mörk á ferlinum. Fyrra metið átti Valdimar Kr. Sigurðsson, núverandi leikmaður Kára frá Akranesi, en hann hafði átt metið um þónokkurt skeið. Valdimar lagði skóna á hilluna árið 2009 en dró þá fram að nýju á þessu tímabili og því við búist að þeir muni berjast um þennan titil áfram. Alls hefur Vilberg skorað 212 mörk en Valdimar 210. Á heimasíðu Leiknis segir að „af þessum 212 mörkum hefur Villi skorað 123 fyrir Leikni í 132 leikjum.  Ef bikarleikir með Leikni eru taldir með þá eru mörkin 133 í 141 leik. Það gerir rúmlega 0,94 mörk í leik. Sem er frábært“. Aðspurður segist Vilberg vera „mjög ánægður með að hafa náð þessum áfanga, þetta er eitthvað sem ég hef stefnt á nokkuð lengi. Ég vil þakka þeim sem hafa spilað með mér og vil meina að ég hafi verið heppinn með liðs- félaga í gegnum tíðina. Varðandi framhaldið þá tek ég bara eitt tímabil í einu og svo lengi sem ég er laus við meiðsl og get gert gagn á vellinum þá held ég áfram.“ Ólafur Bragi Jónsson, ökuþór frá Egilsstöðum, varð nýverið Íslandsmeistari í torfæruakstri í annað sinn. Ólafur Bragi tók þátt í þremur keppnum í sumar og vann þær allar. Ólafur Bragi vann keppnirnar á Akureyri, Egilsstöðum og þá seinustu á Blönduósi en eknar voru fjórar umferðir í Íslandsmótinu. Með sigrinum á Blönduósi endurheimti hann titilinn sem hann vann árið 2008. „Mér fannst ég þurfa að hafa meira fyrir titlinum þá. Gömlu samkeppnisaðilarnir eru hættir og nýir teknir við sem eiga eftir að öðlast reynslu,“ segir Ólafur. Útlitið var ekki gott fyrir Ólaf eftir fyrstu þrautina á Blönduósi þar sem hann var seinastur. Hann snéri við taflinu í annarri braut sem hann kláraði einn og var orðinn efstur eftir þá þriðju. Þótt bilun kæmi upp í bílnum keyrði hann rólegur til loka og vann. Það hjálp- aði að helsti keppninautur hans, Jóhann Rúnarsson á Trúðnum, heltist úr lestinni eftir þriðju braut. GG

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.