Austurglugginn


Austurglugginn - 02.12.2021, Side 2

Austurglugginn - 02.12.2021, Side 2
2 Fimmtudagur 2. desember AUSTUR · GLUGGINN Héraðssaksóknari hefur ákært ríflega fertugan karlmann fyrir fjölda afbrota, meðal annars tilraunir til manndrápa, gegn barnaverndarlögum, vopnalögum og eignaspjöll. Maðurinn gekk berserksgang í götunni Dalseli á Egilsstöðum í lok ágúst. Maðurinn er ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að hafa þar farið inn í hús með það að markmiði að ráða húsráðanda bana. Sá var ekki heima en í staðinn miðaði maðurinn haglabyssu að tveimur sonum hans sem voru heima. Þeir flúðu út í skóg. Maðurinn skaut af bæði skammbyssu og haglabyssunni í húsinu. Áður hafði hann beint skammbyssu að sambýliskonu sinni á heimili þeirra. Maðurinn er einnig ákærður fyrir tilraun til manndráps með að hafa skotið úr haglabyssu að tveimur lögreglumönnum sem voru í skjóli á bakvið bíl sem lagt var fyrir framan húsið í Dalselinu. Hluti þeirra skota hafnaði í íbúðarhúsi á móti. Þá er manninum gefið að sök að hafa beint byssu sinni að öðrum lögreglumannanna þar sem hann hafði leitað skjóls á bakvið lögreglubíl. GG Skógræktin og nýsköpunarfyrirtækið Yggdrasill Carbon ehf. (YGG) skrifuðu í síðustu viku undir viljayfir- lýsingu um fyrirhugaða samvinnu varðandi skógræktarverkefni til kolefnisbindingar. Skógræktin og YGG hafa átt í samstarfi síðustu misseri en með yfirlýsingunni er það formfest. YGG vinnur að því tryggja vottun á kolefnisbindingu skógræktar. Meðal þeirra vottunarstaðla sem unnið hefur verið með er Skógarkolefnisstaðall Skógræktarinnar. „Við höfum átt í miklum samskiptum við YGG síðustu árin, fyrst eigendur og nú síðustu misseri starfsfólkið, og sjáum að félagið er að leggja áherslu á langtímahugsun og vönduð vinnubrögð. Það er mikil þörf fyrir þekkingarfyrirtæki á þessu sviði á Íslandi og tækifærin eru spennandi,“ sagði Þröstur Eysteinsson, skógræktarstjóri. Skógræktin og YGG vinna að verkefnum um nýskógrækt og nýtingu kolefnisbindingar í eldri skógum. „YGG ætlar sér að vera leiðandi fyrirtæki þegar kemur að kolefnisbindingarverkefnum, hvort sem það er á sviði landnýtingar, tækniframfara eða með öðrum hætti. Skógrækt skipar þar mjög stóran sess, enda tækifæri á því sviði mikil á Íslandi og hliðaráhrif slíkrar starfsemi almennt mjög jákvæð,“ segir Björgvin Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri YGG. GG Veira sem valdið getur sjúkdómnum blóðþorra í laxi (ISA) hefur greinst í eldislaxi úr sjókví Laxa fiskeldis við Gripalda í Reyðarfirði. Stöðin var einangruð og öllum fiski úr kvínni slátrað um helgina. Búið er að senda sýni erlendis til staðfestingar. Tvær útgáfur eru til af ISA veirunni. Önnur, skaðlaus, er talin þrífast í umhverfi allra laxa en önnur veldur sjúkdómi og jafnvel dauða fiska. Athuganir hófust hjá Löxum eftir óeðlilega mikil afföll. Talið er að skaðlausa veiran geti stökkbreyst, er það talið gerast í 0,7% tilvika. Illkynja veiran hefur fundist víða í eldi erlendis en ekki áður hérlendis. Hún berst ekki í fólk og síðast þegar hún kom upp, í Færeyjum fyrir fimm árum, var fiskur úr nálægum kvíum nýttur til manneldis. Fiskurinn sem fargað er vegna veirunnar verður mulinn og fluttur til Noregs þar sem hann verður notaður í áburð. Til stendur að slátra öllum fiski úr kvíunum við Gripalda og hvíla svæðið þar til tryggt þykir að veiran sé horfin úr umhverfinu þar. GG Eina tilboðið frá Héraðsverki Héraðsverk á Egilsstöðum átti eina tilboðið í gerð sjóvarna á Eskifirði og Norðfirði, sem opnuð voru nýlega. Annars vegar er um að ræða 250 metra langa vörn við gamla frystihúsið í Neskaupstað, hins vegar endurbyggingu varna við Strandgötu á Eskifirði á um 95 metra kafla. Héraðsverk bauð 36,8 milljónir, 32,5% yfir kostnaðaráætlun sem var 27,8 milljónir. Verkinu á að vera lokið 15. júní á næsta ári. Samþykkja aftur skipulag á Eskifirði Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd Fjarðabyggðar hefur samþykkt að nýju breytingu á skipulagi við Lambeyrarbraut á Eskifirði þannig að gatan verði vistgata og ný íbúðarlóð bætist við. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála úrskurðaði skipulagið ógilt þar sem ekki hefði verið rétt verið staðið að svörun athugasemda þegar það var upphaflega samþykkt í vor. Á síðasta fundi voru lögð fram svör við fjórum athugasemdum sem bárust, en málsmeðferð skipulagstillögunnar var endurupptekin frá þeim tíma sem frestur til athugasemda rann út. Haldið til haga Í umfjöllun Austurgluggans þann 18. nóvember sl. um jarðgangakosti á Austur- landi í nýrri samantekt Vega- gerðarinnar var misritað að göng undir Berufjarðarskarð og Breiðdalsheiði myndu stytta leiðina milli Egilsstaða og Djúpavogs um 15 km. Hið rétta er að þau myndu stytta leiðina um 60 km, miðað við núverandi legu þjóðvegar nr. 1, þótt hún yrði eftir sem áður ögn lengri en yfir Öxi. Styttingin á leiðinni milli Breiðdalsvíkur og Djúpavogs er hins vegar 15 km. MOLAR Grunur um blóðþorra í eldi Laxa í Reyðarfirði Skógræktin og Yggdrasill Carbon í samstarf Ákærður fyrir fleiri en eina tilraun til manndráps Við undirritun viljayfirlýsingarinnar. Standandi frá vinstri: Hilmar Gunnlaugsson lögmaður og stjórnarformaður YGG, Ingibjörg Jónsdóttir, land- og umhverfisfræðingur og verkefnisstjóri hjá YGG. Sitjandi: Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri og Björgvin Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri YGG. Mynd: Skógræktin Frá eldissvæðinu við Gripalda. Mynd: GG

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.