Austurglugginn


Austurglugginn - 02.12.2021, Side 3

Austurglugginn - 02.12.2021, Side 3
Fréttir frá Síldarvinnslunni Ábyrgðarmaður: Gunnþór B. Ingvason Framkvæmdir ganga vel Framkvæmdir við stækkun fiski- mjölsverksmiðju og löndunarhúss Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hófust sl. vor og hafa gengið vel. Stækkun verksmiðjunnar verður skipt í tvo áfanga. Í fyrri áfanganum verður reist 2000 fermetra verksmiðjuhús og komið upp lítilli verksmiðjueiningu sem á að geta afkastað 380 tonnum á sólarhring. Þessari litlu verksmiðjueiningu er ætlað að vinna afskurð frá fiskiðjuveri fyrirtækisins auk þess sem hún verður notuð við þróunarverkefni. Í síðari áfanga stækkunarinnar verður komið fyrir búnaði sem eykur afkastagetu verksmiðjunnar úr 1.800 tonnum á sólarhring í 2.380 tonn. Búnaðinum í nýja verksmiðjuhúsinu verður komið fyrir í skrefum án þess að það hafi áhrif á framleiðslustarfsemina þannig að fiskimjöl og lýsi verður stöðugt framleitt þrátt fyrir viðamiklar framkvæmdir. Samtímis er unnið að stækkun löndunarhússins um 300 fermetra. Í því verður síðan komið upp búnaði sem mun tvöfalda afköstin við vinnslu á loðnuhrognum. Framkvæmdir við verksmiðju- húsið hafa gengið ágætlega. Áður en eiginlegar byggingarframkvæmdir hófust þurfti að færa lagnir og leggja nýjar og föstudaginn 19. nóvember sl. var síðan platan steypt. Nú er að hefjast vinna við að reisa húsið, sem er stálgrindarhús. Sama má segja um stækkunina á löndunarhúsinu, þar hafa framkvæmdir gengið samkvæmt áætlun. Nú er húsið risið og vinna hafin innanhúss meðal annars við uppsetningu tækjabúnaðar. Áætlaður heildarkostnaður við þessar framkvæmdir er hátt í fimm milljarðar króna. Plata nýja verksmiðjuhússins var steypt 19.nóvember sl. Viðbyggingin við löndunarhúsið.Uppsetning á búnaði í nýja löndunarhúsinu er hafin. Á yfirstandandi ári hafa miklar annir verið í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Aldrei hefur verið tekið á móti jafn miklum afla til vinnslu og á þessu ári. Frá því í júnímánuði hefur verið nánast samfelld vinnsla á vöktum og á þeim tíma hefur verið landað yfir 70 þúsund tonnum af makríl og síld í fiskiðjuverið. Fyrr á árinu höfðu verið unnin 11.000 þúsund tonn af loðnu þannig að móttekin afli til vinnslu er rúmlega 82.000 tonn og enn heldur vinnsla áfram. Jón Gunnar Sigurjónsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuverinu, segist vera mjög sáttur við yfirstandandi ár. „Það hefur í reyndinni allt gengið eins og best verður á kosið. Veiðar hafa gengið vel og við höfum frábært starfsfólk til að vinna úr aflanum. Öll áhersla er lögð á að skipin komi með ferskan og góðan fisk að landi og það skiptir miklu máli. Við erum enn að vinna íslenska sumargotssíld en síðan er risaloðnuvertíð framundan og þá þurfa öll hjól að snúast hratt. Við bíðum eftir að loðnuveiðarnar hefjist en oft er þó áta í loðnunni á þessum árstíma og því er gert ráð fyrir að loðnufrysting fari ekki í gang fyrr en eftir áramótin. Í okkar iðnaði skiptir mestu að veiðarnar og vinnslan séu ein skipulagsleg heild. Þegar svo er næst góður árangur eins og við erum svo skýrt að upplifa á þessu ári,“ segir Jón Gunnar. Gott ár í fiskiðjuverinu Miklar annir hafa verið í f iskiðjuveri Síldarvinnslunnar á árinu. Ljósm. Smári Geirsson

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.