Austurglugginn


Austurglugginn - 02.12.2021, Síða 6

Austurglugginn - 02.12.2021, Síða 6
6 Fimmtudagur 2. desember AUSTUR · GLUGGINN Fyrirtækið Hecate Independent Power (HIP) áformar byggingu tveggja stórra vindmyllugarða úti fyrir Austfjörðum. Alls gætu garðarnir framleitt 2 GW af rafmagni sem seld yrði beint til Bretlands um sæstreng. Fulltrúar fyrirtækisins hafa þegar rætt við íslensk stjórnvöld og sveitarstjórnir á svæðinu. HIP er samstarfsverkefni hins bandaríska Hecate Wind og breska Independent Power Company (IPC). Hecate Wind er hluti af stærri samsteypu undir merkjum Hecate sem sérhæft hefur sig í stórum orkuverum með endurnýjanlegum orkugjöfum, einkum sólarorku meðan IPC hefur undanfarin 25 ár komið að orkuverkefnum, einkum varðandi gas, víða um heim. Verkefnið hérlendis er rekið undir merkjum Kári Energy. HIP var stofnað í fyrra og skráð í Bretlandi. Samkvæmt skráningarskjölum þess er tilgangurinn framleiðsla, dreifing og flutningur orku. Stjórnarformaður þess er Sir Tony Baldry en hann gegndi ráðherraembættum í ríkisstjórnum breska íhaldsflokksins í byrjun tíunda áratugarins. Hann var meðal frummælenda á málþingi Kára um nýtingu vindorku á hafi úti fyrir Íslandi, sem sent var út frá Hörpu fyrir tveimur vikum. Af öðrum frummælendum má nefna Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðarráðherra og breska sendiherrann Bryony Mathew auk lykilfólks frá bæði Hecate og IPC. Ótrúlegur vindur Þar á meðal var Dr. Paul Turner, framkvæmdastjóra HIP, sem daginn eftir kom austur á land til að ræða við fólk á svæðinu og afla frekari gagna. Það var ekki hans fyrsta ferð til Íslands. „Við fjölskyldan bjuggum áður í Arizona þar sem dóttir okkar var í skóla með íslenskri stelpu. Við fjölskyldan fórum í frí hingað 2018 og voru á leið í átt að Vík þar sem móðir stúlkunnar á bústað. Við stoppuðum í Reynisfjöru á leiðinni og um leið og ég steig út úr bílnum fann ég þennan ótrúlega vind,“ segir Paul. Hafandi unnið endurnýjanlegum orkugjöfum, einkum vindi, í meira en 20 ár kveðst hann strax hafa orðið spenntur fyrir að nýta íslenska vindinn. Hann hafi þó fljótt áttað sig á að fáeinir Íslendingar, með alla þá orku sem landið hefur, myndu aldrei standa undir kostnaði af vindmyllugarði af þeirri stærðargráðu sem Paul hugsaði. „Ég náði í kort og reiknaði hve langt væri til Bretlands. Ég hélt áfram, sótti ráðstefnur í bæði Bandaríkjunum og Bretlandi og talaði við sérfræðinga. Ég komst að því að Austurland er það landsvæði sem næst er Bretlandi og að leiðin fyrir rafstreng er ekki djúp, samanborið við að úti fyrir Vestmannaeyjum eru miklir djúpálar.“ Hann kveðst hafa haldið áfram og leitað til íslenskra og erlendra ráðgjafa. „Þú ert alltaf að leita að ástæðu til að segja nei og hætta við en við héldum áfram að haka við atriði þótt við færum niður listann. Það er ekki nóg að það sé hvasst einn dag, heldur þarf stöðugan vind til að standa undir milljarða orkuveri eins og við leggjum hér til. Við þurfum líka að huga að svæðum þar sem við erum ekki fyrir fiskveiðunum.“ Kleinuhringirnir Þessi rammi leiddi Paul og samstarfsfólk að svæðum úti fyrir Austfjörðum. Vindurinn og fjarlægðin frá Bretlandi afmarkar einkum svæði frá Hornafjarðardjúpi austur á Hvalbaksgrunn, þótt það teygi sig úti allt norður til Reyðarfjarðar. Bæði úti fyrir Reyðarfirði og á Hvalbaksgrunni eru svæði sem Paul kallar „gatið í kleinuhringjunum.“ „Við sjáum það af upplýsingum að þarna er hvorki umferð far- né fiskiskipa, farfuglarnir virðast sveigja hjá, vindhraðinn er stöðugur og ekki of djúpt niður á botn,“ útskýrir hann. HIP hefur safnað gögnum um vindafar við Ísland úr gervihnattagögnum frá bæði Bandaríkjunum og Evrópu. Bæði magn og gæði gagnanna hafa aukist síðustu 5-10 ár. „Við sjáum þarna um 35 km/klst meðalvindhraða. Þarna er mikill vindur, það þarf ekki að segja neinum sem býr í nágrenninu. Við ströndina er víða skjól og því getur gert gæfumuninn að fara nokkra kílómetra frá landi,“ sagði Rich Simon, veðurfræðingur sem unnið hefur með Hecate á ráðstefnunni í Hörpu. Vantar lög hérlendis Samkvæmt upplýsingum frá Orkustofnun hefur HIP kynnt fyrirætlanir sínar en engin formleg erindi hafa borist enn. Raforkuvinnsla í sjó er utan rammaáætlunar og reyndar er ekkert í íslenskum lögum sem heimilar hana. Ýmsar reglur eru þó til í nágrannalöndum auk þess sem heimfæra má ýmislegt úr reglum um orkuvinnslu á landi. Í grófum dráttum er þó staðan sú að hugmyndir HIP virðast ekki ganga upp innan núverandi lagaramma hérlendis. „Við höfum rætt við bæði iðnaðar- og forsætisráðherra auk embættismanna og það hafa allir tekið jákvætt í umleitanir okkar. Við áttum fundi í júní og nú bíðum við svara við okkar hugmyndum. Við viljum fara í gegnum rétt ferli,“ segir Paul. Hann bendir fordæmi frá Texas um að ráðist hafi verið í vindorkugarð á hafi með reglum um landi og að hægt sé að taka upp reglur frá Norðurlöndunum eða Bretlandi. „Ég hef trú á að við getum lagt fram verkefni sem uppfyllir allar kröfur sem gerðar eru í þessum löndum, ef sjálfstæður aðili tæki það út.“ Hann varar Íslendinga þó við að taka of langan tíma. „Orkuiðnaðurinn breytist ört og Bretland vill kolefnisjafna sig hratt. Þess vegna erum við hér,“ segir hann. Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sagði á málþinginu að vindorkuvinnsla á hafi úti hefði verið lítið rædd hérlendis meðan ör þróun væri í öðrum löndum. Verk sé fyrir höndum þar sem engin sérstök löggjöf sé til hérlendis, þótt horfa megi til reglna af landi. Hún sagði Kára verkefnið metnaðarfullt og því verðskuldaði það athygli og frekari umræður. Hún sagði vindorkuvinnslu á hafi nokkrum sinnum hafa verið rædda á fundum núverandi ríkisstjórnar. Vinna við stefnumótun um hana hefði hafist með vinnustofu í ráðuneytinu í september. Við hana þurfi að líta til ýmissa þátta, meðal annars umhverfisáhrifa. Hvor garður um 400 ferkílómetrar Áform HIP ganga út á að byggja upp tvo vindmyllugarða. Hvor um sig gæti framleitt 1000 MW (1 GW) af orku. Til samanburðar er uppsett afl Kárahnjúkavirkjunar 690 MW. Kostnaðurinn er áætlaður 2,5-3 milljarðar dollara, 330-400 milljarðar íslenskra króna á núverandi verðlagi við einn garð. Hvor garður nær yfir um 400 ferkílómetra svæði, ígildi gamla Borgarfjarðarhrepps. Um 1-2 km eru á milli hverrar vindmyllu. Þegar vindurinn lendir á spöðum einnar aflagast hann og missir styrk. Eftir þessa vegalengd á vindurinn aftur orðinn eðlilegur þannig að næsta mylla geti framleitt fullt afl. Hver vindmylla er um 130 metrar á hæð, frá sjávarborði upp í turn, en síðan bætast við 110 metrar, lengdin á spaða, upp í hæstu stöðu sem yrði þá 240 metrar, tæplega tveir Hengifossar. Mesta sjávardýpi á svæðinu er ætlað 150 metrar. Myllurnar verða fljótandi, ekki á steyptum undirstöðum niður á botn eins og þekkist. Mismunandi tækni er fyrir hendi til að halda þeim á floti en þær Vilja virkja vindorku úti fyrir Austfjörðum og selja til Bretlands Orkumál Paul Turner, framkvæmdastjóri HIP. Mynd: GG

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.