Austurglugginn - 02.12.2021, Qupperneq 7
AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 2. desember 7
Múlaþing
Sími 4 700 700
mulathing@mulathing.is
mulathing.is
Laus störf í nýrri leikskóladeild
Hádegishöfða við Vonarland
Fyrirhuguð er opnun nýrrar leikskóladeildar á Vonarlandi Egilsstöðum
sem verður rekin undir hatti leikskólans Hádegishöfða.
Hádegishöfði er tveggja deilda leikskóli í Fellabæ sem starfar í anda Reggio Emilia, áhersla er á umhverfismennt og er
Hádegishöfði skóli á grænni grein. Megináherslur í daglegu starfi eru að efla sjálfstæði, gleði og sköpun barna sem og
virðingu þeirra fyrir sjálfum sér og öðrum.
Um er að ræða eftirfarandi störf:
• Deildarstjóra 100% stöðugildi
• Leikskólakennara 100% stöðugildi
Næsti yfirmaður er leikskólastjóri.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 3. janúar nk.
Hæfniskröfur í starf deildarstjóra:
• Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
• Reynsla af starfi deildarstjóra í leikskóla er æskileg
• Reynsla af vinnu á leikskóla er æskileg
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Áhugi á að vinna með börnum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til 7. desember nk.
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólanum þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá
Ríkissaksóknara.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Vala Jónasdóttir leikskólastjóri í síma 4700-670 eða á netfanginu
vala.jonasdottir@mulathing.is
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.
Tekið er við umsóknum í starfið á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is undir flipanum „laus störf“
eða á starfasíðu Múlaþings hjá www.alfred.is.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda,
sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Hæfniskröfur í starf leikskólakennara:
• Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn).
Ef ekki fæst kennari verður ráðinn starfsmaður
með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Áhugi á að vinna með börnum
• Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta
UPPTAKTURINN Á AUSTURLANDI
Opið fyrir innsendingar tónverka á Austurlandi til 31. desember
Krakkar í 5.-10. bekk hafa hér
einstakt tækifæri til að senda inn
drög að tónverki/lagi sem þau
semja sjálf og komast þannig inn í
skemmtilegar tónsmíðavinnustofur
sem haldnar verða eina helgi í byrjun
næsta árs í Tónlistarmiðstöðinni á
Eski rði.
Höfundar tónverka fá aðgang að
tónsmiðjum í Tónlistarmiðstöðinni
og vinna þar markvisst úr
hugmyndum sínum með fulltingi
tónlistarlistarmanna og í framhaldi
fá tónsmiðirnir að hljóðrita demó
í Studio Silo. Dómnefnd velur svo
einn höfund frá Austurlandi og
tónverk hans til áframhaldandi
þátttöku í Upptaktinum í Reykjavík,
vinnustofum og tónleikum í Hörpu á
Barnamenningarhátíð í apríl.
Lengd tónverks skal vera 2-6 mínútur
að hámarki en þau geta bæði verið
einleiks- og samleiksverk fyrir allt að
mm ytjendur.
Skila þarf tónsmíð inn í
hefðbundinni eða grafískri
nótnaskri eða sem hljóðriti á MP3/
Wav/Myndbandi. Hugmyndir s.s.
upptökur, nótur, texti eða grafísk
lýsing má endilega fylgja með
verkinu.
Markmið með Upptaktinum á
Austurlandi eru þríþætt
1. Að styðja við tónsköpun ungs
fólks og hvetja börn og unglinga
á Austurlandi til að tjá sig með
tónlistarsköpun og semja eigin
tónlist.
2. Að aðstoða börn og unglinga
á Austurlandi við að fullvinna
hugmyndir sínar í vinnusmiðju og
varðveita þannig tónlistina.
3. Að gefa börnum og unglingum
á Austurlandi tækifæri á að fá
leiðsögn frá aust rsku fagfólki
og taka þátt í vinnustofu og
tónleikum með fagfólki við
kjöraðstæður á tónleikum í Hörpu.
Tónverk skulu send á
tonleikahus@tonleikahus.is.
Upplýsingar um nafn, aldur og skóla
höfundar þurfa að fylgja verkinu sem
og símanúmer og tölvupóstfang.
SÓKNARÁÆTLUN
AUSTURLANDS