Austurglugginn


Austurglugginn - 02.12.2021, Qupperneq 8

Austurglugginn - 02.12.2021, Qupperneq 8
8 Fimmtudagur 2. desember AUSTUR · GLUGGINN eru festar með ankerum við botninn til að haldast á sínum stað. Hvaða tækni verður fyrir valinu skýrist síðar þegar búið er að finna út hvað henti svæðinu og velja framleiðanda. Þá ráðast einnig endanleg afköst. Í dag framleiða nýjustu vindmyllurnar 14 MW en er aukast. „Við vonumst til að það verði 20 MW þegar við pöntum okkar búnað. Það skiptir máli að nota góða tækni sem fjárfestar samþykkja,“ segir Paul. Vindmyllurnar verða staðsettar um 30-35 úti fyrir landinu. Annars vegar út af vindum, hins vegar til þess að þær sjáist ekki frá landi. Kúpt lögun jarðar gerir það að verkum. Áætlanir HIP gera ráð fyrir að leggja sæstreng beint frá vindmyllugörðunum til Bretlands. „Fyrst horfðum við til þess að tengjast Íslandi en ekki lengur. Verkfræðingarnir okkar segja að við getum byggt aðveitustöð úti á hafi.“ 400 heilsársstörf Um tvö ár tekur að reisa vindmyllurnar sem HIP vonast til að verði 2024-25. Á þeim tíma verða til 300 störf. Horft er til Reyðarfjarðar með aðstöðuna. Vindmyllurnar koma ósamsettar frá framleiðendum og þurfa skipin sem flytja þær – og síðar kaplana, mikið dýpi sem fjörðurinn hefur. Síðan þarf undirlendi til að setja þær saman. Í ferð sinni austur skoðaði Paul tvo staði, sitt hvoru megin fjarðarins, sem betur verða metnir af samstarfsfólki hans. Vindmyllurnar eru síðan dregnar á haf út af dráttarbátum. Rekstur orkuveranna gæti hafist um 2026/27. Gert er ráð fyrir að þau skapi um 400 heilsársstörf. Bæði þarf að sinna viðhaldi en einnig ýmissi umsýslu. Áætlað er að um 80% starfanna yrðu á Austurlandi. Horft er til Reyðarfjarðar eða Hafnar í Hornafirði sem miðstöðva fyrir henni. Fulltrúar HIP hafa á síðustu mánuðum kynnt áform sín fyrir sveitarstjórnum Fjarðabyggðar, Hornafjarðar og Múlaþings. Matthildur Ásmundsdóttir, bæjarstjóri á Höfn, staðfesti í svari við fyrirspurn Austurgluggans að fulltrúar Kára hefðu tvívegis hitt sveitarstjórnarfólk þar. Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, sagði sveitarfélagið fylgjast með verkefninu af áhuga og halda áfram samtalinu. „Verði af þessu þá mætum við því,“ sagði hann. Meðal annars þyrfti aðstöðu fyrir þjónustubáta og eða þyrlur til að ferja starfsfólk út að vindmyllunum. Þær verða útbúnar sem björgunarþyrlur og hefur HIP lýst yfir vilja sínum til að semja við íslensk stjórnvöld þannig hægt sé að nota þær sem slíkar á Austfjörðum. „Þetta eru störf sem krefjast þekkingar, ekki endilega háskóla- menntunar, en þú þarft að vita hvað þú ert að gera þegar þú ert að sýsla við stór tæki úti á sjó. Við viljum hafa þau nærri framleiðslunni,“ segir Paul. Treyst á tækniþróun Áætlaður líftími vindmyllnanna er 40 ár, þær yrðu þá dregnar til hafnar og teknar í sundur og líklega nýjum komið út. Aðspurður um umhverfisáhrif svarar Paul að mikil framþróun sé í að draga úr þeim, til dæmis vinni skoskur háskóli að tækni til að endurvinna spaðana. Spaðarnir í dag séu gerður úr blöndu kol- og glertrefja en verið sé að gera spaða úr strigaefni. „Langir spaðar eru þungir og strigaspaðar yrðu mikil framþróun. Þeim léttari spaðar því minni orku þarf til að koma þeim af stað eða halda gangandi og þá fer meira í að framleiða rafmagn,“ segir Paul. Hann nefnir að komið hafi verið fyrir hátíðnibúnaði á köplum og búnaði til að koma í veg fyrir að hvalir sigli á þá. Þá sé hægt að koma skynjurum fyrir á vindmyllunum sem nemi ferðir fugla og stöðvi spaðana meðan fuglarnir fljúgi hjá. Hvoru tveggja er beitt í Bandaríkjunum. Frekari gagnaöflun Næst á dagskrá er að safna frekari gögnum. HIP vill koma fyrir litlum báti með mælitækjum í kleinuhringjunum. Mælitækin, svokallaður „lightar“ skýtur geisla upp í loftið til að safna gögnum um vindinn í um 200 metra hæð. „Við þurfum upplýsingar um hraða, þéttni og raka. Það er minni orka í þurrari vindi,“ segir Paul. Hann vonast að leyfi fáist þannig að hægt verði að koma bátunum fyrir á næsta ári. Gögnin úr þeim nýtast síðan til að afla frekari fjárfesta við verkefnið. Eins þarf að kortleggja leiðina fyrir kapalinn, meðal annars sjávarbotninn, horfa eftir skipsflökum og gömlum sprengjum og kanna hvað þarf til að tengjast breska dreifikerfinu. Eins þarf að vinna að mati á umhverfisáhrifum. „Við sjáum fyrir okkur að margt gerist á sama tíma.“ GG Modeled Annual Mean Wind Speed Pattern off Southern Island. Wind Speeds Increase from Blue to Red. Prepared by Omar Galaviz and Richard Simon, Simon Wind, Inc., 11 June 2021 Bláu línurnar afmarka það svæði sem horft er til fyrir mögulega vindmyllugarða. Litirnir tákna vindgæðin, bláleit svæði eru lygn en rauð svæði hvöss. Mynd: Kári Energy/Simon Winds Íslendingar fái auðlindagjald Ör orkuskipti Breta eru forsendur fyrir Kára verkefninu. Þeir ætla að loka tveimur kolaorkuverum, sem framleiða 4,5 GW, á næstu tveimur árum og halda síðan áfram á sömu braut. Þá er ónefnd orkuþörf vegna orkuskipta. Það skapar vandamál. Þegar vel lætur er fjórðungur orku Breta framleiddur með vindi, ýmist á hafi eða landi, en hlutfallið dettur niður í 2% þegar lygnir. Þá hafa kolaverin verið keyrð upp með miklum tilkostnaði. „Þegar veðrið er gott á Englandi, eins og við óskum okkur alltaf, þá er það vont fyrir framleiðendur vindorku,“ sagði Peter Earl, stjórnarformaður IPC, á málþinginu. En vindurinn er stöðugri hérlendis sem skapar möguleika. „Við sjáum að vindurinn er nægur í Bretlandi 40% tímans meðan nýting vindmyllanna á Íslandi getur orðið allt að 65%“ Annað vandamál Breta er dreifikerfið, sem byggt er upp úr frá kolaverunum en er veikt við ströndina. Sæstreng frá Íslandi væri hægt að tengja við Bretland þar sem hentaði. Horft er til þess að strengur frá öðrum vindmyllugarðinum tengist til Hinkley Point, á suðvestanverðu Bretlandi. Þar er í dag verið að byggja kjarnorkuver auk þess sem Bretar horfa til þess að byggja þar iðnað, meðal annars gagnavert. Fram kom á fundinum að sérstaklega sé horft til þess að selja orkuna úr vindmyllugörðunum til tæknifyrirtækja sem keppist við að sýna fram á að þau noti græna orku. Nokkrir staðir eru til skoðunar fyrir hinn sæstrenginn. Truflar ekki íslenskan raforkumarkað Bæði Peter og Tony Baldry sögðu að Íslendingar þyrftu að fá eitthvað fyrir sinn snúð. Peter sagðist vita af áhuga Austfirðinga á þyrlunum auk þess sem atvinnusköpun og fjárfestingar væru af hinu góða en báðir tóku líka skýrt fram að borguð yrðu einhvers konar auðlindagjöld til íslenska ríkisins. Það þyrfti að móta hvernig. Hann sagði Kára verkefnið aðeins prufuverkefni. Með að nýta þann vind sem er um 20 km úti fyrir Íslandi sé hægt að framleiða á milli 10-20.000 MW af orku. Slíkt gæti skapað Íslendingum meiri tekjur en fiskveiðar. Þá sögðu bæði Peter og Tony að verkefnið hefði engin áhrif á orkuverð á Íslandi. Að sæstrengurinn tæki ekki land hér tryggði þar. Auk þess væri Bretland ekki í Evrópusambandinu og strengurinn því ekki tengdur innri markaði þar. Mögulegt sé þó að bæta við sérstökum vindmyllum ef Íslendingar vilji fá orku til sínum. Ný tækifæri á köldu svæði Matt Beaton, framkvæmdastjóri Tyne-hafna, við ána sem rennur í gegnum Newcastle, sagði mikil tækifæri í vindorku fyrir hafnasamlagið. Þar er búið að skipuleggja 200 ekrur undir þjónustu við vindorku sem eru talin skapa 15 þúsund ný störf. Alls áætla ráðgjafar Tyne-hafna að 70 þúsund ný störf verði til á næstu fjórum árum á norður og austur Englandi næstu fjögur ár vegna þjónustu við vindorku á hafi. Slíkt gerbreyti lífgæðum á svæðinu sem átt hefur undir högg að sækja undanfarin ár. „Norður England hefur liðið fyrir efnahagskerfi sem einblínt hefur á hag Lundúna. Með þessu höfum við á örskotsstundu farið úr atvinnuleysi yfir í að okkur skortir fólk, úr samdrætti í fjárfestingar, úr skorti í samgöngu yfir að fleiri vilja tengjast okkur,“ sagði hann.

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.